sfjalar » enska

Skapandi skrif með aðstoð upplýsingatækninnar
Á Netinu má finna fjöldan allan af gagnlegum verkfærum íslenskum jafnt sem erlendum til að styðja við og örva skapandi skrif í skólastarfi. Hér eru nokkur áhugaverð sýnishorn.

Eitt slíkt verkfæri sem við höfum nýtt okkur á Starfsbraut FB er Ritfærni frá Námsgagnastofnun. Sjálfur er ég ekkert allt of hrifinn af vefforritum Námsgagnastofnunar; finnst þau á heildina litið frekar óspennandi, lokuð og takmörkuð. Inn á milli má þó finna ágætar hugmyndir og Ritfærni er ein af þeim.

Undir liðnum gagnvirkt efni í Ritfærni er hægt að velja mannlýsingar. Þar gefst notendum kostur að setja saman persónu með því að velja fatnað og ákvarða líkamsbyggingu. Að því loknu skrifa nemendur mannlýsingu. Það truflar mig reyndar dálítið í þessu verkfæri frá Námsgagnastofnun hvað persónan er lítil.

Feeling Bubbles er annað verkfæri á Netinu sem komið getur að góðum notum en með því má prenta út verkefnablöð sem innihalda andlitsmynd og hugsanablöðru (eða hvað má kalla þetta?). Hugmyndin er sú að annað hvort kennari eða nemendur velji andlit/tilfinningu til að nota sem kveikju að textasmíði.

Ofurhetjusmiðjan annar vefur þar sem nemendur geta skapað eigin persónu og valið bæði útlitseinkenni og hæfileika. Það er auðvitað galli að vefurinn er á ensku, en úrræðagóðir kennarar þurfa þó ekki að láta það koma í veg fyrir að hann sé nýttur í skólastarfi. Svo má einnig nota þennan vef og aðra sambærilega (s.s. þennan) í enskukennslu.

Enn eitt verkfærið sem reyndar er til í bæði karl og kvenkyns útgáfu nefnist Furry Dollmaker. Um notkun þess í skapandi skrifum gildir það sama og um ofurhetjusmiðjuna, þ.e. nemendur setja saman persónu sem síðan verður kveikjan að textaskrifum. Furry Dollmaker forritin bjóða upp á örlítið meiri sveigjanleika en bæði Ofurhetjusmiðjan og Ritfærni þar sem nemendur draga fatnað og líkamshluta yfir á dúkkuna í stað þess að velja með því að smella á músarhnapp. Furry Dollmaker hefur einnig stærðina umfram forrit Námsgagnastofnunar og hentar þar að leiðandi mun betur með skjávarpa. Á hinn bóginn er það galli að það skuli vera á ensku.

Hér getur svo að líta karlkyns útgáfuna. Hér er annað efni eftir saman höfund sem höfðar líklegast frekar til stúlkna.

Það væri virkilega gaman að heyra frá ykkur. Ég er sérstaklega áhugasamur um að heyra hvernig upplýsingatæknin er notuð í skapandi skrifum og þá hvort og hvaða netlægu verkfæri eða vefi þið eruð að nota. Það er svo ótal mikið að spennandi möguleikum þarna úti og það sem ég hef bent hér á er einungis toppurinn á ísjakanum.

Eitt (enskt) orð á dag
Undanfarið hef ég fengið daglegar póstsendingar frá netlægri þjónustu sem nefnist Weboword. Bréfin samanstanda hvert og eitt af einfaldri teikningu og meðfylgjandi texta þar sem kynnt er til sögunnar eitt enskt orð og skilgreining á merkingu þess.

Orð dagsins í dag (1. júní) er Ostentatious. Hér má sjá myndina sem fylgdi póstinum.

Ég get vel ímyndað mér að enskukennarar gætu nýtt sér þjónustu sem þessa með nemendum sínum. Auk skilgreiningar á viðkomandi orði fylgja upplýsingar um framburð, helstu samheiti og sýnishorn af notkun.

Áskrift að að Weboword er endurgjaldslaus og þarf einungis að gefa upp tölvupóstfang viðkomandi á Weboword.com vefnum. Efni þjónustunnar er varið samkvæmt leyfisskilmálum Creative Commons sem kemur sér einstaklega vel fyrir kennara sem vilja byggja á því eða samþætta efnið öðru kennsluefni.

Wiktionary + Flickr = Shahi
Shahi nefnist nýtilkomin myndræn orðabók sem sækir orðaskýringar úr Wiktionary orðabókinni og Wordnet orðasafninu og birtir samhliða ljósmyndum frá Flickr þjónustunni eða myndum úr Google eða Yahoo leitarvélunum kjósi notendur svo.

Shahi er ekki einungis stórsniðug lausn sem á erindi við bæði nemendur og kennara heldur vel heppnað dæmi um hvernig mögulegt er að samþætta tvo ólíka, gagnvirka vefi svo úr verði hagnýt þjónusta. Shahi er aðeins eitt dæmi af mörgum um þá gríðarlegu grósku sem einkennir þennan vettvang og vafalítið hafa margar skemmtilegar lausnir litið dagsins ljós sem henta vel í námi og kennslu.

Tilurð Shahi undirstrikar ennfremur kosti opinna notendaskila (API) og mikilvægi óhefts aðgangs að gögnum á Netinu. Hér er við hæfi minna á hversu þarft verkefni það er að gera sem allra mest af opinberum gögnum aðgengileg endurgjaldslaust á Netinu. Ég vil einnig sjá útboð um hugbúnaðarsmíði á vegum ríkis og sveitarfélaga gera ríkari kröfur um opin hugbúnaðarleyfi. Verkefni eins og Shahi gæti aldrei orðið að veruleika ef greiða þyrfti fyrir aðgang að gögnunum sem þjónustan gerir sér mat úr.

Shahi er eins og gefur að skilja ekki áreiðanlegasta myndaorðabók sem til er enda meira til gamans gerð. Fyrst og fremst vegna þess að tengingar á milli mynda og texta byggja á lykilorðum (tögum) notenda á Flickr sem geta verið æði handahófskenndar. Hið sama má segja um tengingar á milli orðaskýringa Wiktionary og mynda af leitarvélunum Google og Yahoo sem væntanlega byggja á heitum myndanna eða skýringartexta sem einnig getur verið ómarkvissur.

Þess má geta að Wiktionary orðabókin er einnig til í íslenskri útgáfu og hvet ég alla sem áhuga hafa að taka þátt í gerð hennar.

Viltu vinna milljarð – í enskutíma á starfsbraut?
Viðfangsefni dagsins í ensku 5S24 áfanganum á starfsbraut FB var ferðalag kvikmyndastjarnanna ungu, þeirra Rubina Ali og Azharuddin Ismail, sem léku svo eftirminnilega í kvikmyndinni Slumdog Millionaire, til Los Angeles að verða viðstödd 81. Óskarsverðlaunahátíðina.

Við hófum kennslustundina á því að lesa (eða hlusta) á fréttina ‘Slumdog’ children in millionaire world á Breaking News English vefnum. Ég nota Breaking News English vefinn reglulega í enskukennslu þar sem hann skapar svo skemmtilega tengingu við atburði líðandi stundar.

Nokkur í hópnum voru svo heppin að hafa séð Slumdog Millionaire og hældu þeir henni í hvívetna. Þau sögðu okkur hinum frá þeirri upplifun (á ensku auðvitað). Ég notaði tækifærið og sagði þeim örstutt frá Bollywood (það litla sem ég vissi) og sýndi svo stutt myndskeið úr Bride and Prejudice, sem er væntanlega það næsta sem ég kemst því að sjá alvöru Bollywood mynd. Það er gaman að geta þess að þau voru öll mjög svo meðvituð um hinn mikla kvikmyndaiðnað sem þrífst á Indlandi og Bollywood hugtakið kom engum á óvart. Ekki samt viss um að Bride and Prejudice hafi hitt í mark. Allavega ekki hjá strákunum.

<object width="500" height="405" data="http://www.youtube.com/v/ERFW55MXq8c&hl=en&fs=1&rel=0&border=1" type="application/x-shockwave-flash"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/ERFW55MXq8c&hl=en&fs=1&rel=0&border=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /></object>

Í fréttinni sem við lásum á Breaking News English var eins og áður sagði fjallað um ferðalag barnanna frá Mumbai á Indlandi til Los Angeles í Bandaríkjunum. Í því skyni að staðsetja þessar stórborgir sóttum við þær heim með aðstoð Google Earth. Google Earth er mikilvægt verkfæri í enskukennslu hjá mér enda gefur það viðfangsefninu og umræðum aukið vægi að staðsetja það í tíma jafnt sem rúmi.

Varla er hægt að ímynda sér ólíkari staði en Dharavi fátækrahverfið í Mumbai á Indlandi hvaðan þau Ali og Ismail koma og Los Angeles. Við skoðuðum nokkrar myndir frá Dharavi á Flickr og lásum stuttlega um staðinn á Wikipedia og það er óhætt að segja að viðbrögðin hafi verið sterk. Ég held að ekkert okkar hafi í raun getað gert sér í hugarlund aðstæðurnar sem fólk býr við á svona stöðum.

Við horfðum einnig á stutt myndskeið um Dharavi á Youtube og í kjölfarið upphófust miklar umræður um mannlega eymd og fátækt, bæði hér á landi og erlendis. Umræður eru mikilvægasti þátturinn í kennslunni hjá mér og þar sem nemendahópurinn er ekki stór get ég tryggt virkni allra nemenda.

<object width="500" height="405" data="http://www.youtube.com/v/ILycPHwieYk&hl=en&fs=1&rel=0&border=1" type="application/x-shockwave-flash"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/ILycPHwieYk&hl=en&fs=1&rel=0&border=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /></object>

Við rákumst á nokkur áhugaverð hugtök í texta Breaking News English fréttarinnar sem okkur þótti vert að kanna nánar. Til þess notum við yfirleitt við VisuWords orðabókina og svo var einnig nú. Við leituðum t.a.m. eftir orðinu “slum” í visuWords sem birti okkur eftirfarandi skjámynd. Við lögðum á minnið tvö önnur orð sambærilegrar merkingar, þ.e. ‘Skid row’ og ’shantytown’.

Ég hef áður skrifað um Visuwords og mæli hiklaust með þeim vef í kennslu.

Mannlífið í Dharavi var ofarlega í hugum okkar eftir það sem á undan var gengið og það vöknuðu upp spurningar í hópnum um hvernig það væri að heimsækja svona stað. Við slógum Dharavi inn sem leitarorði í Google og mér til undrunar fundum við stuttan pistil eftir íslending þar sem hann lýsti ferð sinni um hverfið. Hún kom okkur örlítið á óvart verð ég að segja.

Í þessu hverfi er fýlan rosaleg og maður á erfitt með að anda. Húsin eru bara kofar mestanpart en inn á milli eru stærri hús og þar eru barir og búðir og allskonar staðir þar sem allt milli himins og jarðar fer fram – hanaslagur og vændi og hnífabardagar og jafnvel ópíumbæli (ég hélt alltaf að það væri kínverskur siður sem lagðist af fyrir áratugum). Þar verður maður var við stéttaskiptinguna og hina stéttlausu – sem meira að segja Rash leit ekki á. En allavega – ég er að reyna að verða mér úti um mótorhjól og hann sagðist vita um eitt þarna en þegar til kom var þetta einhver indversk eldgömul drusla (man ekki tegundina) sem fór síðast í gang á síðustu öld örugglega. En þetta var merkileg ferð þó svo að ekkert sérstakt kæmi fyrir. En það sem mér fannst merkilegast voru gervihnattadiskarnir á kofunum – örugglega á öðrum hverjum kofa voru diskar (kannski ýkjur en samt helling). Fólkið í Dharavi horfir semsagt á MTV og CNN eins og restin af heiminum.

Að lokum benti ég nemendum mínum á að kvikmynd Danny Boyle væri unnin upp úr bók eftir Vikas nokkurn Swarup sem þýdd hefði verið á íslensku undir heitinu Viltu vinna milljarð. Hér er ágæt bloggfærsla um þá bók.

Á heildina litið hinn ágætasti tími.

Sýnileg orð
Visuwords vefurinn er netlæg orða- og samheitaorðabók á ensku. Myndræn framsetning orða gerir það að verkum að Visuwords er eins og sniðin að kennslu. Ég nýti Visuwords enda óspart með nemendum mínum og mæli sérstaklega með vefnum fyrir alla kennara sem hafa aðgang að gagnvirkum töflum.

Visuwords er í raun myndrænt viðmót við WordNet gagnagrunninn sem er öllum opin (open source). WordNet er byggður af rannsakendum og nemendum við Princeton háskólann og er lýsandi dæmi um þá skemmtielgu hluti sem geta gerst þegar gögn eru aðgengileg fólki sem hefur áhuga og getu til að vinna með þau á skapandi hátt. Í þessu sambandi verð ég einu sinni sem ofart að benda á Gapminder hugbúnaðinn og fyrirlestur Hans Rosling á TED ráðstefnunni um árið. Einn af betri fyrirlestrum á TED og er þá ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

Þegar leitarorð er slegið inn í Visuwords spretta niðurstöðurnar fram eins og gorkúlur á ofurhraða og til verður margslungið orðakort eða tengslanet orða eða sem hægt er að rekja sig eftir. Hægt er að toga og teygja einstaka hluti orðakortsins og stækka og minnka að vild. Þegar músarbendillinn er staðsettur við einstakt orð birtist skilgreiningin á því í litlum ramma til hliðar við bendilinn.

Ég nota Visuwords iðlega á þann hátt með nemendum mínum í enskukennslu að við veljum áhugaverð orð og skoðum það ítarlega í sameiningu. Oftar en ekki í tengslum við lestur eða hlustun á texta dagsins af Breaking News English vefnum sem ég held mikið uppá. Einn af fjölmörgum kostum Visuwords er að tengingar á milli orða eru auðkenndar með mismunandi litum og lögun sem segir til um hvers eðlis sambandið er á milli orðanna. Þannig er t.a.m. augljóst hvort um er að ræða samheiti eða andheiti.

Visuwords er opinn hugbúnaður og kóðinn því aðgenglegur öllum sem áhuga hafa á því að nýta sér hann. Ef einhver hefur tíma og tækifæri væri spennandi að kanna möguleikan á því að tengja þetta viðmót við íslenskt orðasafn. Að vísu veit ég ekki til þess að neitt slíkt sé til opið og aðgengilegt á Netinu og væntanlega þyrfti gagnaskipanin að vera sambærileg við Wordnet. En það má alltaf láta sig dreyma.

Aðrar áhugaverðar, netlægar orðabækur fyrir enska tungu

Ninjawords

Einföld og einstaklega hraðvirk netlæg orðabók

Merriam-Webster á netinu

Ofhlaðið notendaviðmót fyrir minn smekk, en góð orðabók engu að síður.

Orð dagsins á Wordsmith

Sniðug þjónusta sem gæti hentað vel í enskukennslu

Thsrs

Sláðu inn orð til að finna styttra samheiti

Enskuleikurinn
English Game er nýtt gagnvirkt námsefni í formi tölvuleiks sem byggir lauslega á hugmyndafræði hlutverka- og sýndarveruleikaleikja. Leikurinn er ætlaður sem stuðnings- eða viðbótarefni í enskukennslu 7 til 10 ára gamalla nemenda og henta vel til sjálfstæðrar vinnu í skólastofunni eða heima meðfram öðru námsefni.

Í leiknum skapar nemandinn persónu, gefur henni útlitseinkunni og fatnað og fer með henni í ævintýraferð þar sem hann þarf að leysa alls konar þrautir og verkefni.

Verkefnin og þrautirnar eru nokkuð hefðbundnar og eiga sér allar samsvörun í hefðbundum pappírsverkefnum, s.s. að setja orð á myndir eða leysa einfalda orðaleiki. Það sem skilur á milli stafræns námsefnis og pappírsvinnu hefðbundinnar er hins vegar endurgjöfin sem er svo mikilvæg við þjálfun eða verkefnavinnu sem þessa.

Námsmarkmið enskuleiksins eru í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla í ensku og er hann unninn með hliðsjón af þeim. Samkvæmt upplýsingum á vef leiksins á það að taka nemanda um 4 – 5 klst að fara í gegnum leikinn í heild sinni. Leikurinn er unnin í forsjá og að frumkvæði Birnu Arnbjörnsdóttur við enskudeild Háskóla Íslands. Gerð hans var m.a. styrkt af menntamálaráðuneytinu.

Enskuleikurinn er Forritaður í Flash og er vandað til allra verka. Hljóð og grafík eru til fyrirmyndar og notendaviðmótið augljóst og einfald í notkun.

Leikurinn boðar vissulega enga byltingu í námsefnisgerð en er engu að síður virðingarvert framtak og þá sérstaklega tengingin við markmið í námskrá. Ég hef reynt hann í kennslu á starfsbraut FB og voru viðtökur nemenda góðar enda þarft efni á ferðinni í kennslu nemenda sem þurfa á að halda myndrænni framsetningu, gagnvirkni endurgjöf og endurtekningu. Það er einnig kostur við að setja námsefni fram á þetta leikrænan hátt að það vill halda nemendum betur við efnið heldur en hefðbundið námsefni á pappírsformi.

Eins og áður sagði þá er vefurinn forritaður í Flash sem því miður getur ekki talist aðgengilegasta leiðin til að birta efni á Netinu. Þegar ég kallaði t.d. fram leiðbeiningar með leiknum gat ég t.a.m. ekki á nokkurn hátt stækkað letrið. Upplýsingar með leiknum eru einungis til á ensku og finnst mér það galli.

Á Menntagátt má finna upplýsingar um annað námsefni sem einnig var styrkt af menntamálaráðuneytinu og var gefið út á síðasta ári.