Eldra efni: flash

Flassararnir í FB

Skráð 20 May 2008
Flokkur: Nám, flash
1 athugasemd frá lesendum

Undanfarin ár hef ég kennt áfanga í margmiðlun við FB þar sem meginviðfangsefnið er Flash hugbúnaðurinn frá Adobe (áður Macromedia). Í áfanganum sem er hluti af ut-braut skólans er áhersla lögð á kennslu og þjálfun í Actionscript forritunarmálinu og til að gera hann sem allra áhugaverðastan og virkja nemendur sem best forritum við leiki.


Adobe kynnir Captivate 2

Skráð 18 September 2006
Flokkur: flash
Engar athugasemdir frá lesendum

Þann 5. september s.l. opinberaði Adobe nýjustu útgáfu Captivate hugbúnaðarins vinsæla og þá fyrstu síðan Adobe og Macromedia urðu eitt. Captivate einfaldar mjög gerð gagnvirks kennsluefnis sem ætlað er til birtingar á vef á Flash sniði og hefur mikið verið notað til kynningar og kennslu á hugbúnaði.
Nýja útgáfan verður fáanleg síðar á árinu og kemur [...]


Gagnvirk hermiforrit í eðlisfræði

Skráð 26 February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Már Örlygsson benti mér nýlega á frábæran vef þar sem finna má fjölda vandaðra hermiforrita til að nota í eðlisfræði. Forritin eru lítil að umfangi og hægt er að vinna með þau í gegnum vefskoðara eða sækja og setja upp á eigin tölvu eða tölvum án endurgjalds. Forritin eru flest skrifuð í java en nokkur [...]


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman