Flickr er hagnýtt verkfæri í listgreinakennslu, t.d. listasögu, eins og sjá má þegar smellt er á meðfylgjandi mynd. Hér hefur hugvitsamur kennari birt nemendum sínum fræg verk úr listasögunni og notað “notes” verkfærið í Flicker til að bæta skýringum við afmarkaða hluta þeirra. Nemendur og kennari geta síðan rætt um myndirnar á Netinu enda býður [...]
Flickr (www.flickr.com) er án efa vinsælasta netsamfélagið (social network) í dag þar sem sérstaklega er sýslað með myndir. Flickr er enda kjörin leið fyrir alla þá sem vilja hýsa og gera aðgengilegar hvers kyns myndir á Netinu án mikils tilkostnaðar og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða persónulegar ljósmyndir, teikningar eða annað myndrænt efni. En Flickr býður auk þess upp á fjölda áhugaverðra möguleika sem m.a. gera kerfið að mjög öflugum samvinnuvettvangi í námi og kennslu.
Hinn grískættaði bloggari Paul Stamatiou hefur birt á vef sínum einstaklega sniðuga leið til þess að varpa Flickr myndasýningum (slideshows) á hvaða vefsíðu sem er. Lausn Stamatiou felst í því að skilgreina iframe sem inniheldur Flickr myndasýninguna og þannig samþætta hana viðkomandi vef. [...]
Flickr býður upp á fjölmarga kosti aðra en hýsingu á myndum notenda. Þar má t.a.m. finna öfluga möguleika sem snúa að samskiptum og samvinnu meðal notenda þjónustunnar. Einföld leið til þess að mynda tengsl við aðra Flickr notendur felst í því að gera viðkomandi að tengilið (contact). Hver notandi getur stofnað til tengsla við ótilgreindan [...]
Flickr er opið netsamfélag, ekki einungis í þeim skilningi að hver sem er getur sótt um aðgang og sett myndir sínar á vefinn og skoðað myndir annarra, heldur einnig hvað tæknilega nálgun varðar. þannig er, að hver sem áhuga hefur og nægilega forritunarþekkingu getur á einfaldan hátt tengt eigin hugarsmíði Flickr netsamfélaginu og sótt þaðan [...]