Endurmenntun Háskóla Íslands stendur fyrir áhugaverðu námskeiði um frjálsan og opinn hugbúnað í haust. Á námskeiðinu verður leitast við að kynna nýútkomna stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað og skoða hvaða afleiðingar hún hefur á upplýsingatækni á Íslandi.
Þrír þingmenn Vinstri grænna hafa borið fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að auðvelda og auka notkun á opnum hugbúnaði og hugbúnaðarstöðlum. Samkvæmt tillöguni á Alþingi að fela ríkisstjórninni að skipa þverfaglega nefnd um opinn hugbúnað og hugbúnaðarstaðla. Verkefni nefndarinnar verði að leita leiða til að auka hlut opins hugbúnaðar og hugbúnaðarstaðla í stjórnsýslu [...]
Laugardaginn 9. febrúar nk. verður haldinn stofnfundur félags um stafrænt frelsi. Fundurinn verður haldinn í Háskóla Íslands, stofu V-257 á annarri hæð VR-II kl. 15:00 - 17:20.
Í dag er alþjóðlegur dagur frjáls hugbúnaðar. Markmiðið með deginum er að upplýsa almenning um mikilvægi frjáls og opins hugbúnaðar og kosti og gríðarlegt magn vandaðs hugbúnaðar sem stendur öllum sem áhuga hafa til boða án leyfisgjalda. Frjáls og opinn hugbúnaður er sérstaklega mikilvægur í akademísku starfi þar sem fjársveltir skólar þurfa á öllu sínu [...]
Mjög góð þátttaka var á opnum fundi staðlaráðs þar sem til umræðu var annars vegar stofnun tækninefndar í upplýsingatækni og hins vegar umfjöllun og hugsanleg afstaða til ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið, nú í frumafgreiðslu hjá JTC. Á fundinum var samþykkt stofnun tækninefndar, en þegar kom að umfjöllun um ISO/IEC [...]
1984 ehf er mjög áhugavert, íslenskt fyrirtæki sem býður einstaklingum, opinberum stofnunum og fyrirtækjum vistun, ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýsingatæknimála. Nafnið er að sjálfsögðu vísun í skáldsögu Orwells enda einkunnarorð fyrirtækisins “Stóri bróðir hefur gætur á gögnunum þínum”.
Viðtal við Richard Stallmann um frjálsan hugbúnað (free software) í skólastarfi.