Hafi þig einhverntíman dreymt um að upplifa Colosseum hringleikahúsið í Róm eins og það leit út árið 320 þegar borgin stóð á hátindi frægðar sinnar og velmegunar getur þú ræst Google Earth og gert draum þinn að veruleika.
Nemendur mínir á starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti hafa undanfarið unnið hörðum höndum að stafrænni listsköpun með aðstoð Google Earth jarðsjánnar. Hugmyndin að verkefninu vaknaði þegar ég tók eftir því að í mikilli nærmynd fær landslag í Google Earth á sig alveg nýja, listræna vídd.
Ég lagði fyrir nemendur eftirfarandi verkefni:
Ferðastu um heiminn með aðstoð Google [...]
Icelandair hefur bætt áfangastöðum sínum inn í sér yfirlag í Google Earth til að auðvelda þér að “fljúga” á milli borga og skoða úr lofti áhugaverða staði.
Þann 18. apríl s.l. uppfærði Google gagnagrunnin á bak við Google Earth og Google Maps þjónustuna með nýjum gervitunglamyndum. Uppfærslan hefur í för með sér að mörg landsvæði eru nú sýnileg í betri upplausn en áður, staðarheitum hefur fjölgað og landamæri eru greinilegri. Stór hluti vestur evrópu er þannig orðinn mun skýrari en áður og [...]
Google og Discovery leiða saman hesta sína. Nú geta áhugasamir sótt upplýsingar og skoðað myndbönd um bandaríska þjóðgarða með aðstoð Google Earth.
Sláðu tvær flugur í einu höggi með því að skrá þig á námskeiðið “Google Earth 101 for Educators”, sem á íslensku mætti útleggja Google Earth í starfi kennara. Á námskeiðinu kynnist þú Google Earth jarðsjánni og fræðist um margvísleg not sem kennarar geta haft af þessu magnaða forriti. Og þar sem námskeiðið nýtir Moodle námsstjórnunarkerfið [...]
Yfir 4500 knattspyrnuvellir kortlagðir með aðstoð Google Earth. Vantar að vísu heimavöll KR sem er stór galli. Sæktu KMZ skránna hér.
Á Google Earth er hægt að fylgjast með tilraun bandaríska ævintýramannsins Steve Fossett til að slá fluglengdarmet.
Vetrarólympíuleikarnir í Torino á Google Earth (KMZ skrá).
Fastr er frábær leikur sem hagnýtir Flickr. Reglur leiksins eru einfaldar. Leikmönnum birtast myndaraðir sem hver inniheldur 10 mydndir og eiga þeir að giska á hvaða lykilorð eiga við hverja myndaröð. Þetta er leikur sem hentar ágætlega í enskukennslu.