Eldra efni: Google Video

Af góðum afritum og slæmum

Skráð 19 August 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Good copy - Bad copy er glæný og vönduð dönsk heimildarmynd þar sem fjallað er um listsköpun og höfundarrétt. Rauður þráður myndarinnar er hinn svo kallaði “Rip mix burn” kúltúr sem ef til vill mætti útfæra á íslensku sem rífa, blanda brenna og snýst um þá listsköpun sem felst í að blanda á skapandi hátt [...]


Versta kvikmynd allra tíma?

Skráð 05 July 2007
Flokkur: Google Video
Engar athugasemdir frá lesendum

Google Video er hrein gullnáma fyrir áhugafólk um kvikmyndir, góðar jafnt sem slæmar. Hér verður reyndar sjónum beint að kvikmynd sem af mörgum er talin ein versta ef ekki alversta kvikmynd allra tíma. Nefnilega Plan 9 from Outer Space í leikstjórn Edward D. Wood jr. Plan 9 er kvikmynd sem vert er að horfa á [...]


Google video + Powerpoint = Zentation

Skráð 03 July 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Zentation er ný og spennandi vefbundin þjónusta sem gerir notendum kleift að hlaða inn PowerPoint sýningum og tengja við Google Video myndskeið þannig að úr verður myndskeið með glærum. Zentation er kjörin leið til að birta fyrirlestra eða kennsluefni á Netinu.


@Google viðburðir og myndskeið sem námseiningar

Skráð 02 June 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Google er ekki eitt fyrirtækja um þann skemmtilega sið að bjóða reglulega til sín rithöfundum, fræðimönnum, listafólki og jafnvel stjórnmálamönnum með stutta fyrirlestra um sérsvið sitt eða málefni líðandi stundar. Ólíkt flestum öðrum þá hefur Google gert þessar uppákomur aðgengilega okkur hinum undir fyrirsögninni @Google Talks rásinni á Youtube.


Berkeley á Google Video

Skráð 16 October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Berkeley háskólinn í Kaliforníu er fyrsti háskólinn sem fær sitt eigið vefsvæði fyrir kennsluefni á Google Video.


Örninn er lentur!

Skráð 24 February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Sunnudaginn 20. júlí árið 1969 lenti Apolló 11 geimfarið á tunglinu með tvo menn innanborðs. Daginn eftir steig Neil Armstrong fyrstur manna fæti á tunglið og markar sá atburður djúpt spor í sögu Bandaríkjanna og mannkynssögunni allri. Frásögnin af ævintýralegum leiðangri Apolló 11 og fjölda annarra viðburða sem tengjast sögu Bandaríkjanna er nú aðgengileg í [...]


Námsefni í Photoshop á Google Video

Skráð 20 January 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Í vetur kenni ég stafræna myndvinnslu við UT-braut Fjölbrautaskólans í Breiðholti eins og svo oft áður. Kennslan í ár verður hins vegar með dálítið öðru sniði en venjulega þar tímum í töflu hefur verið fækkað gegn meiri sjálfstæðri vinnu nemenda á Netinu. Að sjálfsögðu nýti ég Moodle námsstjórnunarkerfið sem er undirstaða kennsluvef skólans, sem finna [...]


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman