Eldra efni: Google

Gagnasöfnun með Google Docs

Skráð 11 February 2008
Flokkur: Google
Engar athugasemdir frá lesendum

Google hefur kynnt til sögunnar einstaklega notadrjúgan eiginleika í töflureikni Google Docs, netbundnu hugbúnaðarsvítu fyrirtækisins. Nýbreytnin felst í því að nú er hægt að safna saman gögnum frá notendum í skjal með því að búa til einfalt form og gera aðgengilegt notendum.


Google kynnir til sögunnar alhliða leit

Skráð 18 May 2007
Flokkur: Google
Engar athugasemdir frá lesendum

Google hefur sent frá sér athyglisverða fréttatilkynningu í kjölfar searchology ráðstefnunnar þar sem fyrirtækið, sem helst er þekkt fyrir Google leitarvélina, kynnti til sögunnar margvíslegar nýjungar sem snerta upplýsingaleit á Netinu.
Searchology er árlegur viðburður í boði Google og vettvangur fyrir kynningar á bæði nútíð og framtíð leitar á Netinu. Mesta athygli í ár vakti án [...]


Myndritin komin - glærusmiður væntanlegur

Skráð 18 April 2007
Flokkur: Google
Engar athugasemdir frá lesendum

Google er greinilega full alvara með smíði og markaðssetningu á heildstæðum, netbundnum skrifstofuvöndli í anda Office frá Microsoft. Í gær kynnti fyrirtækið áætlanir sínar um glærusmið sem opinberaður verður í sumar og í dag gat að líta nýjan möguleika sem lengi hefur verið beðið eftir í Google Docs töflureikninum, nefnilega myndritum.


Google uppfærir Picasa vefalbúmin

Skráð 08 March 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Google hefur uppfært Picasa vefalbúmin sín en meðal helstu nýjunga er aukið ókeypis geymslupláss úr 250MB í 1GB auk þess sem nú er mun einfaldara að vísa í einstaka myndir er albúm eða jafnvel birta vísun í þau í heild sinni á öðrum vefjum.


Nokkur orð um möguleika netbundins hugbúnaðar í námi og kennslu

Skráð 21 January 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Windows stýrikerfið og Office safnið eru án efa mikilvægustu hugbúnaðarlausnir Microsoft og vandfundinn sá tölvunotandi sem hefur ekki í það minnsta einhverja reynslu af notkun hvoru tveggja. Nú hafa nýjar útgáfur af Windows og Office litið dagsins ljós og þrátt fyrir ólíkar skoðanir netverja á ágæti þeirra má telja nokkuð öruggt að þær verði ráðandi [...]


Google kynnir Sketchup 6

Skráð 09 January 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Dreifing er hafinn á nýrri útgáfu af hinu magnaða þrívíddarteikniforriti Sketchup og geta PC og Makkanotendur sótt sér hugbúnaðinn án endurgjalds á slóðinni sketchup.google.com. Sketchup er einnig til í svokallaðri PRO útgáfu sem kostar tæpa 500 dollara eða um 35.000kr miðað við gengi dollarans þegar þetta er ritað.


Glænýr og glettilega góður lesari frá Google

Skráð 07 October 2006
1 athugasemd frá lesendum

Google hefur kynnt til sögunnar nýja og endurbætta útgáfu af rss-lesaranum Google Reader við almennt jákvæðar undirtektir netverja. Miklar breytingar hafa orðið á lesaranum frá upphaflegri útgáfu sem þótti með afburðum tilkomulítil og óspennandi svo ekki sé meira sagt.
RSS-lesari kemur að góðum notum fyrir þá sem vilja fylgjast með uppfærslum á vefjum án þess að [...]


55 leiðir til að hafa gaman af Google

Skráð 24 June 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Philipp nokkur Lenssen hefur gefið út á pdf sniði skemmtilega bók sem hann nefnir “55 Ways to Have Fun With Google”. Bókin inniheldur, eins og nafnið gefur til kynna, fjölmarga leiki sem hægt er að iðka með aðstoð Google leitarvélarinnar vinsælu. Bókin er gefin út samkvæmt Creative Commons leyfisskilmálunum og má sækja án endurgjalds.


Vefglósur með Google

Skráð 17 May 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Google hefur opinberað enn eina nýja þjónustu og í þettað skiptið er um að ræða Netbundna glósubók sem gengur undir nafninu Google Notebook. Google Notebook er viðbót við Internet Explorer eða Firefox vafrann sem gerir notendum kleift að safna saman og halda til haga á einum stað textabútum og myndum af Netinu. Google Notebook er [...]


Burstabær og gámahús í þrívídd

Skráð 09 May 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Lesið færslu Salvarar Gissurardóttur á vefnum sínum um Sketchup þrívíddarforritið frá Google. Skoðið líka burstabæinn og gámahúsið sem hún teiknaði með aðstoð forritsins.


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman