sfjalar » grunnskóli

Tónaeyjan
Tónaeyjan er alveg einstakur hugbúnaður sem sameinar tónsmíðar og leik á mjög frumlegan og hugmyndaríkan hátt.

Tónaeyjan er heimsótt með því að opna Isle of Tune forritið, annað hvort í vefskoðara eða sem iPad app (kostar $2.99). Þegar þangað er komið blasir við lítil, marflöt, nafnlaus eyja iðagræn. Það er ágætis regla að hefja leikinn á því að gefa eyjunni heiti en því næst er kjörið að taka til höndunum og leggja vegi staðsetja götuljós, reisa hús og gróðursetja tré og annað augnayndi sem er í boði.

Því næst er ein af þremur bifreiðum notandands valin af tækjastikunni neðst á skjánum og dregin á götuna og smellt á GO hnappinn. Ekur þá bifreiðin af stað og öll tréin og húsin og götuljósin og skreytingarnar gefa frá sér hljóð um leið og ekið er framhjá þeim. Hvern einstaka hlut sem liggur við götuna  má smella á og stilla nákvæmlega hvaða tón hann gefur frá sér og hversu lengi. Það er krefjandi þolinmæðisvinna, en á þennan hátt má skapa skemmtileg tónverk.

Það er auðvitað ekki fyrir hvern sem er að setja saman popplag með öllu tilheyrandi í Isle of Tune, en sumir geta það og allir hafa gaman af því að reyna. Tónaeyjan hentar vel í starfi með leikskólabörnum og börnum á yngsta stigi grunnskólan.s

Söngvasmiðurinn
Songsmith er forvitnilegur hugbúnaður ættaður úr tilraunastofu Microsoft og gerir, að því að fullyrt er, öllum sem áhuga hafa kleift að skapa sína eigin tónlist á ótrúlega aðgengilegan hátt.

<object width="480" height="295" data="http://www.youtube.com/v/d0zGAB40GYA&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/d0zGAB40GYA&hl=en&fs=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /></object>

Svona virkar Songsmith

Veldu tónlistarstíl. Hægt er að velja úr 30 ólíkum tegundum tónlistar, s.s. rokk, hip-hop, diskó eða salsa. Fleiri tegundir má kaupa á Netinu. Þegar tónlistartegundin hefur verið valin er hægt að breyta hraðanum/taktinum þannig að betur hæfi.

Syngdu við undirspil eða trommutakt Songsmith í anda þeirrar tónlistartegundar sem þú valdir.  Hér þarf að hafa hljóðnema við hendina.

Songsmith fullvinnur lagið með því að búa til undirspil í takt við þinn söng. Gæti varla verið einfaldara.

Songsmith gerir notendum einnig kleift að vinna áfram með þá tónlist sem skapað er í forritinu og t.a.m. er hægt að breyta um tóntegund og hljóðfæri. Tilbúin lög er hægt að vista sem hljóðskrár (WMA, WAV eða MIDI) eða færa beint yfir í Movie Maker og vinna þar áfram.

Hægt er að sækja 30 daga prufuútgáfu af Songsmith á Microsoft Research vefnum. Forritið krefst Microsoft Windows XP (með að minnsta kosti “servicepack 2″ uppsettum) eða Vista stýrkikerfi með að lágmarki 1GB í minni og 1GHz vinnsluhraða (processor). Þegar þetta er skrifað er einungis hægt að kaupa forritið í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu mun kosta rétt tæplega 30 dollara.

Ég viðurkenni fúslega að ég er dálítið hrifinn af þessu forriti og það væri virkilega gaman að heyra frá kennurum sem hafa sótt það og reynt að nota í skólastarfi. Ég get vel ímyndað mér að það henti ágætlega til tónlistarsköpunar í leikskóla og fyrstu bekkjum grunnskólans.

p.s.

Meðfylgjandi myndskeið frá Microsoft þykir víst með því hallærislegasta sem komið hefur úr herbúðum stórfyrirtækisins og af mörgu er að taka. Gott ef ég er ekki nokkuð sammála.