VoiceThread er nýtilkomin þjónusta á Netinu sem gerir notendum kleift að setja saman og birta myndasyrpur með tali og texta. VoiceThread er eins og hannað fyrir kennara og nemendur sem vilja gera skapandi og skemmtilega hluti með ljósmyndir eða teikningar.
Macaulay Library er heimsins stærsta safn dýrahljóða og hefur m.a. að geyma yfir 160.000 upptökur af fuglahljóðum. Það munu vera hljóð frá u.þ.b. 67% allra fuglategunda í heiminum í dag. Safnið hefur einnig að geyma upptökur af hljóðum skordýra, fiska, froska og spendýra.
Macaulay safnið hefur nú gert stóran hluta safnkostsins aðgengilegan á Netinu, eða [...]
Yackpack er nýr og spennandi samskiptavettvangur á Netinu þar sem notendur mynda aðskilda, lokaða eða opna umræðuhópa og skiptast á talskilaboðum sem geta verið allt að 6 mínútna löng hvert. Ólíkt IP símlausnum eins og hinn velþekkti Skype netsími þá byggir Yackpack ekki á rauntíma samskiptum heldur skilja notendur eftir talskipaboð hver til annars sem [...]
Már Örlyggson hefur birt Þriðja skammtinn af dæmisögum Esóps.
Már Örlygsson, sérlegur áhugamaður um heimalesnar hljóðbækur, fékk þá hugmynd að það gæti verið sniðugt að lesa dæmisögur Esóps inn á tölvunna og brenna svo á geisladisk fyrir son sinn. Hugmyndin er góðra gjalda verð og til allrar lukku hrinnti Már henni í framkvæmd og það sem meira er hann hefur gert upptökurnar öllum aðgengilegar á Netinu.
Podcasting er stafræn upptaka af útvörpuðu efni, s.e. útvarpsþætti, viðtali, fyrirlestri eða hvers kyns öðru hljóðrænu efni sem gert er aðgengileg á Netinu til notkunar á stafrænum spilurum. Orðið “Podcasting” varð til í tengslum við hina vinsælu iPod mp3 spilara frá Apple, en [...]
ODEO er vefbundin þjónusta sem gerir öllum sem áhuga hafa kleift að hlusta á, gerast áskrifendur að, taka upp og gera aðgengilegt hvers kyns hljóðefni á Netinu án endurgjalds.
Á vefnum ITConversations (http://www.itconversations.com) má finna fjöldan allan af áhugaverðum viðtölum, fyrirlestrum og umfjöllunum um allt sem hefur með upplýsingatækni og hagnýtingu hennar að gera.
Tim Wilson starfar sem tæknilegur ráðgjafi um hagnýtingu upplýsingatækni í skólastarfi. Tim heldur einnig út bloggvefnum The Savvy Technologist þar sem m.a. finna má einstaklega vönduð hljóðvörp/podcasting.