Ég las áhugaverða frétt á Wired blogginu nýlega þar sem segir frá prófessor nokkrum, Michael Moulton, við háskólann í Flórídafylki í Bandaríkjunum. Michael þessi heldur því fram að fyrirlestrar hans séu varðir höfundarrétti og hefur með aðstoð útgefanda síns lögsótt fyrirtæki sem kaupir glósur af háskólanemum og selur áfram.
Steal This Film er fyrri hluti áhugaverðrar heimildamyndar þar sem rakin er saga sænska skráardeilisamfélagsins PirateBay, heimsins stærsta torrentvefjar og 177. vinsælasta vefjar heims samkvæmt Alexa.
“Eru aðdáendur Radiohead nýskari en aðrir neytendur?” spyr höfundur greinar sem nýlega var birt á vef Smáís (Samtök Myndrétthafa á Íslandi) um leið og hann grípur til ósmekklegra og niðrandi ummæla um unga tölvunotendur í því skyni að réttlæta málstað samtakanna. Hann gerir jafnframt lítið úr tilraun hljómsveitarinnar Radiohead til að miðla tónlist sinni á [...]
Good copy - Bad copy er glæný og vönduð dönsk heimildarmynd þar sem fjallað er um listsköpun og höfundarrétt. Rauður þráður myndarinnar er hinn svo kallaði “Rip mix burn” kúltúr sem ef til vill mætti útfæra á íslensku sem rífa, blanda brenna og snýst um þá listsköpun sem felst í að blanda á skapandi hátt [...]
Eric Faden, prófessor við Bucknell háskólann, hefur sett saman sérlega skemmtilegt myndskeið þar sem höfundarréttur er útskýrður með góðfúslegri aðstoð persóna úr Disney teiknimyndunum.
Evrópuþingið samþykkti í dag mjög umdeilda tilskipun þar sem aðstoð, hvatning eða tilstuðlan að stórtæku broti á höfundarrétti er gerð að glæpsamlegu athæfi. Viðurlög geta falið í sér bann við að stunda viðskipti, eignupptöku, sektir upp að allt að 100.000 evrum (tæplega 9 milljónir íslenskra króna á gengi dagsins í dag) auk þess sem viðkomandi [...]
FJÖLÍS, hagsmunafélag samtaka sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum er njóta höfundarréttarverndar skv. höfundalögum, hefur gert samkomulag við HÍ og KHÍ og hugsanlega aðra háskóla um tímabundinn aðgang trúnaðarmanns (tilnefndan af Fjölís) að kennsluvefjum skólanna í því skyni safna upplýsingum um stafræna notkun og vinnslu kennsluefnis sem þar er að finna.