Taktu tímann
Hér eru tvær einfaldar lausnir til tímatöku eða skeiðmælinga í kennslustofunni. Báðar eru ætlaðar fyrir skjávarpa eða gagnvirkar töflur og geta komið að góðum notum við margvíslegar aðstæður.
Upplýsingatækni í námi og kennslu
Hér eru tvær einfaldar lausnir til tímatöku eða skeiðmælinga í kennslustofunni. Báðar eru ætlaðar fyrir skjávarpa eða gagnvirkar töflur og geta komið að góðum notum við margvíslegar aðstæður.
Kate Ahern heldur úti mjög vönduðum bloggvef sem hún nefnir Teaching Learners with Multiple Special Needs þar sem hún skrifar reglulega um málefni sem tengjast sérkennslu. Nýlega vakti hún athygli á ókeypis hugbúnaði á Netinu sem, þrátt fyrir að vera á ensku, gæti örugglega komið að góðum notum í íslenskum kennslustofum.
Prezi er netlægur hugbúnaður sem gerir notendum kleift að setja saman hvers kyns kynningar eða kennsluefni á nýstárlegan og skemmtilega myndrænan hátt. Þjónustunni er væntanlega ætlað að laða til sín netverja þá sem orðnir eru langþreyttir á ofurstöðluðum framsetningarmáta Powerpoint og sambærlegra lausna.
Fyrir stuttu fékk ég aðgang að lokuðum betaprófnum á Sliderocket, netbundnum hugbúnaði sem ég í sakleysi mínu hélt vera enn einn frumstæðan Powerpoint klóninn. Nú er ég reynslunni ríkari og fullyrði að hér er á ferðinni lausn sem gæti hæglega komið í stað Powerpoint í kennslu jafnt og öðrum vettvangi. Spurningin er bara hvers vegna [...]
Ég hef áður skrifað um Comic Life sem er einstaklega vel heppnaður hugbúnaður til að setja saman myndaseríur, teiknimyndasögur, leiðbeiningar eða myndrænar frásagnir af hverju sem er. Nýlega komst ég að því að kennarar eru að nota Comic Life með góðum árangri til að setja saman svokallaðar félagshæfnisögur (social stories). Þetta vakti forvitni mína.
Touch Typing nefnist einfaldur, netbundinn hugbúnaður (flash) sem ég nota gjarnan með nemendum mínum, þeim sem þurfa á að halda að æfa sig í fingrasetningu og vélritun. Eins ágætt og forritið er þá hefur það einn stóran galla, það vantar tilfinnanlega íslenskt lyklaborð. Í von um að bæta úr þessu skrifaði ég höfundinum Ezra Molkho [...]
Ég tel mig nokkuð fastheldinn á hugbúnað. Þegar ég loks hef ratað á hið eina rétta forrit þarf töluvert átak til að ég söðli um og taki upp aðra lausn og er ég þó nýjungagjarn að endemum. Á þessari reglu eru hins vegar nokkrar mikilvægar undantekningar.
Snagit hugbúnaðurinn frá Techsmith er eitt af þeim verkfærum sem ég nota mikið í starfi mínu sem kennari og námsefnishöfundur. Snagit er sérhæfður hugbúnaður til þess að taka og vinna með skjámyndir og vafalítið sá besti sinnar tegundar. Fyrir stuttu kynnti Techsmith útgáfu 9 af Snagit og inniheldur hún nokkrar forvitnilegar nýjungar.
Hinn umtalaði WorldWide Telescope hugbúnaður Microsoft er nú loks aðgengilegur í betaútgáfu. WorldWide Telescope má helst líkja við Google Earth/Sky nema hvað viðfangsefnið er himinngeimurinn í allri sinni dýrð. Forritið er vafalítið það markverðasta sem komið hefur úr herbúðum Microsoft í lengri tíma.
TwitterCamp hugbúnaðurinn er jafn einfaldur og hann er þrælsniðugur. Hlutverk hans er það eitt að birta á smekklegan hátt skjáfylli af Twitter færslum sem uppfærðar eru í rauntíma. Snilld ekki satt!
Úthlutað hefur verið úr þróunarsjóði námsgagna. Hér má finna yfirlit yfir styrkþega.
Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12-14. mars. Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar, þjónustu og möguleika sem eru í boði á íslenskum netmarkaði.
Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á vefjum hátt í þrjú hundruð stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina og er þetta í þriðja sinn sem slík úttekt er gerð.
Aðalfundur RANNUM verður haldinn föstudaginn 12.mars kl. 16-17 í fundarherbergi á 5.hæð í Bolholti 6.