Mayer Johnson hefur opinberað glænýja útgáfu af Boardmaker hugbúnaðinum. Forritið hefur undirgengist umfangsmiklar breytingar hvað útlit varðar og virkni og hefur auk þess fengið nýtt nafn, Boardmaker Studio. [Translate]
Virtual Piano er vandað og skemmtilegt sýndarhljóðfæri á vefnum sem ég er handviss um að komið getur að gagni í skólastarfi. [Translate]
Dreamweaver er að öllum líkindum besti vefsmiðurinn sem völ er á. Reyndar gríp ég æ sjaldnar til slíkra verkfæra en stundum, t.d. þegar setja þarf saman flóknar töflur, þá er gott að vita af honum innan seilingar. En Dreamweaver er allt of dýrkeyptur hugbúnaður þegar einungis er þörf á slíku verkfæri við sérstök tækifæri. [Translate]
Microsoft Mouse Mischief er ókeypis hugbúnaður frá Microsoft sem gerir notendum kleift að tengja allt að 25 þráðlausar mýs við einu og sömu tölvuna og vinna svo með þeim á gagnvirkan hátt í Powerpoint 2007 og 2010 forritinu. Þetta er eitt það sniðugasta sem ég hef séð í langan tíma. [Translate]
Hafin er innleiðing á Google Apps netlægu hugbúnaðarsvítunni við Grunnskóla Seltjarnarness. Stefnt er að því að nemendur jafnt sem kennarar flytji sig nánast alfarið yfir á skýið hvað tölvupóst, ritvinnslu, töflureiknir og framsetningarforrit varðar frá og með næsta hausti. Í kjölfarið verður samningum við Microsoft sagt upp. [Translate]
Síðustu vikur hef ég meðfram öðrum störfum dundað mér við að setja saman nokkur einföld verkefni fyrir nemendur mína á starfsbraut sem hafa verið að þjálfa sig í klukkunni. Við námsefnisgerðina hef ég helst notað Microsoft Word ritvinnsluna og Math Resource Studio forritið frá Schoolhouse Technologies. [Translate]
Enn ein útgáfan af skjáupptökuforritinu vinsæla Camtasia hefur litið dagsins ljós, sú sjöunda í röðinni. Ég nýti mér Camtasia töluvert og sótti því 30 daga prufuútgáfu í því skyni að kynna mér helstu nýjungar. Í stuttu máli sagt þá varð ég ekki fyrir vonbrigðum þó vissulega sé ennþá nokkuð svigrúm til endurbóta. [Translate]
Google hefur opnað fyrir aðgang almennings að netlægum gagnakönnuði sem hlotið hefur nafnið Google Public Data Explorer. Könnuðurinn er byggir m.a. á hugbúnaði sem þróaður var af Hans Rosling í því skyni að einfalda myndræna framsetningu efnis úr viðamiklum gagnasöfnum. [Translate]
Netið veitir okkur aðgang að yfirþyrmandi magni gagna um alla mögulega og ekki síst ómögulega hluti. Á hinn bóginn er það varla fyrir venjulegt fólk að koma skikkan á þó ekki væri nema brot að þessum gögnum hvað þá skapa úr þeim gagnlegar upplýsingar. Þar kemur Microsoft Pivot til sögunnar. [Translate]
Hér eru vísanir á fleiri ókeypis en vönduð netlæg smáforrit í boði Triptico. Þau fara sérlega vel á gagnvirkri töflu í kennslustofu en henta auk þess ágætlega til brúks í venjulegum skjám einstaklingstölva. [Translate]
Athugasemdir