Close

Svona gerum við

Námsefni

hugbúnaður  // Allar færslur í hugbúnaður

Hvað er nýtt í Snagit 9?

Hvað er nýtt í Snagit 9?

Snagit hugbúnaðurinn frá Techsmith er eitt af þeim verkfærum sem ég nota mikið í starfi mínu sem kennari og námsefnishöfundur. Snagit er sérhæfður hugbúnaður til þess að taka og vinna með skjámyndir og vafalítið sá besti sinnar tegundar. Fyrir stuttu kynnti Techsmith útgáfu 9 af Snagit og inniheldur hún nokkrar forvitnilegar nýjungar.

Lesa meira...

WorldWide Telescope er himnasending

WorldWide Telescope er himnasending

Hinn umtalaði WorldWide Telescope hugbúnaður Microsoft er nú loks aðgengilegur í betaútgáfu. WorldWide Telescope má helst líkja við Google Earth/Sky nema hvað viðfangsefnið er himinngeimurinn í allri sinni dýrð. Forritið er vafalítið það markverðasta sem komið hefur úr herbúðum Microsoft í lengri tíma.

Lesa meira...

TwitterCamp er tær snilld

TwitterCamp er tær snilld

TwitterCamp hugbúnaðurinn er jafn einfaldur og hann er þrælsniðugur. Hlutverk hans er það eitt að birta á smekklegan hátt skjáfylli af Twitter færslum sem uppfærðar eru í rauntíma. Snilld ekki satt!

Lesa meira...

Enskuleikurinn

Enskuleikurinn

English Game er nýtt gagnvirkt námsefni í formi tölvuleiks sem byggir lauslega á hugmyndafræði hlutverka- og sýndarveruleikaleikja. Leikurinn er ætlaður sem stuðnings- eða viðbótarefni í enskukennslu 7 til 10 ára gamalla nemenda og henta vel til sjálfstæðrar vinnu í skólastofunni eða heima meðfram öðru námsefni.

Lesa meira...

Comic Life fyrir Windows

Comic Life fyrir Windows

Comic Life er magnaður hugbúnaður sem ég hef lengi haft augastað á en með honum er hægt að setja saman hvers kyns myndaseríur og skapa teiknimyndasögur, leiðbeiningar eða myndrænar frásagnir af hverju sem er. Fram til þessa hefur Comic Life einungis verið til fyrir Apple tölvur en nú hefur Windows útgáfa litið dagsins ljós og ...

Lesa meira...

ZoomIt – eins og hannað fyrir tölvukennara

ZoomIt – eins og hannað fyrir tölvukennara

ZoomIt er glettilega handhægur hugbúnaður fyrir alla þá sem nota tölvu með Windows stýrikerfi til kynninga eða kennslu á hugbúnaði eða vefbundinni þjónustu. Eins og nafnið gefur til kynna þá hefur ZooIt það hlutverk helst að stækka allt sem á skjánum birtist en gerir notendum þar að auki kleift að skrifa og teikna yfir skjámyndina ...

Lesa meira...

Jing

Jing

Jing er nafnið á einfaldri en mjög sniðugri blöndu af Snagit og Camtasia hugbúnaðinum vinsæla sem Techsmith fyrirtækið gefur út. Jing var kynnt nýlega og á örugglega eftir að verða vinsæll meðal kennara og jafnvel kerfisstjóra.

Lesa meira...

Gagnvirk hermiforrit í eðlisfræði

Gagnvirk hermiforrit í eðlisfræði

Már Örlygsson benti mér nýlega á frábæran vef þar sem finna má fjölda vandaðra hermiforrita til að nota í eðlisfræði. Forritin eru lítil að umfangi og hægt er að vinna með þau í gegnum vefskoðara eða sækja og setja upp á eigin tölvu eða tölvum án endurgjalds. Forritin eru flest skrifuð í java en nokkur ...

Lesa meira...

Upplýsingatækni í enskukennslu

Upplýsingatækni í enskukennslu

Undanfarnar vikur og mánuði hef ég verið að kynna og kenna á Clicker 5 hugbúnaðinn sem er einstaklega skemmtilegt verkfæri og mikið nota í sérkennslu. Clicker var hannað til þess að styðja við lestur og ritun og er í raun margmiðlunarumhverfi þar sem einfalt er að blanda saman texta, hvers kyns myndum og hljóði. Clicker ...

Lesa meira...