Nú fer að óðum að styttast í útgáfu 1.5 af Joomla vefumsjónarkerfinu en unnið hefur verið hörðum höndum að þróun hennar undanfarin ár. Joomla 1.5 er mikilvægur áfangastaður í þróun Joomla sem varð til þegar þróunaraðilar Mambo gengu frá borði allir sem einn í kjölfar ósættis um framgang og fyrirkomulag á þróun lausnarinnar. Fyrsta útgáfa [...]
Í dag er alþjóðlegur dagur frjáls hugbúnaðar. Markmiðið með deginum er að upplýsa almenning um mikilvægi frjáls og opins hugbúnaðar og kosti og gríðarlegt magn vandaðs hugbúnaðar sem stendur öllum sem áhuga hafa til boða án leyfisgjalda. Frjáls og opinn hugbúnaður er sérstaklega mikilvægur í akademísku starfi þar sem fjársveltir skólar þurfa á öllu sínu [...]
Nýr vefur Fljótsdalshéraðs var opinberaður sl. fimmtudag. HugurAx hafði umsjón með gerð vefsins en auglýsingastofan Fíton hannaði útlitið. Vefurinn nýtir Joomla vefumsjónarkerfið og er væntanlega einn viðamesti Joomla vefur hérlendis.
Joomla var valið best opni hugbúnaðurinn á vettvangi vefumsjónarkerfa af Packt útgáfufyrirtækinu. Drupal (KHÍ notar t.d. Drupal) varð í öðru sæti og Plone í því þriðja.
Útgáfudagur á betaútgáfu Joomla 1.5 vefumsjónarkerfisins vinsæla hefur verið opinberaður og er hann 12. október nk. Joomla varð til þegar nánast allir helstu þróunaraðilar Mambo tóku sig saman og sögðu skilið við Miro fyrirtækið, sem á höfundarrétt á Mambo vörumerkinu. Ástæðan var ósætti um stjórnun á verkefninu.
Leiðir Mambo og Joomla skildu þann 17. ágúst 2005 [...]
Joomla er öflug hugbúnaðarlausn fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á því að koma sér upp vef og viðhalda honum á sem einfaldastan hátt. Joomla er gefið út samkvæmt leyfisskilmálum GNU/GPL og er því öllum frjálst að sækja hugbúnaðinn, aðlaga, dreifa og nýta án endurgjalds. Skólastjórnendur, kerfisstjórar og aðrir sem koma að upplýsingatæknimálum [...]