Netið veitir okkur aðgang að yfirþyrmandi magni gagna um alla mögulega og ekki síst ómögulega hluti. Á hinn bóginn er það varla fyrir venjulegt fólk að koma skikkan á þó ekki væri nema brot að þessum gögnum hvað þá skapa úr þeim gagnlegar upplýsingar. Þar kemur Microsoft Pivot til sögunnar.
Hér eru vísanir á fleiri ókeypis en vönduð netlæg smáforrit í boði Triptico. Þau fara sérlega vel á gagnvirkri töflu í kennslustofu en henta auk þess ágætlega til brúks í venjulegum skjám einstaklingstölva.
Fellibyljir eru ógnvekjandi náttúrufyrirbæri sem myndast á hafi úti og geta valdið gríðarlegu tjóni þar sem þeir ganga á land. Kennarar vilja fjalla um þetta sjónarspil ættu að kynna sér Stormpulse vefinn þar hægt er fylgjast með fellibyljum, styrk þeirra og stefnu.
Hinn umtalaði WorldWide Telescope hugbúnaður Microsoft er nú loks aðgengilegur í betaútgáfu. WorldWide Telescope má helst líkja við Google Earth/Sky nema hvað viðfangsefnið er himinngeimurinn í allri sinni dýrð. Forritið er vafalítið það markverðasta sem komið hefur úr herbúðum Microsoft í lengri tíma.
English Game er nýtt gagnvirkt námsefni í formi tölvuleiks sem byggir lauslega á hugmyndafræði hlutverka- og sýndarveruleikaleikja. Leikurinn er ætlaður sem stuðnings- eða viðbótarefni í enskukennslu 7 til 10 ára gamalla nemenda og henta vel til sjálfstæðrar vinnu í skólastofunni eða heima meðfram öðru námsefni.
Comic Life er magnaður hugbúnaður sem ég hef lengi haft augastað á en með honum er hægt að setja saman hvers kyns myndaseríur og skapa teiknimyndasögur, leiðbeiningar eða myndrænar frásagnir af hverju sem er. Fram til þessa hefur Comic Life einungis verið til fyrir Apple tölvur en nú hefur Windows útgáfa litið dagsins ljós og [...]
ZoomIt er glettilega handhægur hugbúnaður fyrir alla þá sem nota tölvu með Windows stýrikerfi til kynninga eða kennslu á hugbúnaði eða vefbundinni þjónustu. Eins og nafnið gefur til kynna þá hefur ZooIt það hlutverk helst að stækka allt sem á skjánum birtist en gerir notendum þar að auki kleift að skrifa og teikna yfir skjámyndina [...]
Jing er nafnið á einfaldri en mjög sniðugri blöndu af Snagit og Camtasia hugbúnaðinum vinsæla sem Techsmith fyrirtækið gefur út. Jing var kynnt nýlega og á örugglega eftir að verða vinsæll meðal kennara og jafnvel kerfisstjóra.
Már Örlygsson benti mér nýlega á frábæran vef þar sem finna má fjölda vandaðra hermiforrita til að nota í eðlisfræði. Forritin eru lítil að umfangi og hægt er að vinna með þau í gegnum vefskoðara eða sækja og setja upp á eigin tölvu eða tölvum án endurgjalds. Forritin eru flest skrifuð í java en nokkur [...]
Undanfarnar vikur og mánuði hef ég verið að kynna og kenna á Clicker 5 hugbúnaðinn sem er einstaklega skemmtilegt verkfæri og mikið nota í sérkennslu. Clicker var hannað til þess að styðja við lestur og ritun og er í raun margmiðlunarumhverfi þar sem einfalt er að blanda saman texta, hvers kyns myndum og hljóði. Clicker [...]