Eldra efni: Menntamál

Þeirra heimur - okkar ábyrgð

Skráð 10 February 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Við erum að undirbúa nemendur okkar fyrir störf sem eru ekki til staðar
í dag. Störf sem munu byggja á tækni sem enn hefur ekki verið fundin
upp. Tækni sem miðar að því að leysa vandamál sem við þekkjum ekki sem
vandamál í dag.


Þeirra staður - þeirra stund

Skráð 30 January 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar og mjög áhugaverðrar rannsóknar Demos hafa breskir unglingar tekið upplýsingatækninni fagnandi og fullkomlega samþætt hana daglegu lífi. Meirihluti breskra ungmenna nýtir tæknina til að viðhalda félagslegum tengslum frekar en mynda ný, sækja og senda myndir á Netið og í sumum tilfellum til að smíða eigin vefsíður og jafnvel heilu vefina. Kennurum hefur [...]


Skyggnst inn í framtíð Netbundins náms á háskólastigi

Skráð 10 August 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Ráðgjafaþjónustan Kineo og stórfyrirtækið Intel sameinuðust nýlega í framkvæmd á rannsókn þar sem tilraun varð gerð til þess skyggnast inn í framtíð netbundins náms á háskólastigi. Niðurstöðurnar komu reyndar fæstar á óvart en þetta var ágætist lesning engu að síður. Hér á eftir fara nokkrir punktar með helstu niðurstöðum:
Háskólar og tækni

Aukin samkeppni um nemendur
Menntun er [...]


Ótrúlegur seinagangur við útgáfu á námskrárdrögum í upplýsingatækni

Skráð 03 June 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Á vefnum namsskipan.is birtir menntamálaráðuneytið drög að nýjum námskrám fyrir grunn- og framhaldsskóla vegna breyttrar námskipunar til stúdentsprófs. Drögin eru lögð fram til kynningar hagsmunaaðilum og almenningi eins og þar segir og er kostur gefinn á að gera skriflegar athugasemdir við námskrárnar og koma á framfæri við ráðuneytið í löturpósti eða senda á netfangið namskra@mrn.stjr.is. [...]


Þetta eiga kennarar að kunna!

Skráð 17 March 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Bernie Poole er sérfræðingur á sviði upplýsingatækni í námi og kennslu. Í pistli sem hann skrifar á vefinn Education World greinir hann sex þætti sem hafa með að gera hagnýtingu upplýsingatækninnar og hver einn og einasti kennari á að kunna skil á að hans mati. Það væri gaman að vita, lesendur góðir, hvort þið séuð [...]


Opinn hugbúnaður og Reykjavíkurborg

Skráð 14 February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Salvör Gissurardóttir, kennari við KHÍ, hefur birt gott innlegg í umræðuna um opinn hugbúnað og Reykjavíkurborg á vef sínum Metamorphoses.


Hvers vegna valdi Reykjavíkurborg Blackboard? Svör hafa borist.

Skráð 10 February 2006
1 athugasemd frá lesendum

Sigþór hefur sent mér eftirfarandi svarpóst vegna fyrirspurnar minnar um innleiðingu Blackboard námsstjórnunarkerfisins hjá Reykjavíkurborg og kann ég honum góðar þakkir fyrir það. Ég á eftir að skoða bréf Sigþórs almennilega og mun bíða með viðbrögð þangað til ég hef haft góðan tíma til þess.
Takk fyrir þann áhuga sem þú sýnir framtaki okkar á sviði [...]


Sigþór svarar ekki!

Skráð 09 February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Í dag er nákvæmlega vika liðin frá því ég sendi tölvupóst á Sigþór Örn Guðmundsson, forstöðumann upplýsingatæknideildar Menntasviðs Reykjavíkurborgar og óskaði eftir frekari upplýsingum varðandi kaup borgarinnar á Blackboard námsstjórnunarkerfinu. Sjálfsagt er að geta þess að ég reyndi einnig að ná í Sigþór símleiðis og skildi eftir skilaboð á gsm símanum hans þar sem hann [...]


Auglýst eftir námsskrárdrögum!

Skráð 08 February 2006
Flokkur: Menntamál
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég auglýsi hér með eftir drögum að námskrám grunn- og framhaldsskóla í upplýsingatækni ásamt meðfylgjandi greinargerðum.
Þann 22. desember sl. birti menntamálaráðuneytið á vef sínum fréttatilkynningu undir yfirskriftinni Breytt námsskipan til stúdentsprófs þar sem kynntur var vefurinn namsskipan.is sem hefur að geyma námskrárdrög bæði fyrir grunn- og framhaldsskóla til kynninga og athugasemda. Í tilkynningunni var einnig [...]


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman