Ótrúlegur seinagangur við útgáfu á námskrárdrögum í upplýsingatækni
Á vefnum namsskipan.is birtir menntamálaráðuneytið drög að nýjum námskrám fyrir grunn- og framhaldsskóla vegna breyttrar námskipunar til stúdentsprófs. Drögin eru lögð fram til kynningar hagsmunaaðilum og almenningi eins og þar segir og er kostur gefinn á að gera skriflegar athugasemdir við námskrárnar og koma á framfæri við ráðuneytið í löturpósti eða senda á netfangið namskra@mrn.stjr.is. [...]


