Microsoft Photosynth hefur opnað dyr sínar almenningi og hafa viðtökurnar verið slíkar að loka þurfti þjónustunni um tíma. Fyrir þá sem ekki hafa lesið fyrri skrif mín um Photosynth þá er hér á ferðinni hugbúnaður sem gerir notendum kleift að skoða stafrænar ljósmyndir í tuga eða hundruðatali frá mörgum ólíkum notendum sem tengdar eru saman [...]
BECTA er sú stofnun innan bresku stjórnsýslunnar sem hefur umsjón með og ráðleggur um framkvæmd á stefnu stjórnvalda í upplýsingatækni. Í nýrri skýrslu stofnunarinnar er breskum skólum ráðlagt frá því að uppfæra í Microsoft Vista stýrikerfið og Office 2007 hugbúnaðarsafnið. Ráðleggingarnar eru í samræmi við fyrri niðurstöður BECTA sem birtar voru fyrir ári síðan.
Það er skammt stórra högga á milli í hugbúnaðargeiranum um þessar mundir enda takast risarnir á markaðnum opinberlega á um hylli almennings. Adobe festi fyrir skömmu kaup á netbundnu ritvinnslunni Buzzword og hefur einnig nýlega opinberað beta útgáfu af netbundinni þjónustu sem þeir nefna Share og er vettvangur þar sem notendur geta hýst og deilt [...]
Þrátt fyrir hástemndar yfirlýsingar Microsoft um alþjóðlegar vinsældir OOXML staðalsins í nýlegri fréttatilkynningu sem gefin út var í kjölfar nýafstaðinnar atkvæðagreiðslu á vegum ISO fóru leikar þannig að staðlinum var hafnað um svo kallað “fast track” samþykktarferli. Niðurstaðan hefur í för með sér að OOXML verður að fara í gegnum mun ítarlegra ferli þar sem [...]
Centre for Learning & Performance Technologies sendi nýlega frá sér niðurstöður könnunar um vinsælustu verkfæri 109 sérfræðinga á sviði náms og kennslu. Yfir 400 forrit og vefir voru nefndir til sögunnar og vekur athygli að af 10 mest nefndu verkfærunum eru 8 ókeypis. Vinsælasta verkfærið reyndist Firefox vefskoðarinn sem er opinn hugbúnaður.
Mjög góð þátttaka var á opnum fundi staðlaráðs þar sem til umræðu var annars vegar stofnun tækninefndar í upplýsingatækni og hins vegar umfjöllun og hugsanleg afstaða til ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið, nú í frumafgreiðslu hjá JTC. Á fundinum var samþykkt stofnun tækninefndar, en þegar kom að umfjöllun um ISO/IEC [...]
Að frumkvæði Microsoft á Íslandi hefur verið boðað til opins undirbúningsfundar um stofnun tækninefndar um íslenska þátttöku í JTC1 sem er samstarfsnefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO og Alþjóða raftækniráðsins IEC um stöðlun í upplýsingatækni.
Það er ekki mikið um hátíðarhöld en Microsoft Powerpoint hugbúnaðurinn heldur upp á 20 ára afmæli sitt um þessar mundir. Það er heldur ekki á almanna vitorði að Microsoft var þróað af tveimur mönnum, þeim Robert Gaskins og Dennis Austin. Fyrsta útgáfan kom út árið 1987 fyrir Macintosh. Microsoft keypti svo Forethought fyrirtækið sem var [...]
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar
“ICT in European Schools: A Value and Cost Analysis of Microsoft and Open Source Technology Solutions” er hugbúnaður frá Microsoft betur til þess fallinn að nýta í skólakerfinu en sambærilegir opnir valkostir. Ráðist var í rannsóknina að frumkvæði Microsoft sem einnig kostaði gerð hennar.
Kvikmyndin Pirates of Silicon Valley er ekkert minna en skylduáhorf fyrir alla þá sem hafa áhuga á sögu upplýsingatækninnar. Í myndinni segir á skemmtilegan hátt frá upphafsárum heimilistölvunnar og þeim fjórum einstaklingum sem eiga þar hvað stærstan hlut að máli. Hér á ég við Steve Wozniak, Steve Jobs, Paul Allen og Bill Gates. Ég væri [...]