Multipoint er ný tækni frá Microsoft sem opnar fyrir þann möguleika að tengja fleiri en eina mús við sömu tölvuna. Multipoint (hét áður MultiMouse) var þróað af starfsmönnum við rannsóknarsetur Microsoft á Indlandi og er hugsað til að brúa hina stafrænu gjá með því að auka aðgengi að tölvum þar sem fáar eru til staðar.
MSN samskiptaforritið frá Microsoft er án efa eitt hið vinsælasta sinnar tegundar og sérstaklega er það mikið notað af nemendum á öllum skólastigum, eins og kennarar vafalaust vita. Hitt er minna þekkt, þ.e. sá möguleiki MSN að heimila notanda að taka yfir stjórn á tölvu tengiliðar t.a.m. með það í huga að aðstoða hann eða [...]
Stærstu fréttirnar í heimi opins hugbúnaðar um þessar mundir er nýboðað samstarf Novell og Microsoft. Tímamót fullyrða fyrirtækin - ekki pappírsins virði samkvæmt Groklaw og Software Freedom Law Center. Ég treysti hinum síðarnefndu betur.
Internet Explorer 7 lítur dagsins ljós - viðtökur blendnar.
Microsoft hefur gert heyrikunnugt að nýjasta kynslóð Internet Explorer vefskoðarans, þ.e. Internet Explorer 7, verði fullbúin og aðgengileg Windows notendum nú í októbermánuði. Netverjar hafa þegar fengið tækifæri til þess að kynna sér nýju útgáfuna á ýmsum vinnslustigum og þrátt fyrir fjölmargar nýjungar og endurbætur hafa viðtökurnar á heildina verið lítt uppörvandi fyrir Microsoft.
Ég vil [...]
Windows Live Writer er nýr hugbúnaður sem einfaldar bloggurum lífið með því að gera þeim kleift að skrá færslur í einföldu ritvinnsluumhverfi og senda síðan á Netið þegar þær eru fullbúnar. Live Writer styður við Windows Live Spaces bloggþjónustuna en einnig aðrar algengar þjónustur eins og Wordpress, TypePad, Blogger, LiveJournal og fleiri.
Á myndinni hér [...]
“Data bars” nefnist nýr og alveg stórsniðugur möguleiki í Excel 2007 sem Microsoft leggur nú allt kapp á að klára. “Data bars” er sérlega einfalt í notkun og gerir notendum Excel kleift að setja fram tölfræðilegar stærðir á myndrænan hátt innan einstakra reita. Það má orða þetta svo að verið sé að setja lítil gröf [...]
Microsoft Live Labs og fjöldi samstarfsaðila eru að vinna að mögnuðum hugbúnaði sem gerir notendum kleift að skoða hefðbundnar ljósmyndir frá mörgum ólíkum notendum sem tengdar eru saman í þrívíddarumhverfi.
101 hugmynd fyrir nýjungagjarna kennara er áhugaverður bæklingur/bók frá Microsoft sem hægt er að sækja án endurgjalds á pdf sniði. Frekari upplýsingar á Menntagátt.
Tölvuheimur segir frá nýrri herferð Microsoft til kynningar á forritinu OneNote, sem hannað er til að einfalda notendum að safna saman á einum stað ólíkum gögnum um ákveðin málefni.