Niðurstöður árlegrar könnunar á vegum “The American Association of Community College’s Instructional Technology Council (ITC)” gefa til kynna stóraukna markaðshlutdeild Moodle námsumhverfisins meðal héraðsháskóla (Community College) meðan vinsældir Blackboard fara þverrandi á þeim bæjum.
Moodle fær glæsilegan vitnisburð í spánnýrri könnun ElearningGuild þar sem m.a. var reynt að meta ánægju notenda með netbundin námsumhverfi. Þátttakendur í rannsókninni voru rúmlega 2300. Í rannsókninni fær Moodle hugbúnaðurinn mun betri dóma en aðrar og dýrkeyptari lausnir sem innleiddar hafa verið m.a. við íslenska skóla. Hér má nefna bæði Angel og Blackboard/WebCT.
Í dag er alþjóðlegur dagur frjáls hugbúnaðar. Markmiðið með deginum er að upplýsa almenning um mikilvægi frjáls og opins hugbúnaðar og kosti og gríðarlegt magn vandaðs hugbúnaðar sem stendur öllum sem áhuga hafa til boða án leyfisgjalda. Frjáls og opinn hugbúnaður er sérstaklega mikilvægur í akademísku starfi þar sem fjársveltir skólar þurfa á öllu sínu [...]
Ég verð með innlegg á námsstefnunni Leiðir til árangurs sem haldin verður þann 17. ágúst nk. í Kennaraháskóla Íslands. Á námsstefnunni verður fjallað um það helsta sem er í boði á sviði kennslu og kennslugagna fyrir leikskóla og yngsta stig grunnskóla með sérstakri áherslu á sérkennslu. Ég mun fjalla um opnar lausnir í skólastarfi og [...]
Í Netlu, vefriti Kennaraháskólans, má nú finna fyrsta hluta af þremur í greinaflokki eftir mig sem ég nefni Opnar lausnir. Í flokknum er fjallað um frjálsan og opinn hugbúnað og tekist á við þá spurningu hvaða hlutverki hann hafi að gegna í nútímaskólastarfi.
Í nýrri og mjög ítarlegri skýrslu eLearning Guild, Report on Learning Management Systems (LMS) kemur berlega í ljós að notkun Moodle einskorðast ekki við hið akademíska umhverfi heldur nýtur lausnin mikilla vinsælda innan smærri og meðalstórra fyrirtækja.
Umfangsmiklum prófunum á nýjustu útgáfunni af Moodle námsumhverfinu, Moodle 1.8, er nú lokið. Mælt er með því að notendur uppfæri vefi sína yfir í hina nýju útgáfu.
Idahoe State University nýtir WebCT 4.0 námsumhverfið, en þar sem stuðningur Blackboard/WebCT við þá útgáfu rennur út í júlí 2008 eru skólastjórnendur farnir að huga að uppfærslu. Í þessari stöðu væri sjálfsagt að uppfæra í útgáfu 6.0 af WebCT en sökum umfangs slíkrar uppfærslu hefur verið ákveðið að kanna aðra möguleika í stöðunni, þ.e. önnur [...]
Það er skemmst frá því að segja að árið 2006 hefur reynst Moodle ákaflega gjöfult. Moodle hefur verið mikið í fjölmiðlum á árinu enda frá miklu að segja. Hér er stutt samantekt um það helsta sem vakti athygli mína á árinu:
University of California, Los Angeles er án nokkurs vafa einn af virtustu háskólum Bandaríkjanna enda fær enginn bandarískur háskóli fleiri umsóknir um námsvist á hverju ári. Hún er því eftirtektarverð sú ákvörðun stjórnenda UCLA að velja Moodle sem netbundið námsumhverfi skólans.