Teikn (e. icons) eru smáar táknmyndir sem m.a. eru notaðar á vefsíðum, í stýrikerfum og hnappastikum í hvers kyns hugbúnaði. Víðsvegar um Netið má finna vönduð söfn af teiknum sem gefin eru út samkvæmt opnum leyfisskilmálum og því heimilt að nýta með ákveðnum fyrirvörum. Nýlega var opnuð sérhæfð leitarvél sem nefnist Iconfinder og leitar einungis [...]
Þann 15. júní sl. opnaði Wellcome myndasafnið dyr sínar netverjum og geta nú allir sem áhuga hafa sótt þangað fjölbreytt úrval myndefnis sem snertir sögu mannkyns og líf- og læknisfræði.
Tux í öllum stærðum og gerðum. Einfaldlega snilld.
Flickr hópar (groups) eru stórskemmtileg leið fyrir fámenna jafnt sem fjölmenna hópa áhugasamra ljósmyndara að safna saman og deila myndum af nánast hverju sem er. Ég hef enga hugmynd um hversu margir slíkir hópar fyrirfinnast á Flickr en margir eru þeir.
Hópar geta verið annað hvort almennir (public) og lokaðir (private). Ég eyddi smá tíma nýlega [...]
Ég nota mikið af stafrænum ljósmyndum og teikningum hverskonar í starfi mínu sem kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og einnig við hönnun á markaðs- og kynningarefni fyrir hugbúnaðarfyrirtækið Hug hf. Við öflun mynda hef ég um tvær leiðir að velja. Ég leitað eftir myndum og keypt á einhverjum af fjölmörgum myndabönkum Netsins eða ég get [...]
Í dag, 24. apríl, er haldið upp á 16 ára afmæli Hubble geimsjónaukans. Í tilefni dagsins bendi ég á að hægt er að sjá og sækja mikilfenglegar myndir og myndskeið úr geimnum á vef Hubble.
Biblical Art vefurinn er frábær leið til þess að finna kristilegt myndefni á Netinu.