Zoomorama er nýr vettvangur á Netinu til að hýsa og setja fram myndefni, þ.e. ljósmyndir, teikningar og jafnvel myndskeið af YouTube. Ólíkt Flickr, Smugmug og öðrum álíka þjónustum sem hýsa ljósmyndir þá er Zoomorama öðru fremur skemmtileg leið til framsetningar á efni.
VoiceThread er nýtilkomin þjónusta á Netinu sem gerir notendum kleift að setja saman og birta myndasyrpur með tali og texta. VoiceThread er eins og hannað fyrir kennara og nemendur sem vilja gera skapandi og skemmtilega hluti með ljósmyndir eða teikningar.
Splashr er frábær leið til að birta Flickr myndir á Netinu, hvort sem ætlunin er að sýna kunningjum eða fjölskyldumeðlimum myndir úr sumarfríinu eða birta verk nemenda.
Tabblo er áhugaverð vefþjónusta þar sem notendur geta hýst og sýslað með myndir ekki ósvipað og fjölmargar viðlíka þjónustur sem þegar hafa náð ágætri fótfestu á Netinu, s.s. Flickr, SmugMug eða Zoto svo fátt eitt sé nefnt. Tabblo sker sig hins vegar úr fjöldanum hvað framsetningar mynda og möguleikum notenda á því að raða saman [...]
Slide er ansi sniðug þjónusta sem gerir notendum kleift að setja saman og birta einfaldar myndasýningar sem helst má lýsa sem gagnvirkum myndrenningum. Myndasýningar þessar er hægt að birta á vefsíðu, á skjáborði viðkomandi notanda eða sem skjáhvíli (screensaver). Slide er félagslegur vettvangur að því leitinu til að notendur geta stofnað hópa, deilt myndasýningum og [...]
Skólar, kennarar eða áhugasamir nemendur sem vilja birta myndir af viðburðum eða eigin verkum á aðgengilegan og skemmtilegan hátt á Netinu ættu tvímælalaust að kynna sér Photofolio. Photofolio er vandað flash myndaalbúm sem einfalt er að setja upp á vefþjón og heimilt að nýta án endurgjalds.
Ég prufaði að setja upp Photofolio á vefþjón sem [...]