Flickr hópar (groups) eru stórskemmtileg leið fyrir fámenna jafnt sem fjölmenna hópa áhugasamra ljósmyndara að safna saman og deila myndum af nánast hverju sem er. Ég hef enga hugmynd um hversu margir slíkir hópar fyrirfinnast á Flickr en margir eru þeir.
Hópar geta verið annað hvort almennir (public) og lokaðir (private). Ég eyddi smá tíma nýlega [...]
Tabblo er áhugaverð vefþjónusta þar sem notendur geta hýst og sýslað með myndir ekki ósvipað og fjölmargar viðlíka þjónustur sem þegar hafa náð ágætri fótfestu á Netinu, s.s. Flickr, SmugMug eða Zoto svo fátt eitt sé nefnt. Tabblo sker sig hins vegar úr fjöldanum hvað framsetningar mynda og möguleikum notenda á því að raða saman [...]
Ég nota mikið af stafrænum ljósmyndum og teikningum hverskonar í starfi mínu sem kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og einnig við hönnun á markaðs- og kynningarefni fyrir hugbúnaðarfyrirtækið Hug hf. Við öflun mynda hef ég um tvær leiðir að velja. Ég leitað eftir myndum og keypt á einhverjum af fjölmörgum myndabönkum Netsins eða ég get [...]
Hugtakið Machinima er samsett úr ensku orðunum „machine“ og „cinema“ og lýsir frumlegri tegund stafrænnar listsköpunar þar sem notast er við tækni úr heimi nútíma tölvuleikja við samsetningu teiknimynda. Machinima er skapandi samruni tölvuleikja og kvikmynda; nýstárlegt og kraftmikið listform sem á uppruna sinn að rekja til nútíma leikjamenningar, teiknimynda og [...]
Slide er ansi sniðug þjónusta sem gerir notendum kleift að setja saman og birta einfaldar myndasýningar sem helst má lýsa sem gagnvirkum myndrenningum. Myndasýningar þessar er hægt að birta á vefsíðu, á skjáborði viðkomandi notanda eða sem skjáhvíli (screensaver). Slide er félagslegur vettvangur að því leitinu til að notendur geta stofnað hópa, deilt myndasýningum og [...]
Í kjölfar síaukinna vinsælda stafrænna myndavéla hefur þeim fjölgað mjög sem kjósa að geyma fjölskyldumyndirnar á tölvum sínum í stað hefðbundinna myndaalbúma.
Gæði stafrænna mynda hafa einnig aukist til muna og notkun á myndavélunum orðin einfaldari. Helst gallinn er sá að nú er svo auðvelt og ódýrt að taka myndir að áður en nokkur gerir sér [...]
Biblical Art vefurinn er frábær leið til þess að finna kristilegt myndefni á Netinu.
Konur okkar tíma. Frábær mynda- og upplýsingavefur National Portrait Gallery um áhrifakonur á tuttugustu öldinni.
Frábærar myndir frá Íslandi á Flickr.
Maplecroft maps er sérlega notadrjúgur kortavefur sem gagnast getur nemendum og kennurum í kennslugreinum sem hafa lítið sem ekkert með hreina landafræði að gera, ef eitthvað slíkt er þá til. Því Maplecroft maps birtir ekki landfræðilegar upplýsingar einar saman heldur er hægt að kalla þar fram myndrænar framsetningu á gögnum sem snerta félagsleg málefni, hagfræðileg, [...]