Á Netinu má auðveldlega finna fjölda vandaðra heimildarmynda og fréttaskýringaþátta sem framtaksamir kennarar geta nýtt sér í kennslu á framhalds- og háskólastigi. Hér tíni ég til nokkrar myndir sem vakið hafa sérstakan áhuga minn.
Zoomorama er nýr vettvangur á Netinu til að hýsa og setja fram myndefni, þ.e. ljósmyndir, teikningar og jafnvel myndskeið af YouTube. Ólíkt Flickr, Smugmug og öðrum álíka þjónustum sem hýsa ljósmyndir þá er Zoomorama öðru fremur skemmtileg leið til framsetningar á efni.
Jing er nafnið á einfaldri en mjög sniðugri blöndu af Snagit og Camtasia hugbúnaðinum vinsæla sem Techsmith fyrirtækið gefur út. Jing var kynnt nýlega og á örugglega eftir að verða vinsæll meðal kennara og jafnvel kerfisstjóra.
Hin margverðlaunaða kanadíska heimildamynd “The Corporation” er nú öllum opin og aðgengileg á kvikmyndavef Google, Google Video. Myndin er frá árinu 2003 og fjallar á miskunarlausan hátt um valdamikil hlutafélög samtímans og greinir hegðun þeirra eins og um væri að ræða einstaklinga af holdi og blóði, sem þau reyndar eru samkvæmt laganna bókstaf.
Google er ekki eitt fyrirtækja um þann skemmtilega sið að bjóða reglulega til sín rithöfundum, fræðimönnum, listafólki og jafnvel stjórnmálamönnum með stutta fyrirlestra um sérsvið sitt eða málefni líðandi stundar. Ólíkt flestum öðrum þá hefur Google gert þessar uppákomur aðgengilega okkur hinum undir fyrirsögninni @Google Talks rásinni á Youtube.
Einelti er sorgleg staðreynd og það á sér stað í innan veggja skólastofa og utan þrátt fyrir allar aðgerðir, boð og bönn. Með tilkomu farsíma og Netsins hefur einelti tekið á sig enn fleiri myndir en samkvæmt niðurstöðum könnunar sem birtar eru á vef Olweusarverkefnisins hafa yfir 50% stúlkna sem orðið hafa fyrir einelti orðið [...]
Kvikmyndin Pirates of Silicon Valley er ekkert minna en skylduáhorf fyrir alla þá sem hafa áhuga á sögu upplýsingatækninnar. Í myndinni segir á skemmtilegan hátt frá upphafsárum heimilistölvunnar og þeim fjórum einstaklingum sem eiga þar hvað stærstan hlut að máli. Hér á ég við Steve Wozniak, Steve Jobs, Paul Allen og Bill Gates. Ég væri [...]
Hér er enn eitt magnað myndskeið sem á erindi við alla kennara á öllum skólastigum. Í þettað skiptið er viðfangsefnið upplýsingatæknin og skólastarf. Það er 8 tæplega 8 mínútna langt og hverrar sekúndu virði.
Teachertube er safn stuttra myndskeiða sem kennarar geta nýtt í kennslu. Eins og nafnið gefur til kynna er hér á ferðinni enn ein útgáfan af Youtube og sambærilegum vefjum nema hvað áherslan er öll notagildi myndskeiðanna í námi og kennslu.
Bloggarar hafa kosið myndskeiðið vinsæla “The Machine is Us/ing Us” besta myndskeiðið á Netinu sem á einn eða annan hátt má tengja námi og kennslu. Þessi óformlega viðurkenning er afrakstur einstaklega skemmtilegs framtaks fjögurra bloggara sem allir skrifa um skólastarf og óskuðu eftir ábendingum frá lesendum um áhugaverð myndskeið.