“Revolution OS”
Í heimildamyndinni Revolution OS er rakin saga fráls og opins hugbúnaðar frá sjónarhóli þeirra sem tóku virkan þátt í að móta hana, manna eins og Linus Torvalds, Eric S. Raymond, Richard Stallman og Bruce Perens.
Upplýsingatækni í námi og kennslu
Í heimildamyndinni Revolution OS er rakin saga fráls og opins hugbúnaðar frá sjónarhóli þeirra sem tóku virkan þátt í að móta hana, manna eins og Linus Torvalds, Eric S. Raymond, Richard Stallman og Bruce Perens.
Michael Wesch aðstoðarprófessor við ríkisháskólann í Kansas hefur gefið út á Netinu vandaða stuttmynd þar sem hann gerir tilraun til þess að útskýra Web 2.0 hugtakið og gera grein fyrir nokkrum þeim hugmyndum sem liggja því til grundvallar. Stuttmyndin nefnist The Machine is Us/ing Us og á erindi við alla sem nýta sér Netið í [...]
“Digital students @ Analog Schools” nefnist áhrifamikil stuttmynd Consuelo Molina þar sem hún fjallar um skólastarf og kennslu og hvernig skólastofnunum hefur mistekist að móta sig í takt við nútíma samfélag. Smelltu hér til að opna myndina á Quicktime sniði.
Ef eitthvað er að marka þá nemendur sem tjá sig í stuttmynd Molina þá er augljóst [...]
Mjög áhugaverð kanadísk heimildamynd um ólöglega dreifingu tónlistar á Netinu og fjölbreyttar skoðanir fólks um afleiðingar þess fyrir tónlistariðnaðinn.
Um það bil 20% af c.a. 10. milljón myndum í safni LIFE tímaritsins eru nú aðgengilegar á Google. Ætlunin er að færa allt safnið yfir á stafrænt snið.
Google hefur kynnt til sögunnar nýja útgáfu af Sketchup þrívíddar teikniforritinu. Fullt af spennandi nýjungum eins og við mátti búast.
Norræn ráðstefna um UT og fjarnám í háskólanámi verður haldin kl. 9-16 í Öskju í HÍ þann 1. desember nk.
Fimmtudaginn, 6. nóv. hófst ráðstefnan Pikslaverk (http:// www.pikslaverk.org) þar sem fjallað verður um þá nýbreytni listamanna að notast við tölvur og forritun í listsköpun sinni frá ýmsum hliðum.