Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar hefur sett saman handbók um notkun opna teikniforritsins Paint.net. Líkt og Paint.net hugbúnaðurinn þá er handbókin er öllum opin og aðgengileg án endurgjalds.
Picasa er vinsæll hugbúnaður, enda ókeypis verkfæri (í boði Google) til þess að skipuleggja og halda markvisst utan um stafræn myndasöfn í tölvum Windows eða Linux notenda. Picasa inniheldur auk þess fjölmörg verkfæri til einfaldrar myndvinnslu og lagfæringa á ljósmyndum.
Sjálfur nota ég Picasa til þess að halda utan um stafræna myndasafnið í tölvunni minni en [...]
Eins og margir vita er Flickr eitt vinsælasta netsamfélag Netheima þar sem sýslað er með ljósmyndir, teikningar og annað myndrænt efni. Flickr er enda einfalt í notkun og öflugt mjög hvort sem ætlunin er að hýsa þar heimilis albúmið, myndir úr bekkjarstarfinu eða myndasafn skólans í heild sinni.
Flickr er ein af fjölmörgum netbundnum þjónustum sem [...]