Undanfarin ár hef ég kennt áfanga í margmiðlun við FB þar sem meginviðfangsefnið er Flash hugbúnaðurinn frá Adobe (áður Macromedia). Í áfanganum sem er hluti af ut-braut skólans er áhersla lögð á kennslu og þjálfun í Actionscript forritunarmálinu og til að gera hann sem allra áhugaverðastan og virkja nemendur sem best forritum við leiki.
David A. Wiley, dósent við ríkisháskólann í Utah og stjórnandi Center for Open and Sustainable Learning stofnunarinnar við sama skóla, birti fyrir stuttu drög að nýjum áfanga sem hann nefnir “INST 7150 Introduction to Open Education”. Áfangaheitið mætti þýða á íslensku sem “Inngangur að opnu námi” og satt best að segja þá líst mér vel [...]
Fróðleg grein á vef Scientific American um rannsóknir á snilligáfu og námi og hugsanleg tengsl þarna á milli.
Kennaraháskólinn auglýsir nú umsóknir um nám í framhaldsdeild haustið 2006. Ég vil vekja sérstaka athygli á námi í tölvu- og upplýsingatækni, en meginmarkmiðið með þeirri námsleið er að mennta frumkvöðla sem geta stuðlað að bættri nýtingu tölva- og upplýsingatækni í skólastarfi.
Áherslur í náminu eru sem hér segir:
Uppbyggingu námssamfélags sem einkennist af góðum anda, trausti, [...]
Bernie Poole er sérfræðingur á sviði upplýsingatækni í námi og kennslu. Í pistli sem hann skrifar á vefinn Education World greinir hann sex þætti sem hafa með að gera hagnýtingu upplýsingatækninnar og hver einn og einasti kennari á að kunna skil á að hans mati. Það væri gaman að vita, lesendur góðir, hvort þið séuð [...]
Ný útgáfa af náms- og samskiptakerfinu ELGG var opinberuð þann 23. janúar sl. Um er að ræða viðamikla uppfærslu sem hefur að geyma margvíslegar endurbætur ásamt spennandi nýjungum. ELGG er einstaklingsbundið námsumhverfi þar sem markmiðið er að skapa notendamiðaðan, félagslegan vettvang sem samþættir lausnir eins og vefdagbækur (blogg), ferlimöppur (e-portfolios) og wiki. ELGG er ekki [...]
Í vetur kenni ég stafræna myndvinnslu við UT-braut Fjölbrautaskólans í Breiðholti eins og svo oft áður. Kennslan í ár verður hins vegar með dálítið öðru sniði en venjulega þar tímum í töflu hefur verið fækkað gegn meiri sjálfstæðri vinnu nemenda á Netinu. Að sjálfsögðu nýti ég Moodle námsstjórnunarkerfið sem er undirstaða kennsluvef skólans, sem finna [...]
Nú styttist óðum í að BETT 2006 upplýsingatæknisýningin hefjist, en hún mun standa yfir dagana 11. - 14. janúar nk í Olympía höllinni í London. Það er alltaf gaman að koma á BETT en sýningin verður sérstaklega áhugaverð þetta árið í mínum huga [...]
Terry Anderson við Athabasca háskólann í Kanada flutti mjög áhugaverðan fyrirlestur (ath. pdf skjal) á árlegri ráðstefnu “Open and Distance Learning Association of Australia” í nóvembermánuði síðasta árs. Í fyrirlestrinum, sem hann nefndi “Distance learningt - Social software’s killer ap?”, fjallaði Anderson um félagslegan hugbúnað (social software) og þá ótalmörgu spennandi möguleika sem slíkur hugbúnaðar [...]
Podcasting er stafræn upptaka af útvörpuðu efni, s.e. útvarpsþætti, viðtali, fyrirlestri eða hvers kyns öðru hljóðrænu efni sem gert er aðgengileg á Netinu til notkunar á stafrænum spilurum. Orðið “Podcasting” varð til í tengslum við hina vinsælu iPod mp3 spilara frá Apple, en [...]