Skráð 31 December 2005
Flokkur:
Elgg,
Fjarnám,
Moodle,
Nám,
Opinn hugbúnaður,
Vefrænt,
Wiki,
blogg,
edublog,
elearning 2.0,
web 2.0
Elgg er að mínu viti eitt mest spennandi þróunarverkefni sem verið er að vinna að um þessar mundir á sviði hagnýtra netsamfélaga í námi og kennslu. Hönnuðir Elgg, þeir Ben Wedmuller og David Tosh, nota orðið “Learning landscape” yfir sköpunarverk sitt, sem beinast liggur við að þýða sem námslandslag á íslensku, en aðrar hugmyndir eru [...]
Flickr (www.flickr.com) er án efa vinsælasta netsamfélagið (social network) í dag þar sem sérstaklega er sýslað með myndir. Flickr er enda kjörin leið fyrir alla þá sem vilja hýsa og gera aðgengilegar hvers kyns myndir á Netinu án mikils tilkostnaðar og skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða persónulegar ljósmyndir, teikningar eða annað myndrænt efni. En Flickr býður auk þess upp á fjölda áhugaverðra möguleika sem m.a. gera kerfið að mjög öflugum samvinnuvettvangi í námi og kennslu.
Föstudaginn 30. desember kl. 10:00 verður Salvör Gissurardóttir með netfyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands Í þessum fyrirlestri verður skoðað hvernig ný tegund af samvinnu og ritun ryður sér til rúms með wiki.
Menntamálaráðuneytið hefur opnað vefin www.namsskipan.is þar sem birt eru drög að endurskoðuðum aðalnámskrám fyrir bæði grunn- og framhaldsskóla. Námskrárnar eru lagðar fram sem drög til kynningar og athugasemda. Stutt greinargerð fylgir hverri námskrá þar sem gerð er grein fyrir helstu breytingum frá gildandi [...]
Niðurstöður nýlegrar könnunar Háskólans í Chicago þar sem rannsökuð voru áhrif hins svo kallaða “E-Rate” verkefnis sem ætlað var að reyna að brúa stafrænu gjánna milli skóla í Bandaríkjunum benda til þess að aðgengi að Netinu hafi engin áhrif á námsárangur.
Þrátt fyrir að [...]