Eldra efni: Námsstjórnunarkerfi

Blackboard lögsækir Desire2Learn

Skráð 04 August 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Blackboard hefur lagt fram kæru á hendur Desire2Learn fyrirtækinu sem stendur að þróun og sölu á samnefndu námsstjórnunarkerfi sem notið hefur töluverðra vinsælda í Bandaríkjunum undanfarin ár. Lögsóknin kemur beint í kjölfar umfangsmikils einkaleyfis Blackboard í Bandaríkjunum á hefðbundinni virkni námsstjórnunarkerfa (LMS/CMS). Einkaleyfið þykir afar vafasamt svo ekki sé fastar að orði kveðið en segja [...]


Moodle 1.6 lítur brátt dagsins ljós - og það á íslensku!

Skráð 17 June 2006
1 athugasemd frá lesendum

Marting Dougiamas, upphafsmaður Moodle námsstjórnuarkerfisins, hefur nýlokið uppfærslu á Moodle.org heimahöfn Moodle á vefnum yfir í nýjustu útgáfu hugbúnaðarins, þ.e. útgáfu 1.6. Hin nýja útgáfa boðar nokkur tímamót fyrir Moodle notendur og er frekar viðamikil þrátt fyrir að útgáfunúmerið gefi annað til kynna.
Ein viðamesta breytingin í útgáfu 1.6 mun reyndar vekja litla eftirtekt hjá langflestum [...]


Prófaðu Moodle 1.6

Skráð 02 April 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Útgáfa 1.6 af Moodle námsstjórnunarkerfinu er nú aðgengileg í betaútgáfu á vefnum www.moodle.org. Útgáfan inniheldur fjölda spennandi nýjunga ásamt margvíslegum lagfæringum og leiðréttingum. Útgáfan er uppfærð daglega og athygli er vakin á því að betaútgáfur hugbúnaðar eru fyrst og fremst gefnar út í því skyni að uppræta allar villur sem enn kunna að vera til [...]


Einstaklingsbundið námsumhverfi - persónubundið nám

Skráð 26 March 2006
1 athugasemd frá lesendum

Einstaklingsbundið námsumhverfi er þýðing á enska hugtakinu “Personal learning environment” eða PLE eins og það er skammstafað. Einstaklingsbundið námsumhverfi samþættir persónuleg og fagleg áhugasvið ótilgreinds fjölda notenda með það að markmiðið að skapa félagslegan vettvang á Netinu þar sem einstaklingurinn er í fyrirrúmi. Einstaklingsbundið námsumhverfi er opinn og skapandi vettvangur sem styður við formlegt og [...]


Platform for change

Skráð 19 March 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Platform for change - stutt en áhugaverð grein í Times Educational Supplement um notkun námsstjórnunarkerfa. Auðvitað er Moodle þar í aðalhlutverki.


Opnar lausnir – læstar dyr

Skráð 12 March 2006
2 athugasemdir frá lesendum

Ég er áhugamaður um opinn hugbúnað. Höfum það alveg á hreinu. Hugmyndafræðin, heimspekin og aðferðafræðin við þróun opins hugbúnaðar höfðar alveg sérstaklega til mín eins og svo fjölmargra annara. Kannski er það mannlegi þátturinn sem heillar mig svo, öll þessi óteljandi samfélög notenda þar sem ólíkustu einstaklingar sameinast um lausn hinna fjölbreyttustu viðfangsefna. Ef til [...]


Hvers vegna valdi Reykjavíkurborg Blackboard? Svör hafa borist.

Skráð 10 February 2006
1 athugasemd frá lesendum

Sigþór hefur sent mér eftirfarandi svarpóst vegna fyrirspurnar minnar um innleiðingu Blackboard námsstjórnunarkerfisins hjá Reykjavíkurborg og kann ég honum góðar þakkir fyrir það. Ég á eftir að skoða bréf Sigþórs almennilega og mun bíða með viðbrögð þangað til ég hef haft góðan tíma til þess.
Takk fyrir þann áhuga sem þú sýnir framtaki okkar á sviði [...]


Sigþór svarar ekki!

Skráð 09 February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Í dag er nákvæmlega vika liðin frá því ég sendi tölvupóst á Sigþór Örn Guðmundsson, forstöðumann upplýsingatæknideildar Menntasviðs Reykjavíkurborgar og óskaði eftir frekari upplýsingum varðandi kaup borgarinnar á Blackboard námsstjórnunarkerfinu. Sjálfsagt er að geta þess að ég reyndi einnig að ná í Sigþór símleiðis og skildi eftir skilaboð á gsm símanum hans þar sem hann [...]


Letting Pedagogy Transform LMS

Skráð 08 February 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Letting Pedagogy Transform Learning Management Systems. Mjög áhugaverður 42 mínútna fyrirlestur um Moodle frá Educause 2005 ráðstefnunni.


Reykjavíkurborg ákveður að innleiða Blackboard námsstjórnunarkerfið í grunnskóla borgarinnar

Skráð 02 February 2006
4 athugasemdir frá lesendum

Samkvæmt frétt á vef Reykjavíkurborgar frá 11. janúar sl. hefur Menntasvið borgarinnar samið við fyrirtækið Blackboard um kaup á samnefndu námsstjórnunarkerfi fyrir grunnskóla borgarinnar. Stefnt er að því að innleiða kerfið nú í vor og gangsetja þegar í byrjun sumars.
Ákvörðunin um kaup á Blackboard kerfinu var tekin í kjölfar úttektar upplýsingatæknideildar sem tók víst hálft [...]


Google kynnir Sketchup 7

  • Áhugavert

  • Gagn og gaman

    • Sýnishorn af ArtScope listsjánni

    • Sýnishorn af Yosemite myndinni

    • Sýnishorn af sólarmynd