Diigo tengslanetið hefur notið jákvæðrar umfjöllunar netverja síðustu vikur og mánuði og þykir m.a. koma að góðum notum við söfnun og miðlun gagna hvort sem það er í persónulegum tilgangi eða faglegum. Ég ákvað láta reyna á þessa þjónustu og verð að segja að mér líst bara nokkuð vel á.
Gríðarlegur vöxtur opinna netsamfélaga á við Facebook eða Myspace og samskiptalausna eins og MSN eða jafnvel SMS hafa skapað algjörlega nýjan vettvang til samskipta nemenda og kennara á Netinu. Í kjölfarið hafa vaknað áleitnar spurningar um eðlilegan samgang nemenda og kennara á slíkum vefjum og í það minnsta breskum stjórnvöldum finnst full ástæða til að [...]
Kathy Sierra er kunn af góðu einu. Hún er forritari, fyrirlesari, annar skapari hinna vinsælu Head First tölvubóka og þar að auki öflugur og vinsæll bloggari. Vefur hennar Creating Passionate Users er einn fjölmargra vefja sem ég fylgist vel með og les reglulega mér til bæði ánægju og fróðleiks. Í síðari hluta marsmánaðar þessa árs [...]