Í dag er alþjóðlegur dagur frjáls hugbúnaðar. Markmiðið með deginum er að upplýsa almenning um mikilvægi frjáls og opins hugbúnaðar og kosti og gríðarlegt magn vandaðs hugbúnaðar sem stendur öllum sem áhuga hafa til boða án leyfisgjalda. Frjáls og opinn hugbúnaður er sérstaklega mikilvægur í akademísku starfi þar sem fjársveltir skólar þurfa á öllu sínu [...]
Scribd er vefur þar sem hver sem áhuga hefur getur hlaðið inn hvers kyns stafrænu efni, s.s. ritvinnsluskjölum, myndum eða glærukynningum og gert öllum aðgengilegt á flash sniði á Netinu. Scribd svipar mjög til Slideshare nema hvað efnið takmarkast ekki við Powerpoint eða Impress (Open Office) skjöl.
Teikniforritin Paint.net og Artweaver, sem ég hef áður fjallað um á þessum vef, hafa bæði verið gefin út í nýjum útgáfum. Paint.net er komið út í útgáfu 3.0 (reyndar ekki endanleg) og Artweaver hefur verið uppfært í útgáfu 0.42.
Paint.net er hefðbundið myndvinnsluforrit sem inniheldur flestar algengustu skipanir sem finna má í Photoshop, einum þeim öflugasta [...]
Frændi minn Hörður heimsótti mig um daginn, sem er svo sem ekki frásögu færandi nema hvað með honum í för var fartölva nokkur sem var illa farin eftir skæða árás vírusa, njósnahugbúnaðar og annarrar óværu rafræns eðlis. Fartölvueigandinn bar sig að vonum illa en upphaf innrásarinnar má rekja til skilaboða á MSN sem fóru eins [...]
13. tölublað af “Free Software Magazine” er komið út. Tímaritið er aðgengilegt án endurgjalds (á pdf sniði) á vefnum www.freesoftwaremagazine.com. Ath. skráningar er krafist.
Google hefur opinberað enn eina nýja þjónustu og í þettað skiptið er um að ræða Netbundna glósubók sem gengur undir nafninu Google Notebook. Google Notebook er viðbót við Internet Explorer eða Firefox vafrann sem gerir notendum kleift að safna saman og halda til haga á einum stað textabútum og myndum af Netinu. Google Notebook er [...]
Ég nota mikið af stafrænum ljósmyndum og teikningum hverskonar í starfi mínu sem kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og einnig við hönnun á markaðs- og kynningarefni fyrir hugbúnaðarfyrirtækið Hug hf. Við öflun mynda hef ég um tvær leiðir að velja. Ég leitað eftir myndum og keypt á einhverjum af fjölmörgum myndabönkum Netsins eða ég get [...]
Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst tækifæri á því að eignast úrvals hugbúnað til þrívíddarteikninga endurgjaldslaust og það á fullkomlega löglegan hátt. Svo er hins vegar reyndin með Google Sketchup, þrívíddarteikniforritið vinsæla sem nú er hægt að sækja í ókeypis útgáfu.
Sketchup kom fyrst á markaðinn árið 2001 og hefur frá þeim tíma [...]
Microsoft hefur tilkynnt að frá og með 19. þessa mánaðar verða allar Express útgáfur af Visual Studio 2005, þróunar- og forritunartólunum, aðgengilegar án endurgjalds. Þetta á m.a. við Visual Basic, Visual C#, Visual J#, Visual
C++, and Visual Web Developer Express. Góðar fréttir fyrir þá sem nota þessi verkfæri við kennslu í forritun.
Joomla er öflug hugbúnaðarlausn fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á því að koma sér upp vef og viðhalda honum á sem einfaldastan hátt. Joomla er gefið út samkvæmt leyfisskilmálum GNU/GPL og er því öllum frjálst að sækja hugbúnaðinn, aðlaga, dreifa og nýta án endurgjalds. Skólastjórnendur, kerfisstjórar og aðrir sem koma að upplýsingatæknimálum [...]