Það er skammt stórra högga á milli í hugbúnaðargeiranum um þessar mundir enda takast risarnir á markaðnum opinberlega á um hylli almennings. Adobe festi fyrir skömmu kaup á netbundnu ritvinnslunni Buzzword og hefur einnig nýlega opinberað beta útgáfu af netbundinni þjónustu sem þeir nefna Share og er vettvangur þar sem notendur geta hýst og deilt [...]
Að frumkvæði Microsoft á Íslandi hefur verið boðað til opins undirbúningsfundar um stofnun tækninefndar um íslenska þátttöku í JTC1 sem er samstarfsnefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO og Alþjóða raftækniráðsins IEC um stöðlun í upplýsingatækni.
SlideShare hefur kynnt til sögunnar nýjan og margumbeðinn eiginleika sem felst í því að tengja saman og samræma glærusýningu og hljóðskrá þannig að úr verði ein heild. Nú er því hægt að hýsa á SlideShare og varpa þaðan á aðra vefi efni sem unnði er í PowerPoint eða Impress (Open Office) með tali og tónum, [...]
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar
“ICT in European Schools: A Value and Cost Analysis of Microsoft and Open Source Technology Solutions” er hugbúnaður frá Microsoft betur til þess fallinn að nýta í skólakerfinu en sambærilegir opnir valkostir. Ráðist var í rannsóknina að frumkvæði Microsoft sem einnig kostaði gerð hennar.
Hugtakið “Featuritis” lýsir þeirri tilhneygingu við þróun hugbúnaðar að leggja aðaláherslu á nýja möguleika (features) með hverri nýrri útgáfu. Hversu mikilvægir sem nýir möguleikar eru þá er innleiðing þeirra ósjaldan á kostnað aðgengis og einfaldleika. Nýjar aðgerðir kalla á aukið flækjustig og aukið flækjustig kallar á meiri þjálfun og aðstoð. Allt leiðir þetta af sér [...]
Slideshare er vefbundin þjónusta fyrir Powerpoint og Open Office notendur sem vilja miðla efni sínu á svipaðan hátt og netverjar gera á YouTube eða öðrum álíka vefjum.
Slideshare hefur undanfarnar vikur verið í notendaprófunum og aðgangur því takmarkaður. Prófunum er nú lokið og vefurinn opinn öllum almenningi. Ég hvet kennara til að kynna sér þjónustuna sem [...]
Það hefur varla farið framhjá nokkrum netverja að “heitustu” vefirnir í dag eru þeir sem gefa notendum kost á að horfa á og deila með sér stuttum myndskeiðum. Hér á ég við vefi eins og YouTube og Google Videos sem njóta hreint ótrúlegra vinsælda meðal allra aldurshópa. Svovinsælir eru þessir vefir að það hefur vakið [...]
Open Office stendur fyrir opinni samkeppni um hönnun á sniðmátum og smámyndum.