Í upphafi september nk. stendur 3F í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið fyrir Moodle deginum. Á þeim degi koma kennarar, kerfisstjórar og aðrir áhugasamir aðilar saman til að ræða um notkun Moodle í íslenskum skólum. [Translate]
Moodle er líklega mest notaða námsstjórnunarkerfið hér á landi og nýtt allt í senn a grunn- framhalds- og háskólastigi. Moodle notendur hafa alltaf haft eitthvað samráð sín á mill en skort hefur á miðlægan samráðs og samstarfsvettvang. [Translate]
Verkefnið Frjáls og opinn hugbúnaður sem mennta- og menningarmálaráðuneytið tekur þátt í ásamt framhaldsskólum og háskólum, ætlar að standa fyrir Frjálsa deginum 25. febrúar nk. á Akureyri í samstarfi við VMA og MA. [Translate]
Dimdim hefur á skömmum tíma tekist að skapað sér verðskuldaða sérstöðu á erfiðum markaði, sem allt í senn einfalt, öflugt og ódýrt vefráðstefnukerfi. Dimdim hefur m.a. unnið land í menntageiranum þar sem því hefur verið talið til tekna að vera opinn hugbúnaður auk þess sem fyrirtækið hefur boðið upp á sérlega aðlaðandi netþjónustu. Það kom ...
AMOS þýðingarvettvangur Moodle námsstjórnunarkerfisins hefur nú verið opnaður almenningi. Hver sem áhuga hefur getur skráð sig sem þýðanda á AMOS og tekið þátt í að efla og viðhalda íslensku þýðingunni á Moodle. [Translate]
Það eru erfiðir tímar í vændum í framhaldsskólum landsins. Framundan er allt að 10% niðurskurður á fjárframlögum og miðað við þær hugmyndir um aðhalds- og sparnaðaraðgerðir sem ég hef heyrt þá má búast við umtalsverðum áhrifum á skólastarfið. Ekki er hægt að útiloka að komi til uppsagna kennara. [Translate]
Þann 23. júlí 1998 tók Peter nokkur Thoeny sig til og reisti nýjan hugbúnað á grunni JOSWiki forritsins sem hannað var að þeim félögum Markur Peter og Dave Harris. Eins og nafnið ber með sér var þar á ferðinni Wiki lausn sem í dag hefur víða ratað og er vel þekkt undir heitinu TWiki. Þar ...
Útgáfa 3.0 af Open Office hugbúnaðarsafninu er komin út og hafa móttökurnar almennt verið jákvæðar ef eitthvað er að marka umfjöllun á Netinu. Open Office 3 inniheldur fjölmargar nýjungar og endurbætur og getur m.a. lesið Microsoft Office 2007 skrár. [Translate]
XAMPP hugbúnaðarvöndullinn er kjörinn þegar ætlunin er að setja upp þróunar- eða vinnuumhverfi á tölvu. Ég geri það gjarnan þegar ég hanna vef að vinna hann staðvært áður en ég færi á Netið. Einnig nota ég XAMPP iðulega til að setja upp hvers kyns netlægan hugbúnað sem ég hef áhuga á að kynna mér betur. ...
Endurmenntun Háskóla Íslands stendur fyrir áhugaverðu námskeiði um frjálsan og opinn hugbúnað í haust. Á námskeiðinu verður leitast við að kynna nýútkomna stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað og skoða hvaða afleiðingar hún hefur á upplýsingatækni á Íslandi. [Translate]
Athugasemdir