CommentPress er nýtt þema við WordPress blogglausnina vinsælu sem umbreytir henni í einstakt birtingarkerfi fyrir hvers kyns ritsmíðar og athugasemdir lesenda. CommentPress er eins og sniðið fyrir akademískt umhverfi þar sem kennarar leggja til efni til aflestrar fyrir nemendur og óska eftir gagnrýnum athugasemdum eða skýringum. Ólíkt venjulegum bloggfærslum er CommentPress hannað með lengri færslur [...]
Mjög góð þátttaka var á opnum fundi staðlaráðs þar sem til umræðu var annars vegar stofnun tækninefndar í upplýsingatækni og hins vegar umfjöllun og hugsanleg afstaða til ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið, nú í frumafgreiðslu hjá JTC. Á fundinum var samþykkt stofnun tækninefndar, en þegar kom að umfjöllun um ISO/IEC [...]
Ég verð með innlegg á námsstefnunni Leiðir til árangurs sem haldin verður þann 17. ágúst nk. í Kennaraháskóla Íslands. Á námsstefnunni verður fjallað um það helsta sem er í boði á sviði kennslu og kennslugagna fyrir leikskóla og yngsta stig grunnskóla með sérstakri áherslu á sérkennslu. Ég mun fjalla um opnar lausnir í skólastarfi og [...]
Í Netlu, vefriti Kennaraháskólans, má nú finna fyrsta hluta af þremur í greinaflokki eftir mig sem ég nefni Opnar lausnir. Í flokknum er fjallað um frjálsan og opinn hugbúnað og tekist á við þá spurningu hvaða hlutverki hann hafi að gegna í nútímaskólastarfi.
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar
“ICT in European Schools: A Value and Cost Analysis of Microsoft and Open Source Technology Solutions” er hugbúnaður frá Microsoft betur til þess fallinn að nýta í skólakerfinu en sambærilegir opnir valkostir. Ráðist var í rannsóknina að frumkvæði Microsoft sem einnig kostaði gerð hennar.
Umfangsmiklum prófunum á nýjustu útgáfunni af Moodle námsumhverfinu, Moodle 1.8, er nú lokið. Mælt er með því að notendur uppfæri vefi sína yfir í hina nýju útgáfu.
Þann 12. mars nk. hefst spennandi dagskrá á Netinu þar sem alþjóðlegur hópur virtra fagaðila á sviði opins hugbúnaðar í námi og kennslu kemur saman og fjallar um viðfangsefnið hver frá sínu sjónarhorni. Umfjöllunin er í formi greinaskrifa eða viðtala og verður viðkomandi höfundur til umræðu um framlag sitt á þeim tíma sem viðfangsefni hans [...]
Í heimildamyndinni Revolution OS er rakin saga fráls og opins hugbúnaðar frá sjónarhóli þeirra sem tóku virkan þátt í að móta hana, manna eins og Linus Torvalds, Eric S. Raymond, Richard Stallman og Bruce Perens.
Drög að tillögu að stefnu stjórnvalda um opinn hugbúnað hafa nú verið gerðar aðgengilegar á UT vefnum. Tillögurnar byggja á skýrslu um opinn hugbúnað sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið og kom út í apríl 2005. Stefnan nær til allra ríkisstofnana og félaga sem rekin eru fyrir opinbert fé.
1984 ehf er mjög áhugavert, íslenskt fyrirtæki sem býður einstaklingum, opinberum stofnunum og fyrirtækjum vistun, ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýsingatæknimála. Nafnið er að sjálfsögðu vísun í skáldsögu Orwells enda einkunnarorð fyrirtækisins “Stóri bróðir hefur gætur á gögnunum þínum”.