Umfangsmiklum prófunum á nýjustu útgáfunni af Moodle námsumhverfinu, Moodle 1.8, er nú lokið. Mælt er með því að notendur uppfæri vefi sína yfir í hina nýju útgáfu. [Translate]
Þann 12. mars nk. hefst spennandi dagskrá á Netinu þar sem alþjóðlegur hópur virtra fagaðila á sviði opins hugbúnaðar í námi og kennslu kemur saman og fjallar um viðfangsefnið hver frá sínu sjónarhorni. Umfjöllunin er í formi greinaskrifa eða viðtala og verður viðkomandi höfundur til umræðu um framlag sitt á þeim tíma sem viðfangsefni hans ...
Í heimildamyndinni Revolution OS er rakin saga fráls og opins hugbúnaðar frá sjónarhóli þeirra sem tóku virkan þátt í að móta hana, manna eins og Linus Torvalds, Eric S. Raymond, Richard Stallman og Bruce Perens. [Translate]
Drög að tillögu að stefnu stjórnvalda um opinn hugbúnað hafa nú verið gerðar aðgengilegar á UT vefnum. Tillögurnar byggja á skýrslu um opinn hugbúnað sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið og kom út í apríl 2005. Stefnan nær til allra ríkisstofnana og félaga sem rekin eru fyrir opinbert fé. [Translate]
1984 ehf er mjög áhugavert, íslenskt fyrirtæki sem býður einstaklingum, opinberum stofnunum og fyrirtækjum vistun, ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýsingatæknimála. Nafnið er að sjálfsögðu vísun í skáldsögu Orwells enda einkunnarorð fyrirtækisins “Stóri bróðir hefur gætur á gögnunum þínum”. [Translate]
Idahoe State University nýtir WebCT 4.0 námsumhverfið, en þar sem stuðningur Blackboard/WebCT við þá útgáfu rennur út í júlí 2008 eru skólastjórnendur farnir að huga að uppfærslu. Í þessari stöðu væri sjálfsagt að uppfæra í útgáfu 6.0 af WebCT en sökum umfangs slíkrar uppfærslu hefur verið ákveðið að kanna aðra möguleika í stöðunni, þ.e. önnur ...
Hugtakið “Featuritis” lýsir þeirri tilhneygingu við þróun hugbúnaðar að leggja aðaláherslu á nýja möguleika (features) með hverri nýrri útgáfu. Hversu mikilvægir sem nýir möguleikar eru þá er innleiðing þeirra ósjaldan á kostnað aðgengis og einfaldleika. Nýjar aðgerðir kalla á aukið flækjustig og aukið flækjustig kallar á meiri þjálfun og aðstoð. Allt leiðir þetta af sér ...
Íslenskun á ELGG hugbúnaðinum gengur vel og vænta má að henni ljúki innan skamms. Alls hafa 838 textastrengir af 1009 verið þýddir, en það eru um 83% heildartextans. Þýðingin fer fram á opnu þýðingarkerfi á Netinu og geta því allir sem áhuga hafa lagt sitt af mörkum til þýðingarinnar. [Translate]
Það er skemmst frá því að segja að árið 2006 hefur reynst Moodle ákaflega gjöfult. Moodle hefur verið mikið í fjölmiðlum á árinu enda frá miklu að segja. Hér er stutt samantekt um það helsta sem vakti athygli mína á árinu: [Translate]
University of California, Los Angeles er án nokkurs vafa einn af virtustu háskólum Bandaríkjanna enda fær enginn bandarískur háskóli fleiri umsóknir um námsvist á hverju ári. Hún er því eftirtektarverð sú ákvörðun stjórnenda UCLA að velja Moodle sem netbundið námsumhverfi skólans. [Translate]
Athugasemdir