Ég sótti Tuxpaint teikniforritið fyrir stuttu svona til að kynna mér. Ég hef vitað af þessu forriti í lengri tíma en aldrei komið mér að því að prufa það. Niðurstaðan er sú að um stórsniðugan hugbúnað er að ræða sem óhætt er að mæla með fyrir leikskóla og nemendur í yngri bekkjum grunnskólans. Það spillir ...
13. tölublað af “Free Software Magazine” er komið út. Tímaritið er aðgengilegt án endurgjalds (á pdf sniði) á vefnum www.freesoftwaremagazine.com. Ath. skráningar er krafist.
Fyrir nokkru óskaði ég eftir að fá senda diska með Ubuntu (KDE útgáfunni reyndar) GNU/Linux-dreifingunni vinsælu og komu þeir í hús nýlega. Undanfarna daga hef ég verið að prófa mig áfram með kerfið og fyrstu kynni lofa aldeilis góðu. Ubuntu hefur gjarnan þótt einstaklega aðgengileg og notendavæn GNU/Linux dreifing enda sýndi það sig að uppsetning ...
Marting Dougiamas, upphafsmaður Moodle námsstjórnuarkerfisins, hefur nýlokið uppfærslu á Moodle.org heimahöfn Moodle á vefnum yfir í nýjustu útgáfu hugbúnaðarins, þ.e. útgáfu 1.6. Hin nýja útgáfa boðar nokkur tímamót fyrir Moodle notendur og er frekar viðamikil þrátt fyrir að útgáfunúmerið gefi annað til kynna. Ein viðamesta breytingin í útgáfu 1.6 mun reyndar vekja litla eftirtekt hjá ...
Draumur fílsins (Elephants dream) er stafræn stuttmynd sem unnin er með opnum hugbúnaði og ætlað að sýna fram á möguleika opinna lausna á þessu sviði. Lestu meira hér.
Sláðu tvær flugur í einu höggi með því að skrá þig á námskeiðið “Google Earth 101 for Educators”, sem á íslensku mætti útleggja Google Earth í starfi kennara. Á námskeiðinu kynnist þú Google Earth jarðsjánni og fræðist um margvísleg not sem kennarar geta haft af þessu magnaða forriti. Og þar sem námskeiðið nýtir Moodle námsstjórnunarkerfið ...
Útgáfa 1.6 af Moodle námsstjórnunarkerfinu er nú aðgengileg í betaútgáfu á vefnum www.moodle.org. Útgáfan inniheldur fjölda spennandi nýjunga ásamt margvíslegum lagfæringum og leiðréttingum. Útgáfan er uppfærð daglega og athygli er vakin á því að betaútgáfur hugbúnaðar eru fyrst og fremst gefnar út í því skyni að uppræta allar villur sem enn kunna að vera til ...
Joomla er öflug hugbúnaðarlausn fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á því að koma sér upp vef og viðhalda honum á sem einfaldastan hátt. Joomla er gefið út samkvæmt leyfisskilmálum GNU/GPL og er því öllum frjálst að sækja hugbúnaðinn, aðlaga, dreifa og nýta án endurgjalds. Skólastjórnendur, kerfisstjórar og aðrir sem koma að upplýsingatæknimálum ...
Einstaklingsbundið námsumhverfi er þýðing á enska hugtakinu “Personal learning environment” eða PLE eins og það er skammstafað. Einstaklingsbundið námsumhverfi samþættir persónuleg og fagleg áhugasvið ótilgreinds fjölda notenda með það að markmiðið að skapa félagslegan vettvang á Netinu þar sem einstaklingurinn er í fyrirrúmi. Einstaklingsbundið námsumhverfi er opinn og skapandi vettvangur sem styður við formlegt og ...
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar stendur fyrir fræðslufundi um námsstjórnunarkerfið Moodle. S. Fjalar Jónsson kynnir möguleika kerfisins sem er bæði ,,frítt og opið”. Fundurinn er öllum opinn og þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig. Fræðslufundurinn er hjá Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31 (3. hæð), mánudaginn 27. mars frá kl. 14.30 – 16.00. Sigurður Fjalar Jónsson er ...
Athugasemdir