Helst vil ég leggja fyrir nemendur mína í FB verkefni sem eru í senn krefjandi og áhugaverð. Stundum hef ég eins og gefur að skilja lítið um verkefnavalið að segja, en endrum og sinnum rekst ég á efni sem ég veit að er eins og sniðið til að nota í kennslu. Eitt slíkt fann ég [...]
Worth1000 er alveg ótrúlega magnaður ljósmyndabrelluvefur.
Tæknirisinn Microsoft hefur fram til þessa ekki þótt sérstaklega vinveittur opnum hugbúnaði (open source) svo vægt sé til orða tekið. Hið stórskemmtilega myndvinnsluforrit Paint.net er þó fróðleg undantekning frá þessari reglu. þróun þess er í höndum þriggja forritara sem allir starfa hjá Microsoft, en vinna að Paint.net í frítíma sínum. Verkefnið er unnið með vitun [...]
Í vetur kenni ég stafræna myndvinnslu við UT-braut Fjölbrautaskólans í Breiðholti eins og svo oft áður. Kennslan í ár verður hins vegar með dálítið öðru sniði en venjulega þar tímum í töflu hefur verið fækkað gegn meiri sjálfstæðri vinnu nemenda á Netinu. Að sjálfsögðu nýti ég Moodle námsstjórnunarkerfið sem er undirstaða kennsluvef skólans, sem finna [...]