Varnarlaus tónlist og háskólar á Netinu
Ég var að enda við að setja upp nýjustu útgáfuna af iTunes (7.2) frá frumherjunum í Apple. Við fyrstu sýn virðist lítið hafa breyst en þegar betur er að gáð má finna nokkrar spennandi nýjungar.
Upplýsingatækni í námi og kennslu
Ég var að enda við að setja upp nýjustu útgáfuna af iTunes (7.2) frá frumherjunum í Apple. Við fyrstu sýn virðist lítið hafa breyst en þegar betur er að gáð má finna nokkrar spennandi nýjungar.
“Turn Over Your Papers … Now!” nefnast forvitnilegir útvarpsþættir í umsjón John O’Farrell á BBC Radio 4. Umfjöllunarefni þeirra ætti að höfða til kennara og áhugafólks um nám og kennslu, en þeir fjalla um námsmat. Þættirnir eru vel unnir, fróðlegir að hlusta á og líkt og aðrir útvarpsþættir á BBC Radio 4 þá eru þeir [...]
Lectopia er áhugaverð lausn sem þróuð hefur verið við Háskólann í vestur Ástralíu og tæplega 30% háskóla í Ástralíu nota til þess þess að taka upp og dreifa fyrirlestrum á Netinu. Michael Fardon, einn upphafsmanna verkefnisins, flutti mjög góðan fyrirlestur um Lectopia á Educause 2005 ráðstefnunni síðasta vetur, sem hann nefndi “Distributed Learning Utilizing On-Demand [...]
Letting Pedagogy Transform Learning Management Systems. Mjög áhugaverður 42 mínútna fyrirlestur um Moodle frá Educause 2005 ráðstefnunni.
Apple fyrirtækið hefur opinberað nýja þjónustu sem gengur undir heitinu iTunes U og er sérstaklega sniðin að framhalds- og háskólum. iTunes U gerir skólastofnunum kleift að hýsa og dreifa fyrirlestrum er öðru námstengdu á hljóð og/eða myndrænu formi á Netinu og nýta til þess sömu tækni og Apple hefur þróað til þess að dreifa og [...]
Podcasting er stafræn upptaka af útvörpuðu efni, s.e. útvarpsþætti, viðtali, fyrirlestri eða hvers kyns öðru hljóðrænu efni sem gert er aðgengileg á Netinu til notkunar á stafrænum spilurum. Orðið “Podcasting” varð til í tengslum við hina vinsælu iPod mp3 spilara frá Apple, en [...]
Ritstjórn The New Oxford American Dictionary orðabókarinnar hafa valið orðið “podcast” orð ársins 2005.
Meðal þeirra orða sem einnig komu sterklega til greina þegar valið var orð ársins voru eftirfarandi:
bird flu
ICE
IDP
IED
lifehack
persistent vegetative state
reggaeton
rootkit
squick
sudoku
trans fat
Orðið “Podcast” varð fyrir valinu vegna ótrúlegrar aukningu á notkun þess á árinu, en sjálfsagt er að geta þess að orðið er ekki [...]
Robert Viau er prófessor við ríkisháskólann í Georgíufylki í Bandaríkjunum og kennir þar m.a. áfanga þar sem fengist er við útópíur / distópíur. Í grein sem Viau skrifar í Campus-technology lýsir hann því hann því hvernig hann samþættir texta, myndir, myndskeið og tónlist á skapandi hátt í kennslunni.
Viau heldur úti vef í tengslum við áfangann [...]
Tim Wilson starfar sem tæknilegur ráðgjafi um hagnýtingu upplýsingatækni í skólastarfi. Tim heldur einnig út bloggvefnum The Savvy Technologist þar sem m.a. finna má einstaklega vönduð hljóðvörp/podcasting.
Um það bil 20% af c.a. 10. milljón myndum í safni LIFE tímaritsins eru nú aðgengilegar á Google. Ætlunin er að færa allt safnið yfir á stafrænt snið.
Google hefur kynnt til sögunnar nýja útgáfu af Sketchup þrívíddar teikniforritinu. Fullt af spennandi nýjungum eins og við mátti búast.
Norræn ráðstefna um UT og fjarnám í háskólanámi verður haldin kl. 9-16 í Öskju í HÍ þann 1. desember nk.
Fimmtudaginn, 6. nóv. hófst ráðstefnan Pikslaverk (http:// www.pikslaverk.org) þar sem fjallað verður um þá nýbreytni listamanna að notast við tölvur og forritun í listsköpun sinni frá ýmsum hliðum.