Eldra efni: Powerpoint

Pecha Kucha

Skráð 05 September 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Árið 2003 leituðu arkitektarnir Astrid Klein og Mark Dytham allra leiða til þess að draga fólk að samkomustaðnum SuperDeluxe sem þau ráku í einu úthverfa Tokyo. Hugmyndin sem þau fengu var einföld en afar áhrifarík. Hvað með að efna til sérstakra kvölda þar sem ungir hönnuðir gætu hist, átt samskipti og sýnt verk sín opinberlega [...]


Powerpoint heilkennið

Skráð 29 August 2007
Flokkur: Powerpoint
Engar athugasemdir frá lesendum

Á kennarafundi í ónefndum skóla var kennurum gerð heyrikunnug umkvörtun frá nemanda sem lýsti hefðbundndum kennsludegi við skólann sem endalausri halarófu Powerpoint glæra. Frá korter yfir átta um morguninn og þangað til fjögur um daginn, eða eitthvað um það bil, var honum gert að sitja undir alls 120 glærum sem hver innihélt að meðaltali 2 [...]


Loksins er hægt að birta glærusýningar á Slideshare með tali og tónum

Skráð 08 August 2007
1 athugasemd frá lesendum

SlideShare hefur kynnt til sögunnar nýjan og margumbeðinn eiginleika sem felst í því að tengja saman og samræma glærusýningu og hljóðskrá þannig að úr verði ein heild. Nú er því hægt að hýsa á SlideShare og varpa þaðan á aðra vefi efni  sem unnði er í PowerPoint eða Impress (Open Office) með tali og tónum, [...]


Google video + Powerpoint = Zentation

Skráð 03 July 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Zentation er ný og spennandi vefbundin þjónusta sem gerir notendum kleift að hlaða inn PowerPoint sýningum og tengja við Google Video myndskeið þannig að úr verður myndskeið með glærum. Zentation er kjörin leið til að birta fyrirlestra eða kennsluefni á Netinu.


Til hamingju með afmælið Powerpoint

Skráð 24 June 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Það er ekki mikið um hátíðarhöld en Microsoft Powerpoint hugbúnaðurinn heldur upp á 20 ára afmæli sitt um þessar mundir. Það er heldur ekki á almanna vitorði að Microsoft var þróað af tveimur mönnum, þeim Robert Gaskins og Dennis Austin. Fyrsta útgáfan kom út árið 1987 fyrir Macintosh. Microsoft keypti svo Forethought fyrirtækið sem var [...]


Powerpoint er ekkert grín

Skráð 21 April 2007
Flokkur: Powerpoint
Engar athugasemdir frá lesendum

Grínistinn Don McMillan hefur afar sterkar skoðanir á því hvernig ekki á að setja saman glærukynningar með aðstoð Powerpoint. Hann er að sjálfsögðu ekki einn það en óneitanlega setur hann ábendingar sínar fram á gamansamari hátt en flestir aðrir.


Notkun á bloggi í kennslu - glærukynning

Skráð 01 November 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Ég mæli með glærukynningu Sigurbjargar Jóhannesdóttur um notkun á bloggi í kennslu sem hægt er að sækja á vef hennar www.sibba.is.


Slideshare er opið almenningi

Skráð 23 October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Slideshare er vefbundin þjónusta fyrir Powerpoint og Open Office notendur sem vilja miðla efni sínu á svipaðan hátt og netverjar gera á YouTube eða öðrum álíka vefjum.
Slideshare hefur undanfarnar vikur verið í notendaprófunum og aðgangur því takmarkaður. Prófunum er nú lokið og vefurinn opinn öllum almenningi. Ég hvet kennara til að kynna sér þjónustuna sem [...]


Deildu glærunum þínum með Slideshare

Skráð 04 October 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Það hefur varla farið framhjá nokkrum netverja að “heitustu” vefirnir í dag eru þeir sem gefa notendum kost á að horfa á og deila með sér stuttum myndskeiðum. Hér á ég við vefi eins og YouTube og Google Videos sem njóta hreint ótrúlegra vinsælda meðal allra aldurshópa. Svovinsælir eru þessir vefir að það hefur vakið [...]


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman