Ég flutti fyrirlestur á hinni árlegu Closing the Gap ráðstefnu í Minneapolis þann 20. okt. síðastliðinn undir yfirskriftinni “Preferably open - definitely free”. Umfjöllunarefnið var opinn og frjáls hugbúnaður í námi og kennslu nemenda með sérþarfir. Flutningurinn gekk með afbrigðum vel þó ég segi sjálfur frá og yfir 100 manns létu sig hafa það að [...]
Námsstefnan Leiðir til árangurs var haldin föstudaginn 17. ágúst sl. í húsnæði Kennaraháskólans að frumkvæði faghóps leikskólasérkannara og í samvinnu við FÍS, FL, KHÍ, HA og TMF. Óhætt er að segja að mjög vel hafi tekist til og fjöldi þátttakenda vel yfir björtustu væntingum.
Ég vek athygli á alþjóðlegu netráðstefnunni Future of education sem hefst þann 4. júní nk. og stendur yfir í fjóra daga. Ráðstefnan samanstendur af fyrirlestrum sem streymt verður á Netinu og umræðum þeim tengdum sem fara fram í Moodle vef háskólans í Manitoba. Ég hef tekið þátt í nokkrum netráðstefnum undanfarið og verð að segja [...]
Webheads in Action er opið og lifandi samfélag kennara hvaðanæva úr heiminum sem koma saman á Netinu og kynna sér nýja tækni og framsæknar hugmyndir í netstuddu námi og kennslu. Dagana 18. - 20. maí nk. stendur Webheads in Action fyrir ráðstefnu á Netinu undir fyrirsögninni “WIAOC 2007: Webheads in Action Online Convergence”. Meðal þátttakenda [...]
Fagfélagið 3F, félag um upplýsingatækni og menntun hefur tekið að sér að sjá um netmálstofu á ráðstefnunni Samræða milli skólastiga.
Netmálstofan verður föstudaginn 29. september kl. 16:00 - 17:20.
Á málstofunni verður fjallað um samvinnu og samstarf um hugbúnað og þýðingar tölvuhugbúnaðar á íslensku og samvinnu og samstarf um námsefni og leiðbeiningar fyrir kennara og [...]
Samtök áhugafólks um skólaþróun stóðu fyrir vel heppnaðri ráðstefnu um námsmat, mánudaginn 14. ágúst sl. Yfir 500 þátttakendur sóttu ráðstefnuna sem var umtalsvert meiri fjöldi en bjartsýnustu spár skipuleggjenda gerðu ráð fyrir. Glærur fyrirlestra ráðstefnunnar eru aðgengilegar á Powerpoint sniði á vef samtakanna.
Ráðstefnan var í alla staði mjög áhugaverð og þrátt fyrir að ekkert jafnist [...]
NECC (National Educational Computing Conference) hófst í dag, en NECC er heimsins stærsta ráðstefna sem hefur að viðfangsefni upplýsingatækni í skólastarfi. Ráðstefnan er haldin í San Diego dagana 5. - 7. júlí og er ráðgert að allt að 16.000 manns leggi þangað leið sína að kynnast öllu því nýjasta, forvitnilegasta og skemmtilegasta sem upplýsingatæknin hefur [...]
Glærur og myndir af UT2006 ráðstefnunni um sveigjanleika í skólastarfi.
UT2006 ráðstefnan um upplýsingatækni í námi og kennslu fer fram föstudaginn 3. mars nk. undir yfirskriftinni sveigjanleiki í skólastarfi. Eins og titillinn gefur til kynna verður megináhersla lögð á sveigjanlega kennsluhætti. Ráðstefnan verður með öðru sniði í ár en venjulega, þar sem reynt verður eftir megni að gera ráðstefnugesti að virkum þátttakendur í dagskránni og [...]