sfjalar » sérkennsla

Klassískir rofaleikir
Hér eru nokkrir klassískir tölvuleikir sem hafa verið endurgerðir þannig að hægt er að spila þá í PC tölvu með lyklaborði eða rofa/rofum.

Leikirnir eru ekki spilaðir í gegnum netið heldur verður að sækja þá og annað hvort setja upp eða smella á staka keyrsluskrá (.exe skrá). Skrárnar eru þjappaðar (á zip sniði). Allir hafa verið prufaðir á Windows 7 stýrikerfinu.

Space Invaders

Einn vinsælasti tölvuleikur allra tíma. Hannaður og forritaður af Toshihiro Nishikado fyrir Taito fyrirtækið í Japan. Kom út árið 1978. Gefin út í Bandaríkjunum árð 1980 af Midway.

Spilaðu upprunalegu útgáfuna

Alienated

Ágæt eftirlíking þrátt fyrir að grafíkin sé ekki alveg í samræmi við frumgerðina. Stýrður með bilslá og örvatökkum eða rofa. ALT+F4 til að hætta.

Höfundur: William Pilgrim.

Smelltu hér til að sækja leikinn.

Asteroids

Gefin út í Bandaríkjunum árið 1979 af Atari og er einn vinsælasti leikur Atari fyrr og síðar. Svo vinsæll varð leikurinn að sumstaðar varð að setja stærri kassa undir smápeninga í spilakassann .

Spilaðu upprunalegu útgáfuna

Asteroids of Orion

Sniðug útgáfa af Asteroids sérhönnuð fyrir rofa. Virknin er nokkuð ólík frumgerðinni. Bilslánni er haldið niðri til að sleppa sprengju og sleppt til þess að sprengja hana (helst nærri loftsteini)

Smelltu hér til að sækja leikinn

Q*bert

Framleiddur og markaðssettur af bandaríska fyrirtækinu Gottlieb árið 1982. Eini tölvuleikur fyrirtækisins sem náði umtalsverðum vinsældum. Skemmtilegur og frumlegur leikur.

Spilaðu upprunalegu útgáfuna

Cubes

Stórskemmtileg og vel gerð eftirlíking af Q*bert leiknum. Hægt að spila með lyklaborði eða rofa. Alt+F4 til að hætta að spila.

Höfundur: Graeme’s Free Games.

Smelltu hér til að sækja leikinn.

Frogger

Markaðssettur árið 1981 af Konami en dreift í Bandaríkjunum af Sega/Gremlin. Þótti bæði flottur og frumlegur og ekki skemmdufjörleg hljóðin fyrir.

Spilaðu upprunalegu útgáfuna

Froggy Ribbit

Frábær útgáfa af þessum stórskemmtilega leik. Verulega vel gerð eftirlíking.

Höfundur: Chris Mair

Smelltu hér til að sækja leikinn

Pac-Man

Gefin út af Namco og kom fyrst út í Japan árið 1980 en var dreift í Bandaríkjunum af Midway. Pac-Man varð fyrirmynd að nýrri tegund tölvuleikja, en áður höfðu skotleikir eins og Space Invaders ráðið lögum og lofum.

Spilaðu upprunalegu útgáfuna

Maze Muncher

Ágæt útgáfa af Pac-Man þrátt fyrir að víkja nokkuð frá upprunalega leiknum í útliti. Hægt að nota lyklaborðið (örvalyklana) til að spila eða rofa. Til að hætta er smellt á Alt+F4.

Höfundur: Graeme’s Free Games

Smelltu hér til að sækja leikinn

Heimild: Oneswitch.org

Rofaleikir
Hér eru þrír einfaldir en skemmtilegir rofaleikir sem hægt er að sækja eða spila á netinu endurgjaldslaust í boði Shinylearning.

Sprengdu blöðruna

Í þessum leik er rofanotkun þjálfuð með því að nota rofa til þess að blása upp blöðru þangað til hún springur.

Sökktu sjóræningjunum

Hér er markmiðið með leiknum að sökkva sjóræningjaskipunum sem sigla framhjá. Til þess þarf að tímasetja fallbyssuskotin mjög nákvæmlega.

Bílapressan

Í þessum sniðuga leik er markmiðið að pressa bílana sem koma rúllandi á færibandinu frá vinstri. Fyrst er bílnum ýtt niður og síðan pressaður. Loks endar hann í karinu neðst á skjánum. Þetta er skemmtilegur leikur og góð þjálfun í rofanotkun.

Alla þessa leiki og fleiri til má sækja eða spila á vef ShinyLearning.co.uk endurgjaldslaust. Leikina má einnig spila með lyklaborðinu.

Boardmaker Studio
Mayer Johnson hefur opinberað glænýja útgáfu af Boardmaker hugbúnaðinum. Forritið hefur undirgengist umfangsmiklar breytingar hvað útlit varðar og virkni og hefur auk þess fengið nýtt nafn, Boardmaker Studio.

Þegar Boardmaker Studio er ræst mætir vönum Boardmaker notanda gjörbreytt notendaviðmót, einskonar stjórnborð sem veitir upplýsingar og eigin verkefni og aðgang að verkefnum annarra. Þar að auki veitir stjórnborðið beinan aðgang að umræðum og hópum á BoardmakerShare vefnum sem hét áður AdaptedLearning.

Allt er þetta mjög í takt við nútíma hugbúnaðargerð þar sem reynt er eftir megni að efla samspil hefðbundins hugbúnaðar og netsins. Í þessu sambandi má geta þess að Boardmaker Share er nýtt nafn á AdaptedLearning.com vefnum sem er tilraun Mayer Johnson til að stofna félagslegt tengslanet í kringum Boardmaker. Ég er ekki frá því að sú tilraun hafi heppnast ágætlega.

Notendaviðmótið

Óhætt er að segja að notendaviðmót Boardmaker hafi lítið breyst í tímans rás og fyrir löngu orðið tímabært að gera þar bragarbót á. Boardmaker hefur hins vegar alltaf verið mjög einfalt í notkun og það hefur reyndar verið einn af helstu styrkleikum þess. Galdurinn er því að búa til nútímalet viðmót sem er jafn þægilegt í notkun og hefðbundna Boardmaker. Notendaviðmótið í Boardmaker Studio er ólíkt því sem sést hefur í öðrum Boardmaker útgáfum og sannarlega framför. Það er t.a.m. orðið miklu auðveldara að vinna með fleiri en eina síðu í sama Boardmaker skjalinu. Á hinn bóginn er eitt og annað sem truflar mig í þessu nýja viðmóti. Kannski á ég bara eftir að venjast því betur.

Boardmarker studio boðar stefnubreytingu hjá Mayer Johnson. Í fyrsta lagi er greinilega meiri áhersla á gagnvirka þætti Boardmaker en áður. Í hinni nýju útgáfu er orðin allt að því fullkomin samþætting á hinu hefðbundna Boardmaker sem ætíð var notað til að setja saman prentefni og hinu gagnvirka Boardmaker sem nýtist til að gera verkefni sem leyst eru í tölvu. Í öðru lagi er eftir megni reynt að efla samfélag Boardmaker notenda og nýta framlög þeirra öllum til hagsbóta.

Á ég að uppfæra?

Það er náttúrulega stóra spurningin. Er Boardmaker Studio þess virði að uppfæra úr eldri útgáfum? Mín skoðun er sú að það er algjör óþarfi að eltast við þessa nýju útgáfu nema viðkomandi hafa sérstakan áhuga á hinum gagnvirku eiginleikum í Boardmaker. Fyrir alla þá sem nota Boardmaker til að setja saman hefðbundnar töflur þá sé ég takmarkaðan virðisauka í hinni nýju útgáfu. Hún er auðvitað betri og margir nýir eiginleikar flýta fyrir efnisvinnslu. En það er fátt sem kallar á uppfærslu á svo dýrkeyptum hugbúnaði. Hitt er annað mál að ef þú lesandi góður ætlar þér að fjárfesta í Boardmaker þá er sjálfsagt að kaupa hina nýju útgáfu.

Hægt er að sækja 30 daga prufuútgáfu af Boardmaker Studio á vef Mayer Johnson.

Einfaldir rofaleikir
Ég hef alls ekki gert nógu mikið af því að fjalla um hentugan hugbúnað fyrir einstaklinga sem stýra tölvunni með aðstoð rofa. Hér verður lítillega bætt úr því með því að benda á nokkra sniðuga netlæga smáleiki.

Leikirnir eru allir á flash sniði og finnast á vefnum HelpKidsLearn.com. Leikirnir eiga þeð ennfremur sammerkt að vera einfaldir í notkun go styðja við rofabúnað. Á umræddum vef má finna fleiri leiki sem margir styðja við rofabúnað. Sumir henta samt illa þar sem þeir eru ekki á íslensku. Hægt er að smella á meðfylgjandi myndir til að prufukeyra leikina.

Kastaðu í kókoshneturnar

Hentu boltanum í kókoshneturnar með því að styðja á rofann (eða bilslánna). Felldu allar kókoshneturnar til þess að sjá þær dansa. Allar frekari upplýsingar um leikinn má finna hér.

Töfradrykkurinn

Blandaðu þinn eigin töfradrykk og drekktu hann til að sjá hver áhrifin verða. Áður en leikurinn hefst er hægt að ákveða hvort notast er við mús, lyklaborð eða rofabúnað. Frekari upplýsingar hér.

Galdraeggin

Bíddu þangað til þú sérð egg birtast á skjánum. Studdu þá á rofann (eða smelltu á músarhnappinn) til þess að brjóta eggið og sjá hvaða galdraveru það hefur að geyma. Frekari upplýsingar hér.

Náðu nagdýrunum

Fylgstu vel með nagdýrinu þar sem það fer niður rörið. Sláðu það svo í hausinn með dagblaðinu þegar þú sérð það birtast. Frekari upplýsingar hér.

Mulberry myndasafnið
Mulberry myndasafnið inniheldur yfir 1000 teikningar sem unnar eru undir leiðsögn talmeinafræðinga og sérfræðinga á sviði uppeldis og mennta. Myndirnar svipa nokkuð til PCS myndabankans frá Mayer-Johnson sem Boardmaker notendur þekkja vel. Ólíkt Boardmaker myndunum er Mulberry myndasafnið öllum aðgengilegt endurgjaldslaust.

Mulberry myndasafnið er til komið vegna þriggja ára þróunarverkefnis sem enn er unnið að. Markmiðið með verkefninu er ekki að keppa við núverandi útgefendur sambærilegra mynda heldur:

þróa myndabanka sem er ekki síðri að gæðum og jafnvel betri en þau myndasöfn þegar eru til staðar

veita ókeypis aðgang að myndabanka og tryggja stöðugan vöxt hans

þróa myndir sem höfða ekki síður til eldri notenda

þróa myndir á sniði (þ.e. wmf) sem gefur kost á notkun þeirra í núverandi hugbúnaði og vélbúnaði

gera myndir aðgengilegar á öðrum sniðum einnig, s.s. svg, og styðja þannig við nýsköpun

Mulberry myndasafnið er gefið út samkvæmt opnu höfundaleyfi, nánar tiltekið Creative Commons SA-BY leyfinu. Leyfisskilmálar Creative Commons SA-BY heimila notendum að dreifa myndum úr safninu að vild og nota í hvaða tilgangi sem er svo lengi sem rétthafa er getið og nýtt efni sem til verður sé gert aðgengilegt með sömu eða sambærilegum leyfisskilmálum.

Mulberry myndasafnið er aðgengilegt á vefnum straight-street.com. Þar er hægt að leita eftir myndum og sækja annað hvort stakar myndir eða safnið í heild sinni. Innskráningar er krafist áður en myndir eru sóttar. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá örlítið sýnishorn af myndunum í safninu.

Mulberry myndabankinn er kjörinn fyrir sérkennara, talmeinafræðinga, leikskólakennara og aðra sem þurfa á vönduðum myndum að halda. Safnið jafnast enn sem komið er engan veginn við PCS myndirnar í Boardmaker að umfangi, en verðið svíkur engan.

Taktu tímann
Hér eru tvær einfaldar lausnir til tímatöku eða skeiðmælinga í kennslustofunni. Báðar eru ætlaðar fyrir skjávarpa eða gagnvirkar töflur og geta komið að góðum notum við margvíslegar aðstæður.

Fyrst ber að nefna skeiðklukkuna frá Triptico. Hún býður upp á einfalda tímatöku ásamt niðurtalningu. hægt er að stoppa klukkuna tímabundið með pásuhnapp (e. pause).

Næst ber að nefna online-stopwatch.com vefinn sem inniheldur netlæga skeiðklukku ekki ósvipaða að virkni og skeiðklukkan frá Triptico.

Auk netlægu lausnarinnar býður Oline-Stopwatch vefurinn notendum að sækja nokkrar ólíkar tegundir teljara. Teljararnir eru á swf (flash) sniði og því einfalt að setja þá upp á vefsíðu eða keyra í gegnum vefskoðara. Kosturinn við að sækja hugbúnaðinn er að þá má nýta hann án þess án nettengingar.

Ég mæli svo sérstaklega með teljara sem hægt er að keyra samhliða öðrum forritum í PC tölvum og nota til tímatöku t.d. við verkefnavinnu nemenda. Sá teljari hefur þann eiginleika að hvíla ofan á öðrum forritum og er þannig ávallt sýnilegur. Slíkur tekjari hentar einstaklega vel þegar nemandi fær takmarkaðan tíma til að vinna við ákveðið verkefni í tölvunni eða kannski þegar nemandi fær frjálsan tölvutíma. Ég vel athygli á því að þessi teljari er ennþá í þróun. Forritið sækir t.a.m. teljarann af netinu en ætlunin er að gera hann að fullkomlega sjálfstæðri lausn. Annar galli er sá að nemendur geta endursett teljarann eða sett á bið. Vonandi verða þessir gallar lagfærðir fljótlega.

Auðvitað er það til baga að allar skeiðklukkurnar skuli vera með ensku viðmóti. En því miður lítið hægt að gera við því. Á hinn bóginn þá eru þær allar ókeypis sem er mikill kostur.

Netbundin smáforrit fyrir gagnvirkar töflur
Kate Ahern heldur úti mjög vönduðum bloggvef sem hún nefnir Teaching Learners with Multiple Special Needs þar sem hún skrifar reglulega um málefni sem tengjast sérkennslu. Nýlega vakti hún athygli á ókeypis hugbúnaði á Netinu sem, þrátt fyrir að vera á ensku, gæti örugglega komið að góðum notum í íslenskum kennslustofum.

Um er að ræða fjölda smárra, vandaðra forrita sem eru eins og sniðin fyrir gagnvirkar töflur, þó auðvitað megi nota þau á margvíslegan annan hátt. Hér eru örfá dæmi um það sem í boði er.

Snúningsdiskur með átta merkimiðum

Í þessu forriti er hægt að skrá texta við átta merkimiða og snúa svo örinni þannig að hún lendi á einum þeirra að handahófi. Ég get ímyndað mér allskonar not fyrir svona hugbúnað í kennslu og þar sem enski textinn er alveg í lágmarki kemur hann ekki að sök. Í hugbúnaðarsafninu má finna fleiri útfærslur af snúningsdiskum og er vel þess virði að kynna sér þær betur.

Sveiflusjá (swingometer)

Þetta smáforrit virkar þannig að skráð eru tvö orð, nest í hornið vinstra- og hægrameginn á skjánum. Síðan er hægt að færa örina með músinni þannig að hún bendi annað hvort til vinstri eða hægri. Ég sé fyrir mér að það væri gaman að nota þetta í rökræðum tveggja liða þar sem sveiflusjáin (betri þýðing óskast) sýnir hvort liðið hefur betur. Það væri gaman að fá fleiri skemmtilegar hugmyndir frá lesendum um notkun á þessu forriti.

Orðaseglar

Hér er hægt að skilgreina fjölda stakra orða eða heilar setningar sem svo eru birtar á skjánum. Hvert orð er þá eins og segull sem hægt er að draga um skjáinn og staðsetja að vild. Hægt er að stækka orð og minnka og einnig breyta litnum á því. Þennan hugbúnað má nota á ótal mismunandi vegu.

Öll forritin á vef Triptico eru aðgengileg án endurgjalds og styðja við íslenska bókstafi.

Ungfrú Riley
Mrs. Riley er nafnið á nýjum, netlægum töflusmið þar sem notendur geta sett saman töflur með myndum og texta ekki ósvipað og gert er með Boardmaker forritinu velþekkta. Mrs. Riley er enn á þróunarstigi og varla samanburðarhæft við Boardmaker enn sem komið er. Byrjunin lofar hinsvegar góðu.

Töflurnar sem smíða má með aðstoð ungfrú Riley eru einfaldar og byggja á nokkrum fyrirfram gefnum sniðmátum sem notendur geta valið úr. Það er því ekki hægt að draga upp töflur að vild eins og óskandi væri. Þetta er að mínu mati einn stærsti gallinn við forritið eins og það lítur út í dag og takmarkar til muna notagildi þess. Hvað myndir í töflurnar varðar þá er hægt að velja úr dágóðu safni ljósmynda og teikninga og setja eigin texta við þær. Einfalt er að bæta eigin myndum við safnið og er það vel.

Notendaviðmótið í Mrs. Riley er mjög einfalt og það tekur ekki nema nokkrar mínútur að læra að setja saman töflur með aðstoð þess. Stærsti kostur hugbúnaðarins og mestu tækifærin felast hins vegar í því sem kalla má félagslegum eiginleikum netbundins hugbúnaðar. Nú þegar er hægt að vista myndatöflur í ungfrú Riley á þann hátt að þær eru aðgengilegar öðrum notendum kemur öllum vel. Aðrir möguleikar eru enn ónýttir, s.s. sameiginleg myndasöfn, vinnuhópar og samfélög notenda. Ég minni á færslu mína um Adaptedlearning.com vef Mayer Johnson (framleiðanda Boardmaker) í þessu sambandi.

Ég er verð að viðurkenna að mér hugnast ágætlega sá kostur að hafa einfaldan töflusmið innan seilingar á Netinu. Í minni kennslu þarf ég ekki á slíku verkfæri að halda daglega en það kemur reglulega fyrir að ég þurfi að grípa til Boardmaker eða annars hugbúnaðar til að setja saman töflur bæði einfaldar og flóknar. Boardmaker er hins vegar dýrkeyptur hugbúnaður og margir þeir sem nýta hann munu aldrei þurfa á öllum eiginleikum hans að halda. Aðgangur að ódýru og auðlærðu verkfæri á við Mrs. Riley er því óneitanlega spennandi möguleiki. Að sjálfsögðu veit ég ekki á þessari stundu hvað Mrs. Riley kemur til með að kosta en líklegast verður um að ræða einskonar áskriftarfyrirkomulag. Ég vona bara að verðinu verði stillt í hóf.

Ég held að framleiðendur Boardmaker geti sofið áhyggjulaust, allavega næstu mánuði enda er Mrs. Riley ekki skæður keppinautur þeirra enn sem komið er. Ég myndi samt hafa vakandi auga með þessari dömu ef ég væri í þeirra sporum. Hlutirnir eiga það nefnilega til að breytast hratt á þessum vettvangi.

Áhugasamir geta tekið þátt í opnum betaprófunum á Mrs. Riley. Það er um að gera að prófa.

Má bjóða þér Boardmaker efni?
Mayer Johnson fyrirtækið, framleiðandi Boardmaker, hefur opnað vefinn AdaptedLearning.com þar sem Boardmaker notendur geta átt samskipti sín á milli og miðlað og sótt hvers kyns efni sem unnið er með Boardmaker hugbúnaðinum.

Það verður sífellt algengara að hugbúnaðarfyrirtæki stofni vefsamfélög líkt og AdaptedLearning í því skyni að taka púlsinn á viðskiptavinum og virkja krafta þeirra til að auka notagildi og virði hugbúnaðarins. Það er augljós hagur fyrirtækja ef mögulegt er að nýta krafta viðskiptavina og að sama skapi hagkvæmt fyrir Boardmaker notendur að eiga kost á því að læra hverjir af öðrum og hafa aðgang að safni verkefna til að nota í eigin kennslu. Sérstaklega á þetta við um skapandi verkfæri eins og Boardmaker sem er notuð til að hanna frá grunni eða aðlaga hvers kyns stuðnings og kennsluefni. Þess má einnig geta að kennarar og aðrir Boardmaker notendur hafa lengi vel nýtt sér aðrar leiðir til samskipta og efnismiðlunar, s.s. þennan vinsæla hóp (e. group) á Yahoogroups.

Ég þekki annað og vel þekkt framtak svipaðs eðlis sem er LearningGrids vefur Cricksoft, útgefanda Clicker, Clicker Paint, Cloze Pro, Jigworks og fleiri vinsælla kennsluforrita. Á LearningGrids geta notendur forritanna frá Cricksoft sótt sér verkefni eftir höfunda á vegum Cricksoft eða aðra notendur á svipaðan hátt og Boardmaker býður sínum viðskiptavinum nú að gera á AdaptedLearning.com.

Hvernig virkar AdaptedLearning?

Aðgangur að AdaptedLearning vefnum er öllum að endurgjaldslausu. Notendur stofna aðgang með því að skrá almennar upplýsingar um sig og velja notandanafn og lykilorð. Að því loknu geta þeir skráð sig inn á vefinn og valsað um að vild.

Við innskráningu opnast viðmót þar sem notendur geta leitað eftir efni, hlaðið inn eigin efni og átt samskipti við aðra Boardmaker notendur um heim allan. Hægt er að hefja umræður eða taka þátt í umræðum sem þegar eru í gangi á sérstökum umræðuvettvangi. Einnig má stofna til kynna við einstaka notendur (e. my friends) og jafnvel mynda afmarkaðri hópa (e. my groups) notenda, t.d. utan um ákveðin viðfangsefni, skólastig eða jafnvel landsvæði. Ég legg til að íslenskir Boardmaker notendur stofni eigin hóp þarna inni.

Leitað eftir efni á Adaptedlearning

Efnisleit á AdaptedLearning er einföld. Hægt er að slá inn leitarorð og takmarka leitina við skólastig (e. grade level), flokk (e. category) eða undirflokk (e. sub category). Sem dæmi um flokk má nefna samskipti (e. communication) og sem dæmi um undirflokk má nefna efni sem stuðlar að jákvæðri hegðun (e. positive behaviour support).

Þegar áhugavert efni hefur verið fundið er einfalt að kalla fram nánari lýsingu og sækja viðkomandi skrá með því að smella á lýsinguna í listanum og smella síðan á krækjuna Open file.

Nánari lýsing inniheldur m.a. upplýsingar um höfund, hvaða útgáfu af Boardmaker þarf til að nota efnið og hvenær það var sett á vefinn. Þá er hægt að meta efni og skrá við það athugasemdir. Auk þess að sækja skrár yfir á eigin tölvu geta notendur viðað að sér efni í myfiles, sem er netlægt skráarsafn viðkomandi notanda á AdaptedLearning.

Þegar þetta er skrifað eru tæplega 600 Boardmaker skrár hýstar á AdaptedLearning og má fastlega búast við því að sú tala hækki verulega eftir því sem Boardmaker notendur uppgötva vefinn. Ég hvet Boardmaker notendur íslenska til að kynna sér þennan nýja kost og sendið endilega inn eigið efni því sælla er að gefa en þiggja.

Ný þjónusta í boði á Tákn með tali vefnum
Foreldrum, skólum, fyrirtækjum og stofnunum stendur nú til boða sérsniðin þjónusta á Tákn með tali vefnum. Þjónustan felst í sérteiknuðum táknum og vefsvæðum þar sem táknum er safnað saman.

Tákn með tali býður upp á eftirfarandi þrjár þjónustuleiðir:

Táknasafn barnsins

Foreldrar geta látið útbúa sér vefsvæði fyrir barnið sitt þar sem safnað er saman þeim táknum sem barnið er að læra og nota í leikskóla, heima fyrir eða annars staðar. Frekari upplýsingar má finna hér.

Táknasafn skólanna

Leik- og grunnskólar geta látið útbúa tákn fyrir skólann sinn, deildir, starfsfólk og sjálf börnin og hafa aðgengileg á einum stað. Frekari upplýsingar má finna hér.

Táknasafn fyrirtækja og stofnana

Fyrirtæki og stofnanir geta látið útbúa tákn fyrir sig. Frekari upplýsingar má finna hér.

Nýjungar í Boardmaker 6
Fyrir nokkru kynnti Mayer Johnson nýja útgáfu af Boardmaker hugbúnaðinum í Bandaríkjunum, Boardmaker Plus 6.0. Forritið verður selt í Skólavörubúðinni og er væntanlegt þangað í náinni framtíð en í millitíðinni er hægt að sækja 30 daga prufuútgáfu (einungis til í Windows útgáfu) á vef framleiðanda og kynna sér nýjungarnar. Ég gerði einmitt það og komst að eftirfarandi.

Boardmaker Plus 6.0 er í öllum meginatriðum mjög svipaður fyrirrennara sínum ef undanskilin eru örfá ný verkfæri og nokkrir nýir möguleikar við samsetningu efnis. Notendaviðmótið hefur engum breytingum tekið sem er miður því það er frumstætt og frekar takmarkað að mínu mati. Hér á eftir verða útlistaðar helstu nýjungar sem útgáfan hefur fram að færa.

Ritrammar

Ein viðamesta nýjungin í Boardmaker 6.0 felst í svokölluðum ritrömmum (symbolate button tool). Ritrammar eru sérstök tegund af reitum þar sem notendur geta skrifað inn texta og Boardmaker birtir samsvarandi tákn með, þ.e. þegar þau finnast í myndasafninu.

Því miður virka ritrammar ekki sem skyldi nema fyrir þau tungumál sem til staðar eru í Boardmaker og íslenskan er ekki eitt þeirra. Á hinn bóginn er alltaf hægt að bæta íslenskum orðum við myndir í Boardmaker sem er eitthvað sem fjölmargir hafa gert.

Þegar fleiri en ein mynd samsvarar ákveðnum texta í ritramma er hægt að smella á mynd og flakka á milli samsvarandi mynda með F1 lyklinum. Einnig er hægt að smella á einstaka mynd í ritramma (þ.e. þegar ritramma verkfærið er valið) og ákvarða birtingarröð myndanna sem fylgja viðkomandi texta.

Birtingarröðin (sjá mynd að ofan) segir til um hvaða mynd birtist fyrst þegar viðkomandi orð er skrifað í ritramma.

Draga sleppa (drag/drop)

Í Boardmaker 6.0 er einfalt að draga mynd beint úr hugbúnaði, möppu eða af Netinu og sleppa í reit.

Einnig er hægt að draga eina eða fleiri myndir og sleppa í myndasafn Boardmaker og bæta þannig myndunum við myndasafnið. Eftir að myndunum hefur verið sleppt í valgluggann (sjá mynd) opnast gluggi þar sem þeim er gefið nafn/nöfn og raðað í flokk/flokka.

Reitarugl (shuffle buttons)

Þessi nýja skipun í Boardmaker gerir notendum kleift að velja þrjá eða fleiri reiti og rugla innihaldinu í þeim, þ.e. raða því upp á nýtt á handahófskenndan hátt.

Skipunin er framkvæmd þannig að fyrst eru skyggðir þeir reiti sem ætlunin er að rugla og svo er valinn Edit>Shuffle Buttons valkosturinn.

Reitaskipti (swap buttons)

Í Boardmaker 6.0 er einfalt að skipta um innihald tveggja reita með því að halda niðri ALT lyklinum á lyklaborðinu á meðan einn reitur er dreginn yfir á annan. Skipunina er einnig að finna á Edit valseðilinum en flýtiskipunin er miklu mun handhægari.

Við þessa aðgerð skipt á innihaldi tveggja reita, ekki er hægt að velja fleiri en tvo reiti þegar aðgerðin er framkvæmd.

Reitajöfnun (alignment)

Jöfnun (align) felur í sér að hægt er að jafna reiti eða innihald þeirra. Jöfnun á reitum getur einfaldað hvers kyns uppröðun og samstillingu á reitum. Það er einnig mikill kostur að geta jafnað innihald reita, t.d. miðjað mynd lárétt og lóðrétt í reitnum.

Skipanir til að jafna reiti eða innihald þeirra birtast þegar reitir eða innihald þeirra er valið og smellt á hægri músarhnapp.

Óreglulegir reitir

Fram til þessa hafa reitir í Boardmaker allir litið eins út, þ.e. ferkanntaðir og með mismunandi rúnuð horn þegar sá kostur hefur verið valinn. Í Boardmaker 6.0 er hægt að búa til reiti sem hafa hvaða lögun sem er. Til þess er notaður annar af tveim nýjum hnöppum á tækjastiku Boardmaker.

Reitur er búinn til á svipaðan hátt og áður, þ.e. verkfærið er valið og reiturinn dreginn upp. Eini munurinn er sá að þegar hann er teiknaður með hinu nýja verkfæri getur lögunin verið hver sem er. Að öðru leyti er virknin nákvæmlega sú sama og þegar um hefðbundna reiti er að ræða.

Hreyfanlegir reitir (movable buttons)

Boardmaker er hægt og rólega að breytast úr því að vera einungis hugbúnaður til vinnslu á efni til útprentunar yfir í að vera verkfæri til samsetningar á hvers kyns prentuðum og gagnvirkum töflum.  Nýja útgáfan inniheldur enn fleiri möguleika til að að „forrita“ gagnvirkar töflur en áður og einn sá skemmtilegasti felst í því að nú er hægt að skilgreina hreyfanlega reiti.

Hreyfanlegir reitir (movable buttons) eru reitir sem hægt er að draga fram og til baka með músinni og sleppa á aðra reiti. Hreyfanlegir reitir tilheyra gagnvirka hluta Boardmaker, þ.e. hlutanum sem er virkjaður með því að velja annað hvort Dynamic Boards>Use eða CTRL+U. Áður en hægt er að skilgreina hreyfanlega reiti verður að kalla skipunina fram. Það er gert með því að velja Dynamic Boards>Show>Movable Button Tool sem birtir nýjan hnapp á tækjastiku Boardmaker.

Nýi hnappurinn (sjá mynd) gerir notanda kleift að skilgreina hreyfanlega reiti og hvað gerist þegar þeim er sleppt á aðra reiti.

Hreyfanlegir reitir gera möguleg verkefni eins og það sem sjá má hér að neðan þar sem markmiðið er að draga alla reiti sem innihalda orð sem byrja á bókstafnum „M“ yfir á ákveðinn reit. Hægt er að ákvarða hvað gerist þegar einstaka reit er sleppt á annan. Í þessu tilfelli birtist texti í textareitnum fyrir ofan stóra reitinn. Textinn sem birtist þar er ólíkur eftir því hvaða reitur verður fyrir valinu.

Hreyfanlegir reitir eru bara einn möguleikinn af fjölmörgum þegar kemur að smíði gagnvirkra verkefna í Boardmaker 6.0.

Niðurstaða

Boardmaker 6.0 er engin bylting en inniheldur nokkrar ágætar viðbætur og á heildina litið er þetta hin sæmilegasta uppfærsla. Persónulega er ég þó farinn að langa eftir almennilegu notendaviðmóti og sjálfsögðum aðgerðum eins og að geta afturkallað fleiri en eina aðgerð.

Kostir

Ný verkfæri flýta fyrir og einfalda vinnslu í Boardmaker

Draga/sleppa kosturinn er mjög handhægur, t.d. til að sækja myndir af Netinu

Gallar

Ekki hægt að afturkalla (undo) nema eina aðgerð. Þetta hefur lengi verið vandamál í Boardmaker og löngu tímabært að lagfæra.

Einungis ein tækjastika, t.d. engin tækjastika fyrir textavinnslu.

Hlýðir ekki nema örfáum hefðbundnum flýtiskipunum, t.d. ekki hægt að afrita reit með því að halda niðri CTRL (líkt og í Windows) eða ALT (líkt og í Adobe hugbúnaði og fleirum forritum).

Það er ennþá jafn leiðinlegt og áður að vinna með fleiri en eina töflu í einu. Þetta er eitthvað sem verður að laga.

Tveir fyrirlestrar og jarðarför
Ég flutti fyrirlestur á hinni árlegu Closing the Gap ráðstefnu í Minneapolis þann 20. okt. síðastliðinn undir yfirskriftinni “Preferably open – definitely free”. Umfjöllunarefnið var opinn og frjáls hugbúnaður í námi og kennslu nemenda með sérþarfir. Flutningurinn gekk með afbrigðum vel þó ég segi sjálfur frá og yfir 100 manns létu sig hafa það að sitja undir herlegheitunum. Ég mæli hiklaust með Closing the Gap ráðstefnunni sem verður án efa að teljast ein sú allra nytsamlegasta þegar kemur að hagnýtingu upplýsingatækninnar í námi og kennslu nemenda með sértækar þarfir. Sjáumst þar næsta vetur.

Helst af öllu opinn – örugglega frjáls

Í erindinu mínu kynnti ég til sögunnar áfanga sem ég hef þróað og kennt undanfarnar þrjár annir við starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti og mun að öllu óbreyttu gera áfram. Í áfanganum fást nemendur við margvíslegan hugbúnað sem allur á það sameiginlegt að vera opinn (open source), frjáls (free software) eða einfaldlega ókeypis. Helstu ástæður fyrir þessari tilhögun eru eftirfarandi:

Peningar af skornum skammti í menntakerfinu og sorgleg staðreyndin er sú að framhaldsskólar landsins hafa því miður ekki burði til þess að fjárfesta í öllum þeim hugbúnaði sem þeir svo sannarlega hafa not fyrir. Þetta er veruleiki sem við í sérkennslunni könnumst allt of vel við en á auðvitað einnig við um aðrar námsbrautir. Þegar svona er komið fyrir eru valkostirnir fáir því ekki viljum við notast við illa fenginn hugbúnað. Í mínu tilfelli felst svarið í opnum og ókeypis hugbúnaði og sem betur fer er úrvalið af honum töluvert og fer vaxandi. Gæði eru heldur ekki vandamál.

Í öðru lagi þá hefur hagnýting opins og ókeypis hugbúnaðar þá ánægjulegu aukaverkan að nemendur mínir geta sótt hugbúnað sem þeir læra að nota í skólanum og sett upp á eigin tölvur. Það skapar mikilvæg tengsl við heimilið þegar nemendur hafa aðgang að hugbúnaði á heimavelli sem þeim er gert að kunna skil á og hafa aðgang að í skólastofunni. Ég þekki allt of vel þá aðstöðu að nýta spennandi en dýrkeyptan hugbúnað í skólastarfi sem nemendur hafa sjaldnast aðgang að nema innan veggja skólans.

Ef ég ætti að lýsa áfanganum sem ég kynnti á Closing the Gap með einu orði þá yrði hugtakið sköpunarkraftur líklegast fyrir valinu. Ég legg áherslu á skapandi notkun hugbúnaðarins sem við vinnum með og það kemur berlega í ljós í verkefnavinnunni. Ég læt glærurnar fylgja hér á eftir svo þið getið fengið smjörþefinn af því sem fram fór í USA.

<object style="margin:0px" width="425" height="355"><param name="movie" value="http://s3.amazonaws.com/slideshare/ssplayer2.swf?doc=preferably-open-definately-free-2003-119308956464116-5"/><param name="allowFullScreen" value="true"/><param name="allowScriptAccess" value="always"/><embed src="http://s3.amazonaws.com/slideshare/ssplayer2.swf?doc=preferably-open-definately-free-2003-119308956464116-5" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="355"></embed></object>

| View | Upload your own

Vörður vísa veginn

Í gær, 2. nóvember, tók ég þátt í ráðstefnunni “Vörður vísa veginn” og flutti fyrirlestur sem ég nefndi “Hugleiðingar um innleiðingar”. Ráðstefnan var haldin á vegum 3f og var viðfangsefnið upplýsingatækni og menntun. í stuttu máli sagt þá var ég mjög ánægður með ráðstefnuna og erindin sem þar voru flutt. Það er óhætt að óska 3f til hamingju með vel heppnaða ráðstefnu.

<object style="margin:0px" width="425" height="355"><param name="movie" value="http://s3.amazonaws.com/slideshare/ssplayer2.swf?doc=hugleiingar-um-innleiingar-1193955432225097-4"/><param name="allowFullScreen" value="true"/><param name="allowScriptAccess" value="always"/><embed src="http://s3.amazonaws.com/slideshare/ssplayer2.swf?doc=hugleiingar-um-innleiingar-1193955432225097-4" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="355"></embed></object>

| View | Upload your own

Meðal áhugaverðs efnis var umfjöllun Salvarar Gissurardóttur um Second life sýndarheiminn og yfirlit Kolbrúnar Hjaltardóttur um nýja rannsókn sína á inngrip í tölvunotkun í grunnskóla. Þá hafði ég mjög gaman af erindi kennara Háskólans í Reykjavík um þróun upplýsingatækninnar og alvöru leiki (serious games). Ég gat því miður ekki fylgst með öllu því sem vakti áhuga minn en ég hefði viljað hlusta á Vigfús Hallgrímsson fjalla um það sem hann kallaði Opin sjónarmið um UT í skólastarfi. Ég missti einnig af Ellu Jónu segja frá Flúðaskólaleiðinni og Fjólu Þorvaldsdóttur kynna þróunarverkefni í leikskólanum Furugrund svo fátt eitt sé nefnt. Svona er það að geta ekki verið á mörgum stöðum í einu.

Til allrar lukku eru velflestir fyrirlestrar ráðstefnunar nú þegar aðgengilegir á Slideshare.net. Ég veit að Powerpoint glærur einar sér segja ekki alla söguna, ein eins og ég hef áður sagt þá fáið þið vonandi smjörþefinn að því sem þarna átti sér stað. Best er auðvitað að vera á staðnum.

Ég fór einnig í jarðarför í vikunni en ætla svo sem ekki að tjá mig mikið um það.

Glærur og vefslóðir frá vel heppnaðri námsstefnu
Námsstefnan Leiðir til árangurs var haldin föstudaginn 17. ágúst sl. í húsnæði Kennaraháskólans að frumkvæði faghóps leikskólasérkannara og í samvinnu við FÍS, FL, KHÍ, HA og TMF. Óhætt er að segja að mjög vel hafi tekist til og fjöldi þátttakenda vel yfir björtustu væntingum.

Þeir sem ekki sáu sér fært að mæta í Kennaraháskólann á föstudaginn var geta nú skoðað glærur frá fyrirlestrum og vefslóðir sem fyrirlesarar bentu á í erindum sínum. Glærurnar eru allar aðgengilegar á Slideshare vefnum og er það að mínu viti í fyrsta skipti sem þetta fyrirkomulag er haft á í ráðstefnu hér á landi. Vefslóðirnar má nálgast hér.

Opnar lausnir og leiðir til árangurs
Ég verð með innlegg á námsstefnunni Leiðir til árangurs sem haldin verður þann 17. ágúst nk. í Kennaraháskóla Íslands. Á námsstefnunni verður fjallað um það helsta sem er í boði á sviði kennslu og kennslugagna fyrir leikskóla og yngsta stig grunnskóla með sérstakri áherslu á sérkennslu. Ég mun fjalla um opnar lausnir í skólastarfi og m.a. kynna til sögunnar nýtt netbundið námskeið í Clicker hugbúnaðinum (og síðar Boardmaker) sem kennt verður í gegnum Moodle námsstjórnunarkerfið.

Sérhæfður hugbúnaður eins og Boardmaker og Clicker er víðsvegar notaður í skólastarfi hér á landi. Hann hentar vel í sérkennslu á öllum skólastigum en er einnig nýttur í almennu námi í leikskólum og yngri bekkjum grunnskólans. Clicker og Boardmaker eru mjög spennandi verkfæri, vönduð og vel þekkt, en til þess að nota þau markvisst er mikilvægt að læra á þau. Og þar stendur oft hnífurinn í kúnni. Ég hef staðið fyrir námskeiðum í Clicker í samstarfi við Skólavörubúðina og ég veit að Sigrún hjá Tölvumiðstöð fatlaðra hefur einnig kennt á bæði Clicker og Boardmaker. Til skamms tíma stýrði ég námskeiði við KHÍ sem hét “Upplýsingatækni með fötluðu fólki” en mér skilst að það verði ekki lengur í boði heldur einhverskonar blanda tveggja námskeiða undir heitinu “Stafræn gjá og tölvur í starfi með fötluðum” (hét áður

Stafræn gjá eða upplýsingasamfélag fyrir alla?). Námskeiðið verður í umsjá Salvarar Gissurardóttur og miðað við námskeiðslýsinguna þá verður öllum áherslum sem lagðar voru í “Upplýsinga” námskeiðinu hent fyrir róða og á ég þar helst við kennslu í Clicker og Boardmaker.

Málin standa því þannig að áhugasamir kennarar geta sótt til Sigrúnar í TMF og til Skólavörubúðarinnar hafi þeir áhuga á námskeiðum í annað hvort Boardmaker og Clicker. Það er auðvitað hið besta mál. Á hinn bóginn eru kennarar sem nýta þessi forrit mjög dreifðir. Hvað sérkennsluna varðar þá er kannski fámennur hópur kennara sem nýtir þau og stundum jafnvel einn kennari. Þessir kennarar eru einangraðir og hafa lítil tækfæri til að komast á skipulögð námskeið þar sem þau eru einungis haldin þegar nógu stór hópur næst saman.

Netbundnu námskeiðunum í opna hugbúnaðinum Moodle er ætlað að breyta þessu. Og þeim er einnig ætlað það hlutverk að vera samfélag notenda, annað hvort Boardmaker eða Clicker og vonandi fleiri forrita þegar fram líða stundir. Þessi samfélagsmyndun er mjög mikilvæg að mínu mati. Í fyrsta lagi er svo gott þegar við fáum tækifæri til samskipta og tækifæri til að læra hvert af öðru. Í öðru lagi verður verkefnavinna nemenda á námskeiðinu hýst í Moodle og þannig gerð aðgengileg öllum þátttakendum. Með þessu vonast ég til þess að þátttakendur námskeiðanna muni í sameiningu skapa stórt safn námsefnis sem unnið er í þeim hugbúnaði sem verið er að kenna á, nefnilega Boardmaker og Clicker. Kannski er þetta einn mikilvægasti þátturinn þegar svona hugbúnaður er annars vegar, þ.e. hugbúnaður sem kennarar nota til að búa til verkefni fyrir nemendur ekki síður en leggja þau fyrir.

Ég mun bjóða öllum þátttakendum á málstofu námstefnunnar sérstök kjör að umræddu Clicker námskeiði. Ég áætla að opna námskeiðið í byrjun október og munu þátttakendur málstofunnar fá ókeypis aðgang fram til áramóta. Annars mun þátttaka vera með áskriftarfyrirkomulagi. Ég geri ráð fyrir ársáskrift sem gæti kostað eitthvað á bilinu 1500 til 2000 kr. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin fáið þið á málstofu E þannig að það verður vel þess virði að láta sjá sig.

Námsstefnan Leiðir til árangurs er haldin að frumkvæði faghóps leikskólasérkennara og í samvinnu við FÍS, FL, KHÍ, HA og TMF.

Framsækið starf á Starfsbraut FB
Á haustönn 2003 fékk Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti styrk frá Menntamálaráðuneytinu til þess að þróa áhugasviðs- og færnikönnun fyrir nemendur með sérþarfir. Niðurstöðum könnunarinnar er ætlað að gefa vísbendingu um hvort að nemandinn hafi áhuga eða getu til að vinna tiltekin störf eða á tilteknum starfssviðum. Auk þess mætti styðjast við niðurstöður könnunarinnar við gerð einstaklingsmiðaðra kennsluáætlana til að búa nemandann enn frekar undir væntanlegt starfsnám og síðar meir starfsvettvang.

Könnunin var hönnuð af tveimur kennurum Starfsbrautar þeim Hrafnhildi Gísladóttur og Valdísi Harrysdóttur. Hægt er að sækja könnunina á vef starfsbrautar á Excel sniði.