Eldra efni: Sketchup

Google kynnir Sketchup 6

Skráð 09 January 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Dreifing er hafinn á nýrri útgáfu af hinu magnaða þrívíddarteikniforriti Sketchup og geta PC og Makkanotendur sótt sér hugbúnaðinn án endurgjalds á slóðinni sketchup.google.com. Sketchup er einnig til í svokallaðri PRO útgáfu sem kostar tæpa 500 dollara eða um 35.000kr miðað við gengi dollarans þegar þetta er ritað.


Burstabær og gámahús í þrívídd

Skráð 09 May 2006
Engar athugasemdir frá lesendum

Lesið færslu Salvarar Gissurardóttur á vefnum sínum um Sketchup þrívíddarforritið frá Google. Skoðið líka burstabæinn og gámahúsið sem hún teiknaði með aðstoð forritsins.


Nú geta allir teiknað í þrívídd

Skráð 01 May 2006
2 athugasemdir frá lesendum

Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst tækifæri á því að eignast úrvals hugbúnað til þrívíddarteikninga endurgjaldslaust og það á fullkomlega löglegan hátt. Svo er hins vegar reyndin með Google Sketchup, þrívíddarteikniforritið vinsæla sem nú er hægt að sækja í ókeypis útgáfu.
Sketchup kom fyrst á markaðinn árið 2001 og hefur frá þeim tíma [...]


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman