Í drögum menntamálaráðuneytisins að skilgreiningu á átta lykilhæfniþáttum (key competences) sem grundvalla almenna menntun og námskrárgerð samkvæmt nýjum lögum um nám og kennslu er upplýsingatækni ekki lykilhæfni á sama hátt á og í sambærilegri skilgreiningu Evrópusambandsins. [Translate]
Meistaraprófsritgerð Hafdísar Pálínu Ólafsdóttir um áhrif námsstjórnunarkerfisins Moodle á starfið í kennslustofum tveggja framhaldsskóla á Íslandi er nú aðgengileg á Netinu. Í rannsókn sinni kannaði Hafdís m.a. viðhorf kennara og nemenda til kerfisins; hvað þeir telji að hindri og hvernig þeir telji að hugbúnaðurinn eigi möguleika á að bæta námið. [Translate]
“Sounds good” verkefninu var hrundið úr vör við Metropolitan háskólann í Leeds til að svara einni einfaldri spurningu. Er hægt að bæta endurgjöf til nemenda með því að senda þeim stafrænar hljóðskrár á mp3 sniði í stað þess að notast við texta eins og venja er? [Translate]
Í nýrri stefnumótun ríkisstjórnarinnar varðandi upplýsingasamfélagið er markvisst stefnt að því að upplýsingatækni verði notuð í auknum mæli við nám og kennslu. Til að ná settu marki er ætlunin að styðja við svonefnda UT-leiðtoga í grunn- og framhaldsskólum. En hverjir eru þessir UT-leiðtogar, hvert er hlutverk þeirra og hvernig verður stuðningi við þá háttað? [Translate]
Wesley Fryer skrifaði nýlega eftirtektarverðan pistil um upplýsingatækni í skólastarfi á vef sinn Moving at the Speed of Creativity. Viðfangsefnið er velþekkt en vanrækt að ég tel, þ.e misskipting áhrifa og valds þeirra sem koma að stjórnun, stuðningi og kennslu. [Translate]
BECTA (British Educational Communications and Technology Agency) hefur að beiðni bresku ríkisstjórnarinnar gefið út ritið “Harnessing Technology: Next Generation Learning” sem er endurskoðuð og uppfærð stefnumótun enskra stjórnvalda um hagnýtingu upplýsingatækninnar í skólastarfi til næstu sex ára. [Translate]
Gríðarlegur vöxtur opinna netsamfélaga á við Facebook eða Myspace og samskiptalausna eins og MSN eða jafnvel SMS hafa skapað algjörlega nýjan vettvang til samskipta nemenda og kennara á Netinu. Í kjölfarið hafa vaknað áleitnar spurningar um eðlilegan samgang nemenda og kennara á slíkum vefjum og í það minnsta breskum stjórnvöldum finnst full ástæða til að ...
Ég var með erindi á sameiginlegum starfsdegi starfsbrauta framhaldsskólanna sem haldinn var í Menntaskólanum í Kópavogi í dag. Í erindinu fjallaði ég um hefðbundna kennsluhætti og námsefni og mögulegar leiðir til þess að vinna á skapandi og um leið skemmtilegan hátt með kennslu- og vinnubækur. [Translate]
Fyrir stuttu varð á vegi mínum forvitnileg bloggfærsla eftir Mark nokkurn Shead þar sem hann fjallar um þau tækifæri sem starfsmaður hefur á því að vaxa og efla sig í starfi. Í greininni birtir Shead línurit og hugtakið “Work Zone” til að lýsa stöðu og starfsþróun starfsmanna. Við lestur greinarinnar fór ég að velta fyrir ...
Ég flutti fyrirlestur á hinni árlegu Closing the Gap ráðstefnu í Minneapolis þann 20. okt. síðastliðinn undir yfirskriftinni “Preferably open – definitely free”. Umfjöllunarefnið var opinn og frjáls hugbúnaður í námi og kennslu nemenda með sérþarfir. Flutningurinn gekk með afbrigðum vel þó ég segi sjálfur frá og yfir 100 manns létu sig hafa það að ...
Athugasemdir