Desmos er mögnuð grafísk reiknivél sem knúin er af nútíma vefskoðara og virkar jafnt í fartölvum, borðtölvum og spjaldtölvum. Hún er þar að auki ókeypis. [Translate]
Síðustu vikur hef ég meðfram öðrum störfum dundað mér við að setja saman nokkur einföld verkefni fyrir nemendur mína á starfsbraut sem hafa verið að þjálfa sig í klukkunni. Við námsefnisgerðina hef ég helst notað Microsoft Word ritvinnsluna og Math Resource Studio forritið frá Schoolhouse Technologies. [Translate]
Ein af fjölmörgum tilraunastofum Microsoft hefur opinberað frumútgáfu af sérlega kennaravænum og þar að auki ókeypis hugbúnaði sem nefnist Math Worksheet Generator. Eins og nafnið ber með sér er um að ræða verkfæri til að framkalla hverskyns stærðfræðiverkefni. [Translate]
Athugasemdir