sfjalar » stærðfræði

Desmos – reiknaðu með vefskoðaranum
Desmos er mögnuð grafísk reiknivél sem knúin er af nútíma vefskoðara og virkar jafnt í fartölvum, borðtölvum og spjaldtölvum. Hún er þar að auki ókeypis.

Desmos er draumaverkfæri stærðfræðikennarans, einfalt í notkun og mjög öflugt. Ég get vel séð svona verkfæri fyrir mér í kennslu í efri bekkjum grunnskólans, í framhaldsskóla og örugglega háskóla. Þar sem hér er um að ræða HTML 5 lausn en ekki flash þá virkar hún vel á iPad og það er greinilegt að þróun í nútíma vefsmíðum er flash mjög í óhag.

Innskráðir notendur geta vistað gröf og útreikninga á eigin svæði (e. my graphs) og deilt með öðrum. Smelltu hér til að sjá hvernig hægt er að vista gröf og senda á aðra notendur. Þetta er einfaldlega frábær kostur í skólaumhverfinu. Gröf má einnig vista sem myndir á png sniðinu.

Þegar þetta er skrifað virkar Desmos Internet Explorer 9+, Chrome, Firefox 4+ og Safari 3+. Ég prufaði hugbúnaðinn í Chrome og iPad og það gekk eins og í sögu. Ég prufaði Desmos einnig á iPhone en það gekk ekki.

Klukkuverkefni
Síðustu vikur hef ég meðfram öðrum störfum dundað mér við að setja saman nokkur einföld verkefni fyrir nemendur mína á starfsbraut sem hafa verið að þjálfa sig í klukkunni. Við námsefnisgerðina hef ég helst notað Microsoft Word ritvinnsluna og Math Resource Studio forritið frá Schoolhouse Technologies.

Ég hef gert öll verkefnin aðgengileg á Issuu svæðinu mínu og geta kennarar eða aðrir sem áhuga hafa sótt þau þangað endurgjaldslaust og nýtt að vild. Einnig má sækja verkefnin með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan.

Í myndskeiðinu hér fyrir neðan má svo sjá hvernig ég notaði Math Resource Studio til þess að setja saman eitt verkefnið. Ég mæli með Math Resource Studio til þess að vinna stærðfræðiefni. Það er glettilega öflugt þegar maður hefur náð tökum á notendaviðmótinu. Hafi einhver áhuga á því að sækja prufuútgáfu af forritinu og spreyta sig á því að setja saman samskonar verkefni þér er hægt að sækja stóru klukkumyndina hér. Athugið að einnig er til einfaldari útgáfa af Math Resource Studio sem er ókeypis.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="500" height="301" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/h5pk6WjXn5o&hl=en_US&fs=1&hd=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="500" height="301" src="http://www.youtube.com/v/h5pk6WjXn5o&hl=en_US&fs=1&hd=1" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Allar athugasemdir og ábendingar varðandi verkefnin eru vel þegnar. Ein ástæða þess að geri efnið mitt aðgengilegt á netinu er að fá uppbyggilega gagnrýni sem ég get svo nýtt til þess að bæta verkin.

Microsoft kynnir Math Worksheet Generator
Ein af fjölmörgum tilraunastofum Microsoft hefur opinberað frumútgáfu af sérlega kennaravænum og þar að auki ókeypis hugbúnaði sem nefnist Math Worksheet Generator. Eins og nafnið ber með sér er um að ræða verkfæri til að framkalla hverskyns stærðfræðiverkefni.

Ég var nokkuð vongóður þegar ég sótti og prufukeyrði þessa nýjustu afurð stærsta hugbúnaðarfyrirtækis veraldar vitandi að innan dyra þess starfa hundruð sérfræðinga sem vafalítið er vel treystandi til að setja saman gagnlegan hugbúnað. Vonbrigðin urðu því töluverð þegar í ljós kom að um var að ræða lítið annað en ófullburða tilraunaútgáfu af hugbúnaði sem er mun takmarkaðri en samskonar forrit sem standa kennurum til boða nú þegar.

Math Worksheet Generator er nefnilega langt því frá fyrsti hugbúnaðurinn sem þróaður er til að einfalda og flýta fyrir framleiðslu á stærðfræðiefni. Sérfræðingum Microsoft til málsvarnar má þó segja að þeir nálgast viðfangsefnið á áhugaverðan og líklegast frumlegri hátt en flestir aðrir.

Math Worksheet Generator er einfalt forrit sem býr til stærðfræðiefni samkvæmt forskrift. Efnið sem skapað er í hugbúnaðinum er varpað á sjálfvirkan hátt yfir í Microsoft Word ritvinnsluna eða á HTML snið ef Word er ekki til staðar. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig forritið vinnur úr einföldu stærðfræðidæmi.

Þar sem Word 2007 er til staðar (mælt er með þeirri útgáfu) opnast sá hugbúnaður um leið og Math Worksheet Generator hefur lokið sínu verki og birtir tölusett stærðfræðidæmi og lausnir við þeim. Nú getur kennarinn tekið við og breytt skjalinu að vild og prentað eða vistað.

Það sem helst angar mig við Math Worksheet hversu ósköp takmarkað forritið er í núverandi útgáfu. Ég átti von á einhveru bitastæðara frá Microsoft. Á hinn bóginn verður auðvitað að segjast eins og er, að um algjöra frumútgáfu er að ræða og því kannski ósanngjarnt að gera sér of miklar væntingar. Það er bara vonandi að Microsoft haldi áfram að þróa þennan hugbúnað þannig að úr verði nothæft verkfæri fyrir kennarar og auðvitað alla aðra sem áhuga hafa. Þangað til sú útgáfa lítur dagsins ljós mæli ég með Math Resource Studio 4 Lite (ókeypis) eða Math Resource Studio 4 sem reyndar kostar um 8000 kr á gengi dagsins í dag en ég held að þeirri upphæð sé vel varið í vandaðan hugbúnað.