Eldra efni: staðlar

OOXML verður ISO staðall

Skráð 01 April 2008
Flokkur: staðlar
2 athugasemdir frá lesendum

Þá er það orðið ljóst að meingallaður OOXML (Office Open XML) staðall Microsoft hefur hlotið samþykki sem ISO staðall, ISO IS29500. Niðurstaðan var fyrirsjáanleg en er mikil vonbrigði engu að síður. ISO stofnunin hefur sett mikið niður fyrir framgöngu þessa máls og hlítur að endurskoða reglur sínar og verkferla í kjölfar þess. Microsoft er hins [...]


Óvænt endalok á OOXML fundinum í Sviss

Skráð 01 March 2008
Flokkur: staðlar
Engar athugasemdir frá lesendum

Lokið er fimm daga löngum fundi 120 fulltrúa frá 32 af aðildarríkjum ISO samtakanna sem haldinn var dagana 25. - 29. febrúar í Genf í Sviss. Á fundinum var tekist á um athugasemdir tækninefnda aðildarríkjanna vegna ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið. Óhætt er að segja að niðurstaðan komi nokkuð á [...]


ISO hafnar OOXML í fyrstu umferð

Skráð 16 September 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Þrátt fyrir hástemndar yfirlýsingar Microsoft um alþjóðlegar vinsældir OOXML staðalsins í nýlegri fréttatilkynningu sem gefin út var í kjölfar nýafstaðinnar atkvæðagreiðslu á vegum ISO fóru leikar þannig að staðlinum var hafnað um svo kallað “fast track” samþykktarferli. Niðurstaðan hefur í för með sér að OOXML verður að fara í gegnum mun ítarlegra ferli þar sem [...]


Stál í stál á opnum fundi Staðlaráðs

Skráð 30 August 2007
Engar athugasemdir frá lesendum

Mjög góð þátttaka var á opnum fundi staðlaráðs þar sem til umræðu var annars vegar stofnun tækninefndar í upplýsingatækni og hins vegar umfjöllun og hugsanleg afstaða til ISO/IEC DIS 29500 sem er frumvarp að staðli um skráarsnið, nú í frumafgreiðslu hjá JTC. Á fundinum var samþykkt stofnun tækninefndar, en þegar kom að umfjöllun um ISO/IEC [...]


Segjum nei við OOXML!

Skráð 25 August 2007
1 athugasemd frá lesendum

Að frumkvæði Microsoft á Íslandi hefur verið boðað til opins undirbúningsfundar um stofnun tækninefndar um íslenska þátttöku í JTC1 sem er samstarfsnefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna ISO og Alþjóða raftækniráðsins IEC um stöðlun í upplýsingatækni.


Úr myndasafninu

  • Í stuttu máli

    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er “Hvernig hafa vísindin áhrif á daglegt líf mitt?”. (0)
    Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera “vísindin í daglegu lífi”.
    (0)
    1.-3 september nk. stendur OECD/CERI fyrir tilviksathugun á upplýsingatækni á Íslandi (notkun stafræns námsefnis). Til landsins koma fimm sérfræðingar sem skoða ákveðin tilvik og þeir vilja endilega fá að ræða við kennara um hvernig þeir nota þessi tæki. Meira á vef 3F.
    (0)
    Skólagjöld í opinberum menntaskóla eru orðin að veruleika segir Dagbjört Hákonardóttir í pistli í Vefritinu.
    (0)
  • Gagn og gaman