BECTA er sú stofnun innan bresku stjórnsýslunnar sem hefur umsjón með og ráðleggur um framkvæmd á stefnu stjórnvalda í upplýsingatækni. Í nýrri skýrslu stofnunarinnar er breskum skólum ráðlagt frá því að uppfæra í Microsoft Vista stýrikerfið og Office 2007 hugbúnaðarsafnið. Ráðleggingarnar eru í samræmi við fyrri niðurstöður BECTA sem birtar voru fyrir ári síðan.
BECTA stofnunin breska hefur sent frá sér bráðabirgðaniðurstöður nýrrar rannsóknar þar sem skólum þar í landi er sterklega ráðlagt frá því að uppfæra í Microsoft Vista stýrikerfið eða Office 2007 á næstunni.
Fyrir nokkru óskaði ég eftir að fá senda diska með Ubuntu (KDE útgáfunni reyndar) GNU/Linux-dreifingunni vinsælu og komu þeir í hús nýlega. Undanfarna daga hef ég verið að prófa mig áfram með kerfið og fyrstu kynni lofa aldeilis góðu.
Ubuntu hefur gjarnan þótt einstaklega aðgengileg og notendavæn GNU/Linux dreifing enda sýndi það sig að uppsetning á [...]
Apple kynnir Boot Camp, forrit sem gerir Macintosh notendum kleift að keyra Windows stýrikerfið. Boot Camp verður hluti af næstu útgáfu af Max OS X. Tekið skal fram að Windows stýrikerfið fylgir ekki með og því þarf að kaupa það sérstaklega.