Ég komst í tæri við Pencil teikniforritið fyrir stuttu og hef verið að kynna mér kosti þess undanfarið með það í huga að nýta í kennslu á Starfsbraut FB. Pencil er opinn hugbúnaður og til í útgáfum fyrir öll helstu stýrikerfi, þ.e. Windows, Makka og Linux.
Á sérstökum barnahluta vefs National Gallery of Art listasafninu í Washington má finna fjölda einfaldra en mjög skemmtilegra og skapandi teikniforrita sem öll eiga það sameiginlegt að tengjast viðfangsefni safnsins á einn eða annan hátt. Forritin eru netbundin og keyrð í gegnum vefskoðara.
Dreifing er hafinn á nýrri útgáfu af hinu magnaða þrívíddarteikniforriti Sketchup og geta PC og Makkanotendur sótt sér hugbúnaðinn án endurgjalds á slóðinni sketchup.google.com. Sketchup er einnig til í svokallaðri PRO útgáfu sem kostar tæpa 500 dollara eða um 35.000kr miðað við gengi dollarans þegar þetta er ritað.
Teikniforritin Paint.net og Artweaver, sem ég hef áður fjallað um á þessum vef, hafa bæði verið gefin út í nýjum útgáfum. Paint.net er komið út í útgáfu 3.0 (reyndar ekki endanleg) og Artweaver hefur verið uppfært í útgáfu 0.42.
Paint.net er hefðbundið myndvinnsluforrit sem inniheldur flestar algengustu skipanir sem finna má í Photoshop, einum þeim öflugasta [...]
Ég sótti Tuxpaint teikniforritið fyrir stuttu svona til að kynna mér. Ég hef vitað af þessu forriti í lengri tíma en aldrei komið mér að því að prufa það. Niðurstaðan er sú að um stórsniðugan hugbúnað er að ræða sem óhætt er að mæla með fyrir leikskóla og nemendur í yngri bekkjum grunnskólans. Það spillir [...]
Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst tækifæri á því að eignast úrvals hugbúnað til þrívíddarteikninga endurgjaldslaust og það á fullkomlega löglegan hátt. Svo er hins vegar reyndin með Google Sketchup, þrívíddarteikniforritið vinsæla sem nú er hægt að sækja í ókeypis útgáfu.
Sketchup kom fyrst á markaðinn árið 2001 og hefur frá þeim tíma [...]
Artweaver er sniðugt teikniforrit sem vel þess virði er að skoða nánar. Artweaver er einfalt í notkun en býr þó yfir mörgum öflugum möguleikum sem gerir hugbúnaðinn áhugaverðan t.a.m. í listgreinakennslu þar sem hægt er að gefa ímyndunaraflinu og sköpunargáfunni lausan tauminn. Artweaver inniheldur fjölda teikniverkfæra sem eiga það sameiginlegt að með notkun þeirra er [...]
Tæknirisinn Microsoft hefur fram til þessa ekki þótt sérstaklega vinveittur opnum hugbúnaði (open source) svo vægt sé til orða tekið. Hið stórskemmtilega myndvinnsluforrit Paint.net er þó fróðleg undantekning frá þessari reglu. þróun þess er í höndum þriggja forritara sem allir starfa hjá Microsoft, en vinna að Paint.net í frítíma sínum. Verkefnið er unnið með vitun [...]
Teikniforritið Artrage er eitt af þeim forritum sem ég hef gjarnan bent kennurum á að hægt er að sækja án endurgjalds á Netið, enda um að ræða vandaðan hugbúnað sem hentar ágætlega í skólastarfi. Nú hefur útgefandi Artrage, hugbúnaðarfyrirtækið Ambient design, kynnt útgáfu 2.0 af þessu skemmtilega forriti og inniheldur hún margvíslegar nýjungar og endurbætur. [...]