sfjalar » teikniforrit

Fyrstu kynni af Pencil teikniforritinu
Ég komst í tæri við Pencil teikniforritið fyrir stuttu og hef verið að kynna mér kosti þess undanfarið með það í huga að nýta í kennslu á Starfsbraut FB. Pencil er opinn hugbúnaður og til í útgáfum fyrir öll helstu stýrikerfi, þ.e. Windows, Makka og Linux.

Sá er munurinn á Pencil og öðrum teikniforritum opnum sem ég hef kynnt mér og skrifað um á þessum vettvangi að Pencil inniheldur auk algengustu teiknitóla tímalínur sem gera notendum kleift að skapa einfaldar hreyfimyndir í hugbúnaðinum.

Þannig er hægt að setja saman stuttar eða langar teiknimyndir sem meira að segja geta innihaldið hljóð eða tónlist. Ég er einmitt afskaplega spenntur fyrir því að vinna slík verkefni með nemendum mínum. Hér fyrir neðan má sjá stutt tónlistarmyndband sem unnið var með Pencil teikniforritinu og sýnir betur en margt annað möguleika þess.

<object width="425" height="355"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/zs8-w8lliCw"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/zs8-w8lliCw" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="355"></embed></object>

Þróun Pencil er enn á frumstigi og augljóslega ýmislegt sem þarf að bæta og annað sem enn á eftir að bæta við. Pencil býður t.a.m ekki upp á textavinnslu sem er töluverður galli og fleira má reyndar tiltaka þó það verði ekki gert hér og nú. Svo allrar sanngirnis sé gætt er sjálfsagt að geta þess að útgáfan sem ég reyndi var tölusett 0.4.4 þannig að enn er langt í land. Það breytir því samt ekki að um hið þokkalegasta teikniforri er að ræða sem í náinni framtíð gæti vel orðið spennandi valkostur í kennslu.

Einföld teikniforrit fyrir leikskóla og yngri bekki grunnskóla
Á sérstökum barnahluta vefs National Gallery of Art listasafninu í Washington má finna fjölda einfaldra en mjög skemmtilegra og skapandi teikniforrita sem öll eiga það sameiginlegt að tengjast viðfangsefni safnsins á einn eða annan hátt. Forritin eru netbundin og keyrð í gegnum vefskoðara.

BRUSHster

Brushter er sniðugt forrit til að búa til abstrakt myndir. Hægt er að velja á milli yfir 40 ólíkra pensla og breyta áferð þeirra, virkni og stærð. Einnig inniheldur forritið aðgerðir til að blanda saman litum og klessa liti saman svo fátt eitt sé nefnt.

Jungle Interactive

Jungle Interactive er teikniforrit sem er sérstaklega hugsað til þess að teikna myndir í anda franska listamannsins Henri Rousseau sem málaði í svokölluðum naívisma. Rousseau valdi sér gjarnan myndefni sem tengdist frumskóginum og dýraríkinu en sjálfur yfirgaf hann aldrei Frakkland.

Collage Machine I og II

Collage Machine gerir þér kleift að skeyta saman og vinna með ólíkar smámyndir, einskonar stimpla. Collage er aðferð í myndlist þar sem steypt er saman ólíkum hlutum, s.s. úrklippum og ýmsum smáhlutum eða efnum. Stundum er einnig málað á myndflötinn. Orðið Collage er dregið af franska orðinu Coller sem þýðir að líma. Á íslensku hefur orðið klippimynd verið notað yfir þetta listform.

(Heimild: Wikipedia)

Flow

Flow er heillandi verkfæri til frumlegrar og lifandi listsköpunar. Með Flow er hægt að búa til hvers kyns form og hreyfa þau um skjáinn með músinni. Sjón er sögu ríkari.

Google kynnir Sketchup 6
Dreifing er hafinn á nýrri útgáfu af hinu magnaða þrívíddarteikniforriti Sketchup og geta PC og Makkanotendur sótt sér hugbúnaðinn án endurgjalds á slóðinni sketchup.google.com. Sketchup er einnig til í svokallaðri PRO útgáfu sem kostar tæpa 500 dollara eða um 35.000kr miðað við gengi dollarans þegar þetta er ritað.

Ég hef notað Sketchup í kennslu minni bæði við Fellaskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti og ég fullyrði að þarna er á ferðinni magnaður hugbúnaður og einstaklega notendavænn. Helsti kosturinn við Sketchup er hversu einfalt er að nota forritið og það tekur ekki nema örfáar mínútur að kynna undirstöðuatriði þess fyrir nemendum. Áður en ég kynntist Sketchup trúði ég því að þrívíddarteikningar væru verulega flókið fyrirbæri en í dag nýti ég forritið m.a. með nemendum á starfsbraut FB, en það er sérdeild skólans. Sketchup er líka skemmtilegt og það er gaman að sjá hversu skapandi nemendur verða þegar þeir fá í hendurna svona öflugt verkfæri.

Sketchup 6 inniheldur margvíslegar nýjungar, smáar jafnt sem stórar. Þar má t.d. finna textaverkfæri til að setja texta við teikningar og teikningar má nú vista sem pdf skjöl. Ný tækjastika hefur bæst við notendaviðmótið (var áður einungis í pro útgáfunni) og inniheldur hún fleiri verkfæri og hentar ágætlega notendum sem eru lengra komnir. Photo Match verkfærið er svo spennandi kostur sem einfaldar notendum að búa til þrívíddarmódel eftir ljósmyndum.

Hér eru nokkrar krækjur fyrir þá sem vilja kynna sér Sketchup betur:

Myndskeið með upplýsingum um nýja möguleika

Sketchup Handbók á Netinu

Þrívíddarvöruhús Google

Paint.net og Artweaver í nýjum útgáfum
Teikniforritin Paint.net og Artweaver, sem ég hef áður fjallað um á þessum vef, hafa bæði verið gefin út í nýjum útgáfum. Paint.net er komið út í útgáfu 3.0 (reyndar ekki endanleg) og Artweaver hefur verið uppfært í útgáfu 0.42.

Paint.net er hefðbundið myndvinnsluforrit sem inniheldur flestar algengustu skipanir sem finna má í Photoshop, einum þeim öflugasta myndvinnsluhugbúnað sem skapaður hefur verið.

Artweaver nálgast viðfangsefnið hins vegar frá öðrum sjónarhóli og inniheldur verkfæri sem herma eftir algengum tólum og tækjum listamanna.

Paint.net og Artweaver eiga það hins vegar sameiginlegt að bæði eru þau ókeypis.

Tuxpaint – stórsniðugt teikniforrit á íslensku
Ég sótti Tuxpaint teikniforritið fyrir stuttu svona til að kynna mér. Ég hef vitað af þessu forriti í lengri tíma en aldrei komið mér að því að prufa það. Niðurstaðan er sú að um stórsniðugan hugbúnað er að ræða sem óhætt er að mæla með fyrir leikskóla og nemendur í yngri bekkjum grunnskólans. Það spillir ekki fyrir að Tuxpaint hefur verið íslenskað.

Tuxpaint hefur fengið einróma lof notenda enda einfaldleikinn í fyrirrúmi. Hér fyrir neðan má sjá notendaviðmót forritsins. Vinnusvæðið er í miðjunni, vinstra megin má finna teikniverkfærin og hægra megin birtast svo frekari stillingar eða valkostir tengdir hverju einstaka verkfæri (þegar við á). Skemmtileg hljóð fylgja verkfærunum þegar þau eru notuð (hægt að hækka/lækka innan forritsins)

Tuxpaint er til á fjölda tungumála og þar á meðal íslensku. Ekki þarf að sækja íslensku þýðinguna sérstaklega. Íslenska þýðingin er unnin af Pjetri G. Hjaltasyni. Hún er góð en ennþá eru nokkrir textastrengir óþýddir.

Tuxpaint má sækja án endurgjalds á vefnum www.tuxpaint.org, enda um opinn hugbúnað að ræða. Tuxpaint er fáanlegt fyrir Linux, Mackintosh og Windows stýrikerfi (og fleiri reyndar).

Nú geta allir teiknað í þrívídd
Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst tækifæri á því að eignast úrvals hugbúnað til þrívíddarteikninga endurgjaldslaust og það á fullkomlega löglegan hátt. Svo er hins vegar reyndin með Google Sketchup, þrívíddarteikniforritið vinsæla sem nú er hægt að sækja í ókeypis útgáfu.

Sketchup kom fyrst á markaðinn árið 2001 og hefur frá þeim tíma vaxið að mjög að vinsældum enda bæði öflugt og einfalt í notkun. Ekki spillti verðið fyrir vinsældunum því Sketchup hefur frá upphafi verið tiltölulega ódýr hugbúnaður miðað við sambærileg forrit. Ástæða þess að Sketchup nú er hægt að sækja án endurgjalds á Netið er sú, að fyrir stuttu síðan keypti Google fyrirtækið framleiðendur Sketchup með húð og hári og hefur nú tekið þetta skref til að gera hugbúnaðinn enn aðgengilegri en áður. Það skal strax tekið fram að ókeypis útgáfa Sketchup er nokkuð skert, þ.e. hún inniheldur ekki alla möguleika Sketchup 5, sem er nýjasta útgáfa hugbúnaðarins og fáanleg gegn endurgjaldi. Sá er gallinn helstur á gjöf Njarðar að með ókeypis útgáfunni eru einstaka teiknimöguleika ekki til staðar auk þess sem ekki er hægt að vista myndir í sérstökum þrívíddarsniðum eða sem stutt myndskeið. Hitt er annað mál að Sketchup er kjörið verkfæri fyrir kennara og nemendur sem hafa áhuga á því að kynna sér sérlega spennandi heim þrívíddarteikninga á einfaldan og fljótlegan hátt.

<object width="425" height="350"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/gUBmkFBxVsc"></param>
<embed src="http://www.youtube.com/v/gUBmkFBxVsc" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>

Ef ég ætti að velja tvö orð til þess að lýsa Sketchup yrðu orðin einfalt og fljótlegt örugglega fyrir valinu. Sketchup er ótrúlega einfalt í notkun og það er einmitt þessi einfaldleiki sem gerir það svo aðlaðandi valkost í skólastarfi í grunnskóla jafnt sem á framhaldsskólastiginu. Nemendur geta unnið með teikningar í þrívídd á frumlegan og skapandi hátt og það er enginn skortur á verkefnum sem hægt er að vinna með aðstoð svona hugbúnaðar. En Sketchpad er ekki aðeins einfalt í notkun heldur er hér um að ræða afar öflugan hugbúnað sem nýttur er af arkitektum jafnt sem leikjahönnuðum og fjölmörgum öðrum sem vinna með þrívíddarteikningar. Rétt er samt að geta þess að Sketchpad er ekki ætlað að koma í staðinn fyrir þrívíddar teikniforrit eins og 3D Max, Autocad eða Maya til þess er hann ekki nógu öflugur ennþá.

Í stuttu máli sagt þá er Sketchup er eitt af þessum frábæru verkfærum sem eru í senn öflug og svo einstaklega skemmtileg í notkun að það er bókstaflega erfitt að slíta sig frá þeim. Og það er meira til. Innifalið í Sketchup er aðgengi að vöruhúsi teikninga, eins og það er kallað, eftir aðra Sketchup notendur þar sem finna má allt frá hundakofum upp í stórfenglegustu hallir. Þannig er, með einum músarsmelli, hægt að sækja teikningar annarra og nýta í eigin verkum eða þá senda eigin verk í safnið og gera aðgenglegt öðrum. Síðast en ekki síst er ákaflega einfalt að tengja saman Sketchup og Google Earth og staðsetja sköpunarverk sín hvar sem er í heiminum. Þetta er frábær möguleiki sem gaman er að leika sér með og getur einnig komið að góðum notum í kennslustofunni.

Landslagsarkitektúr

Arkitektúr

Sketchup notað við garðhönnun

Svona lítur nýja húsið út

Heildarmynd

Meiri arkitektúr

Þetta er magnað

Viðbygging við skóla

Ég er sannfærður um að þetta nýjasta útspil Google á eftir að vekja mikla athygli og það verður gaman að fylgjast með því hvernig kennarar koma til með að nota þennan spennandi hugbúnað, hér á landi sem og annarsstaðar.

Artweaver – teikniforrit fyrir verðandi listamenn
Artweaver er sniðugt teikniforrit sem vel þess virði er að skoða nánar. Artweaver er einfalt í notkun en býr þó yfir mörgum öflugum möguleikum sem gerir hugbúnaðinn áhugaverðan t.a.m. í listgreinakennslu þar sem hægt er að gefa ímyndunaraflinu og sköpunargáfunni lausan tauminn. Artweaver inniheldur fjölda teikniverkfæra sem eiga það sameiginlegt að með notkun þeirra er verið að herma eftir hefðbundnum teikniáhöldum og efnum. Teikniverkfæri þessi má aðlaga og stilla á fjölda máta.

Hugbúnaðurinn inniheldur auk þessa aðgerðir sem notendur öflugri myndvinnsluforrita eiga að venjast eins og t.a.m. valverkfæri, gegnsæi og lagskipta myndinnslu. Artweaver býr yfir dágóðu safni myndsía (filters) og getur unnið með öll helstu skráarsnið sem tíðkast í myndvinnslu (bmp, gif, jpeg, pcs, tga, tiff og png). Artweaver styður við hefðbundin tölvutengd teikniborð og hægt er að sækja viðbætur (plugins) sem þó verða að vera sérhannaðar fyrir hugbúnaðinn.

Artweaver er hugbúnaður í mikilli þróun. Þegar þetta er skrifað er nýjasta útgáfan 0.3.9.9. Ekkert er samt að óttast því Artweaver þessi útgáfa er mjög stöðug og óhætt að setja hana upp og nota.

Artweaver má sækja án endurgjalds og því heppilegt að nýta í skólastarfi. Í fyrsta lagi vegna þess að um mjög skemmtilegt teikniforrit er að ræða sem kemur að góðum notum í t.d. listgreinakennslu og öðru skapandi starfi. Í öðru lagi vegna þess að Artweaver er ókeypis og því fjárhagslega hagkvæmur kostur fyrir skóla og ekki síst nemendurna sjálfa sem geta sótt það án mikillar fyrirhafnar og sett upp á tölvunni heima hjá sér. Það er nefnilega allt of algengt að foreldrar og nemendur hafi ekki aðgang á heimilinu að þeim hugbúnaði sem unnið er með í skólanum. Það er allt of mikið bil á milli tölvunotkunar í skólakerfinu og á heimilum og ef til vill er ókeypis eða opinn hugbúnaður ein leið til þess að brúa það.

Technorati Tags: artweaver

Paint.NET – opinn hugbúnaður frá Microsoft?
Tæknirisinn Microsoft hefur fram til þessa ekki þótt sérstaklega vinveittur opnum hugbúnaði (open source) svo vægt sé til orða tekið. Hið stórskemmtilega myndvinnsluforrit Paint.net er þó fróðleg undantekning frá þessari reglu. þróun þess er í höndum þriggja forritara sem allir starfa hjá Microsoft, en vinna að Paint.net í frítíma sínum. Verkefnið er unnið með vitun og velvilja Microsoft, en verður þú að teljast óformlegt verkefni innan herbúða þess og er ekki hýst á vefþjónum fyrirtækisins.

Paint.net á upphaf sitt að rekja til ársins 2004 þegar nemendur í framhaldsáfanga í forritun við ríkisháskólann í Washingtonfylki fengu það verkefni að endurbæta Paint teikniforritið sem er innifalið í Windows stýrikerfinu. Það tók nemendurna 15 vikur að skila af sér útgáfu 1.0 sem reyndar byggði á engan hátt á forritskóða Paint og síðan hefur ekki verið aftur snúið. Paint.net er opinn hugbúnaður og engar áætlanir eru uppi um að breyta þeim leyfisskilmálum. Nýlega var opinberuð útgáfa 2.6 og er hægt að sækja hana án endurgjalds hér. Athugið að útgáfan keyrir á .net og krefst þess að “.net 2.0 framework” sé til staðar í tölvu notenda.

Paint.net hefur notið töluverðra vinsælda frá því forritið leit dagsins ljós. Við hönnun þess var áhersla lög á einfaldleika í notkun og virðast þær áherslur hafa komist vel til skila því viðtökur notenda hafa verið mjög góðar. Paint.net hentar mjög vel í skólastarfi,  það inniheldur allar algengustu aðgerðir stærri og dýrkeyptari myndvinnsluforrita, enda stundum kallað Photoshop fyrir almenning. Ágætt er þó að hafa í huga að Paint.net hefur aldrei verið ætlað að keppa við risana á markaði myndvinnsluhugbúnaðar og er mun takmarkaðra en t.a.m. Photoshop eða hið frjálsa Gimp, en í hefðbundnu skólastarfi er á hinn bóginn sjaldnast þörf fyrir alla þá stórkostlegu möguleika sem forrit eins og Photoshop hafa í boði. Á Betanews vefnum má lesa mjög góða grein um tilurð og þróun Paint.net.

Technorati Tags: paint.net, gimp, microsoft, open source, myndvinnsla, teikniforrit

Artrage 2 – einstaklega vel heppnað teikniforrit
Teikniforritið Artrage er eitt af þeim forritum sem ég hef gjarnan bent kennurum á að hægt er að sækja án endurgjalds á Netið, enda um að ræða vandaðan hugbúnað sem hentar ágætlega í skólastarfi. Nú hefur útgefandi Artrage, hugbúnaðarfyrirtækið Ambient design, kynnt útgáfu 2.0 af þessu skemmtilega forriti og inniheldur hún margvíslegar nýjungar og endurbætur. Artrage er til fyrir bæði Windows og Mac OSX stýrikerfið.

Artrage er í senn aðgengilegt og einfalt í notkun sem gerir það sérlega heppilegan valkost fyrir kennara sem hafa áhuga á því að nýta teikniforrit í kennslu sinni. Artrage 2.0 inniheldur 12 teikniverkfæri og er líkt og fyrirrennari sinn hannað með það í huga að þessi verkfæri hermi eins vel eftir raunverulegum fyrirmyndum sínum og kostur er. Það má einnig breyta áferð “pappírsins” sem teiknað er á og sækja t.a.m. ljósmynd og nota sem fyrirmynd þegar teiknað er. Artrage er

Artrage 2.0 er fáanlegt í tveimur útgáfum, ókeypis útgáfu sem inniheldur alla kosti Artrage 1.0 og nokkrar endurbætur og fulla útgáfu (Full Edition) sem kostar 19.95 dollara eða tæplega 1300 kr. íslenskar. Smelltu hér til þess að bera saman kosti beggja útgáfanna. Það er ekki nema nokkurra mínútna verk að kaupa Artrage í gegnum Netið og er óhætt að fullyrða að þeim peningum er vel varið. Að sjálfsögðu er líka kjörið að sækja ókeypis útgáfuna sem stendur vel fyrir sínu.