Swivel er opin vefþjónusta þar sem þátttakendur deila með sér tölfræðilegum gögnum á svipaðan hátt og notendur YouTube deila með sér myndskeiðum. Fyrirtækið opnaði dyr sínar almenningi í dag og eftir umfjöllun á TechCrunch var aðsóknin slík að vefþjónar þess áttu erfitt með að höndla álagið.
Niðurstöður nýlegrar könnunar sem framkvæmd var á vegum hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat (Statistical Office of the European Commission), benda sterklega til takmarkaðrar tölvunotkunar og lítillar netnotkunnar meðal íbúa sambandsins. Könnunin, sem nefnist “2005 Community survey on ICT usage in households and by individuals”, var framkvæmd á seinni hluta síðasta árs og tók til 123.941 heimila og [...]